Vill Skúla Tómas á stofnun: „Ég hef enga þörf fyrir að pína hann“ Árni Sæberg skrifar 19. maí 2026 16:55 Eva Hauksdóttir er dóttir konunnar sem Skúli Tómas er grunaður um að hafa svipt lífi. Vísir/Ívar Fannar Dóttir konu, sem læknirinn Skúli Tómas Gunnlaugsson hefur verið ákærður fyrir að svipta lífi, segist helst vona að málið leiði til þess að Alþingi setji lög, sem muni koma í veg fyrir sambærileg mál í framtíðinni.
Líkt og Vísir fjallaði um í dag fór Skúli Tómas fram á að ákæru á hendur honum verði vísað frá, þegar hún var þingfest upp úr klukkan 14. Hann var ekki viðstaddur þingfestinguna. Þar sem hann krefst frávísunar málsins þurfti hann ekki að mæta fyrir dóm til þess að gefa upp afstöðu sína til sakarefnis. Í ákæru á hendur Skúla Tómasi segir að hann sé ákærður fyrir manndráp og brot gegn lögum um heilbrigðisstarfsmenn, en til vara fyrir manndráp af gáleysi og brot gegn lögum um heilbrigðisstarfsmenn, með því að hafa svipt Dönu Jóhannsdóttur lífi. Fimm uppkomin börn Dönu gera bótakröfu á hendur Skúla Tómasi í málinu og þrjú þeirra voru viðstödd þingfestinguna. Eitt þeirra, Eva Hauksdóttir lögmaður ræddi við Vísi að þingfestingu lokinni. „Við erum að tala um grunaðan raðmorðingja“ „Það sem mér finnst skipta mestu máli í þessu máli öllu, það er þessi undarlega staða að læknir er grunaður um manndráp og hann var ekki grunaður um eitt manndráp heldur ellefu. Við erum að tala um grunaðan raðmorðingja, mann sem er grunaður um að hafa banað sjúklingum sínum. Hann er sviptur lækningaleyfi tímabundið og fær svo einhverjar tilslakanir en á meðan þetta mál er í rannsókn, og þetta er búið að taka fimm ár, þá fær maðurinn aftur fullt lækningaleyfi og er ráðinn til starfa hjá Landspítalanum. Er þetta ekkert svolítið skrítið?“ spyr hún. Rétt er að taka fram að upphaflega kom upp grunur um að Skúli Tómas hefði komið að andláti ellefu sjúklinga á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Af þeim ellefu tilvikum fóru sex í formlega rannsókn og rannsókn var felld niður í fimm þeirra. Hefur enga þörf fyrir að pína Skúla Tómas Þá segir hún að það sem hún vonist til að komi út úr málinu sé að Alþingi setji lög til þess að tryggja að svona lagað gerist ekki aftur. Aðstandendur Dönu heitinnar mættu í þingfestinguna.Vísir/Vilhelm „Þetta er bara spurning um það að almenningur geti haft einhverja trú á heilbrigðiskerfinu og að við þurfum ekki að sætta okkur við það að menn sem eru til rannsóknar fyrir manndráp á sjúklingum séu starfandi inni á ríkisspítala. Það er bara ekki í lagi. Mér finnst það vera aðalmálið. Fyrir mig persónulega skiptir það miklu minna máli hvaða refsingu maðurinn fær. Ef að ég mætti ráða þá myndi ég segja að hann ætti að vera vistaður á viðeigandi stofnun, fá frelsi til að skoða málverk og allt það. Ég hef enga þörf fyrir að pína hann neitt. En ríkisvaldið er rosalegur sökudólgur í þessu máli, alveg rosalegur.“
Læknamistök á HSS Dómsmál Heilbrigðismál Mest lesið Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Seldu óvart hjól viðskiptavinar Innlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent „Við erum næstum að kæfa framhaldsskólastigið“ Fréttir Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Fleiri fréttir Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Sjá meira