Uppgjörið og viðtöl: Tindastóll - Grindavík 101 - 109 | Grindavík er Íslandsmeistari Arnar Skúli Atlason skrifar 18. maí 2026 22:07 Vísir/Sigurður Ingi Pálsson Grindavík er Íslandsmeistari karla í körfubolta í fjórða sinn í sögunni eftir sigur í Síkinu í kvöld gegn heimamönnum í liði Tindastóls. Lokatölur 101-109. Grindavík hafði betur í úrslitaeinvíginu 3-1. Fyrsti Íslandsmeistaratitill liðsins síðan árið 2013. Grindavík hóf leikinn í kvöld án Deandre Kane, Ólaf Ólafsson og Daniel Mortensen og því á brattan að sækja fyrir gestina. Tindastóll með fullmannað lið og því voru strákarnir frá Sauðárkróki sigurstranglegri fyrir leik kvöldsins. Það héldu Jeremy Pargo engin bönd í kvöld. 48 skoruð stig takk fyrir.Vísir/Sigurður Ingi Pálsson Grindavík byrjaði betur í upphafi leiks og var það Jeremy Pargo sem stal senunni í upphafi. Hann setti hvert stigið á fætur öðru og Tindastóll gat ekkert gert til að stöðva hann. Grindavík voru að spila frábæra vörn og voru að setja Tindastól í erfiða stöður. Grindavík leiddu eftir fyrsta leikhluta en staðan var 19-31. Grindavík byrjuðu 2 leikhluta betur og juku muninn upp í 15 stig. Þá settist Jeremy Pargo og Tindastóll gekk á lagið og minnkaði munin strax niður í 4 stig. Þá kom Pargo inn á aftur og byrjaði þetta á að skora enn eina körfuna. Grindavík héldu út hálfleikinn og leiddu í hálfleik 45-48. Jeremy Pargo var með 27 stig í hálfleik. Upphafi á seinni hálfleiknum var alveg eins og upphafið á 1 leikhluta. Grindavík byrjaði betur og Tindastóll átti fá svör. Arnór Tristan Helgason sem var varla búinn að sjá gólfið alla seríuna setti 11 stig í fjórðungum og var gjörsamlega frábær. Jordan Semple kom með helling að borðið líka með fráköstum og stigum. Vandræði Tindastóls héldu bara áfram og þeir höfðu lítil svör við sóknarleik Grindavíkur sem settu 36 stig í fjórðungnum. Grindavík leddi 72-84 fyrir loka fjórðunginn. Stemningin í stúkunni var mögnuðVísir/Sigurður Ingi Pálsson Tindastóll byrjaði betur í seinasta fjórðungnum og minnkuðu þeir muninn strax niður í 5 stig. Grindavík stressuðust ekkert upp og héldu áfram að spila sinn leik og aftur juku þeir forystuna og um miðjan fjórðunginn leiddu strákarnir úr Grindavík með 13 stigum. Tindastóll reyndi loka áhlaup og minnkuðu muninn niður í 1 stig. Adomas Drungilas skoraði þrjár 3 stiga körfur á þessum kafla og hjálpaði Tindastól að minnka þetta en Grindavík stóðst þetta áhlaup og var það maðurinn sem átti kvöldið Jeremy Pargo skoraði þriggjastiga körfu sem kláraði leikinn og Tindastóll komst ekki nálægt þeim aftur og gestirnir kláruðu þennan leik 102-109. Grindavík standa því uppi íslandsmeistarar og eru þeir vel að þessu komnir. Þeir voru gjörsamlega frábærir og áttu þennan sigur skilið. Fyrirliðinn Ólafur Ólafsson var búinn að vinna vel fyrir þessari stund.Vísir/Sigurður Ingi Pálsson Íslandsmeistarar Grindavíkur 2026Vísir/Sigurður Ingi Pálsson Sætur koss, gleðin mikil. Þvílík stund fyrir GrindavíkVísir/Sigurður Ingi Pálsson Atvik leiksins Jeremy Pargo var atvik leiksins. Gaurinn var óstöðvandi í kvöld og var valinn leikmaður loka úrslitana. Hann skoraði 10 þriggja stiga körfur í leiknum. Stjörnur Hjá Tindastól var Adomas Drungilas með 26 stig, Taiwo Badmus var með 22 stig og 13 fráköst og Dedrick Basile með 20 stig og 12 stoðsendingar. Hjá Grindavík var Jeremy Pargo sturlaður með 48 stig, 8 fráköst og 8 stoðsendingar, Jordan Semple var með 25 stig, 14 fráköst og 8 stoðsendingar. Arnór Tristan var með 11 stig og komu þau öll í 3 leikhluta. Dómararnir Stóðu sig vel í kvöld. Erfitt að dæma þennan leik og komust þeir vel frá því. Stemmingin og umgjörð Geggjað hérna í kvöld. Allt upp á tíu hjá þeim sem sjá um þetta Gleðin ósvikinVísir/Sigurður Ingi Pálsson Viðtöl Bónus-deild karla Tindastóll UMF Grindavík
Uppgjörið og viðtöl: Tindastóll - Grindavík 101 - 109 | Grindavík er Íslandsmeistari Körfubolti
Uppgjörið og viðtöl: Tindastóll - Grindavík 101 - 109 | Grindavík er Íslandsmeistari Körfubolti