Skálmöld hafði betur fyrir dómi Árni Sæberg skrifar 15. maí 2026 16:50 Skálmöld og Sinfóníuhljómsveit Íslands héldu tónleika í Hörpu í nóvember 2013 og upptökur af tónleikunum leiddu til dómsmáls. Skálmöld Meðlimir Skálmaldar hafi lagt útgáfufyrirtækið Öldu music í deilu um útgáfurétt á plötunni með upptökum frá tónleikum Skálmaldar og Sinfóníuhljómsveitar Íslands.
Meðlimir Skálmaldar, þeir Baldur Ragnarsson, Gunnar Benediktsson, Snæbjörn Ragnarsson, Björgvin Sigurðsson, Jón Geir Jóhannsson og Þráinn Árni Baldvinsson, kröfðust þess að Alda Music viðurkenndi að útgáfurétturinn á plötunni Skálmöld og Sinfó tilheyrði þeim, enda væri litið svo á að útgáfuréttur Öldu væri útrunninn. Aðalmeðferð í málinu fór fram um miðjan apríl. Tónleikaupptakan á plötunni var gerð á feykivinsælum tónleikum Skálmaldar og Sinfóníuhljómsveitarinnar 2013 og kom út í desember það ár. Tónleikarnir hlutu Íslensku tónlistarverðlaunin sem tónlistarviðburður ársins, auk þess sem platan, sem seldist í yfir 7000 eintökum, var tilnefnd sem plata ársins. Í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur, sem kveðinn var upp á miðvikudag, segir að Öldu hafi ekki tekist sönnun um að félagið fari með útgáfurétt að hljómplötunni á grundvelli framsals frá Skálmöld, hvað sem öllu kann að líða um fyrri umsýslu félagsins með þann útgáfurétt og grundvöll hennar. Sena fór áður með útgáfurétt plötunnar en Alda var stofnuð árið 2016 og tók þá við öllum útgáfurétti, upptökurétti, dreifingarsamningum og útgáfum Senu. „Samkvæmt þeim lagareglum og viðmiðum á sviði höfundaréttar sem gilda um framsal höfundaréttar, þar á meðal útgáfurétt, verður stefndi að bera hallann af sönnunarskorti um þetta. Af sömu reglum leiðir að líta verður svo á að öðru jöfnu að útgáfurétturinn hvíli þá nú í höndum stefnenda og hefur þar jafnframt verið hafnað öðrum málsástæðum eða röksemdum stefnda gegn viðurkenningarkröfu stefnenda um útgáfurétt þeirra að hljómplötunni,“ segir í dóminum. Kröfum Skálmaldarmanna um skaðabætur var aftur á móti vísað frá dómi þar sem ekki var sýnt fram á að þeir hefðu orðið fyrir tjóni. Þá var Alda sýknuð af kröfum þeirra um miskabætur.
Dómsmál Tónlist Höfundar- og hugverkaréttur Sinfóníuhljómsveit Íslands Mest lesið Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Erlent Vill nýjan Úkraínuforseta Erlent Útskrifuð af sjúkrahúsi og send aftur í fangelsið Erlent Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar Innlent Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Innlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Lést eftir árás tígrisdýrs í dýragarði Erlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Fleiri fréttir Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Sjá meira