Egypta­land - Ís­land 27-30 | Tveggja sigra ferð til Kaíró

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Orri Freyr Þorkelsson skoraði þrjú mörk gegn Egyptalandi í dag.
Orri Freyr Þorkelsson skoraði þrjú mörk gegn Egyptalandi í dag. Vísir/Getty

Íslenska karlalandsliðið í handbolta vann þriggja marka sigur á Egyptalandi, 27-30, í seinni vináttulandsleik liðanna í Kaíró í dag. Íslendingar voru allan tímann með undirtökin í leiknum og sigurinn var öruggari en lokatölurnar gefa til kynna en Egyptar skoruðu síðustu þrjú mörk leiksins.

Egyptar leiddu aðeins einu sinni í leiknum, í stöðunni 5-4, og áttu í miklum vandræðum í sókninni gegn öflugri íslenskri vörn. Ísak Steinsson og Jón Þórarinn Þorsteinsson léku sitt hvorn hálfleikinn í marki Íslands og vörðu samtals tuttugu skot.

Ellefu leikmenn Íslands komust á blað í leiknum. Arnar Freyr Arnarsson, Þorsteinn Leó Gunnarsson og Reynir Þór Stefánsson voru markahæstir með fjögur mörk hver.

Fjölmarga sterka leikmenn vantaði í íslenska liðið í leikjunum tveimur gegn Egyptalandi sem unnust báðir. Breiddin í íslenska hópnum er hins vegar mikil eins og sýndi sig bæði í dag og á miðvikudaginn.

Xavier Pascual, þjálfari Egyptalands, hvíldi marga af sterkustu leikmönnum í leiknum í dag og samhæfingin var augljóslega ekki mikil í egypska sóknarleiknum.

Ísak byrjaði í íslenska markinu og heldur betur greip gæsina. Hann varði tólf skot í fyrri hálfleik, eða rúmlega helming þeirra skota sem hann fékk á sig. Á meðan varði Essam Eltayar aðeins þrjú skot (nítján prósent) í marki Egyptalands.

Í ljósi þess mátti íslenska liðið alveg vera fúlt að vera ekki með meira en tveggja marka forskot í hálfleik, 11-13. Mestur varð munurinn í fyrri hálfleik fjögur mörk en Egyptar héldu sér í námunda við Íslendinga þrátt fyrir að vera aðeins með 44 prósent skotnýtingu.

Níu leikmenn Íslands skoruðu í fyrri hálfleik og vörnin var mjög öflug.

Íslenska liðið byrjaði seinni hálfleikinn af krafti, skoraði fyrstu þrjú mörk hans og náði fimm marka forskoti, 11-16. Jón Þórarinn gaf Ísaki lítið eftir í markvörslunni og í sókninni létu margir til sín taka.

Egyptum voru mislagðar hendur í sóknarleiknum og töpuðu boltanum margoft. Óðinn Þór Ríkharðsson kom Íslendingum sex mörkum yfir, 15-21, í fyrsta sinn þegar átján mínútur voru til leiksloka.

Ísland hélt uppteknum hætti og var með góða stjórn á leiknum, allt þar til á lokamínútum þegar losarabragur kom á leik liðsins.

Orri Freyr Þorkelsson kom Íslendingum í 24-30 með sínu þriðja marki. En Egyptar skoruðu þrjú mörk á örskömmum tíma undir lokin og fyrir vikið munaði aðeins þremur mörkum á liðunum, 27-30, þegar uppi var staðið.

Sigur íslenska liðsins var þó mun öruggari en lokatölurnar gefa til kynna. Íslendingar vönduðu ekki nægilega til verka í sókninni undir blálokin og þá fengu þeir fjórar brottvísanir á síðustu níu mínútum leiksins.

Eftir stendur þó góð frammistaða og tveir sterkir sigrar á liði sem endaði í 5. sæti á síðasta heimsmeistaramóti. Allir fengu að spila talsvert í leikjunum tveimur og þeir sýndu að breiddin í íslenskum handbolta er gríðarlega mikil.

Sérstaklega var ánægjulegt að sjá frammistöðu Ísaks og Jóns Þórarins í dag en þeir vörðu 43 prósent þeirra skota sem þeir fengu á sig í leiknum.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira