Innlent

Loka­tölur í Rang­ár­þingi eystra: Náðu hreinum meiri­hluta

Ritstjórn skrifar
Ný sveitarstjórn Rangárþings eystra.
Ný sveitarstjórn Rangárþings eystra. vísir/sara

Sjálfstæðisflokkurinn vann sigur í sveitarstjórnarkosningunum í Rangárþingi eystra í dag. Flokkurinn náði þar hreinum meirihluta – fjóra fulltrúa – en Framsókn náði tveimur og N-listinn einum.

Á kjörskrá í Rangárþingi eystra eru 1.547 manns. Sjö fulltrúar eiga sæti í bæjarstjórninni, en í Rangárþingi eystra er meðal annars að Hvolsvöll.

Kosningnarnar fóru á þessa leið:

  • B listi - Framsókn og aðrir framfarasinnar 28,2 prósent og tvo fulltrúa. Missa einn fulltrúa.
  • D listi - D-listinn og aðrir lýðræðissinnar 55,1 prósent og fjóra fulltrúa. Bætir við sig manni.
  • N listi - N-listinn 16,7 prósent og einn mann. Halda sínum manni

Eftir sveitarstjórnarkosningarnar 2022 mynduðu N-listans og D-listans meirihluta og hefur Anton Kári Halldórsson Sjálfstæðisflokki gegnt embætti sveitarstjóra á kjörtímabilinu.

Eftirfarandi fulltrúar eiga nú sæti í sveitarstjórn Rangárþings eystra:

  • Rafn Bergsson (B)
  • Bjarki Oddsson (B)
  • Anton Kári Halldórsson (D)
  • Aðalbjörg Rún Ásgeirsdóttir (D)
  • Andri Már Óskarsson (D)
  • Hulda Dóra Eysteinsdóttir (D)
  • Tómas Birgir Magnússon (N)

Hér að neðan má sjá lokatölurnar í Rangárþingi eystra:

Á kjörskrá í Rangárþingi eystra eru 1.547 manns. Vísir


Tengdar fréttir

Lokatölur úr Fjalla­byggð: Meirihlutinn heldur velli

Sjálfstæðisflokkurinn bætir við sig einum fulltrúa frá síðustu kosningum og er með þrjá. Nýr listi, Listi fyrir heildina fær tvo. Listi Jafnaðarmannafélags Fjallabyggðar fær einnig tvo. Jafnaðarmannafélagið og Sjálfstæðisflokkur mynda í dag meirihluta og heldur hann velli samkvæmt þessu.

Lokatölur úr Fjalla­byggð: Meirihlutinn heldur velli

Sjálfstæðisflokkurinn bætir við sig einum fulltrúa frá síðustu kosningum og er með þrjá. Nýr listi, Listi fyrir heildina fær tvo. Listi Jafnaðarmannafélags Fjallabyggðar fær einnig tvo. Jafnaðarmannafélagið og Sjálfstæðisflokkur mynda í dag meirihluta og heldur hann velli samkvæmt þessu.

Lokatölur í Suður­nesja­bæ: Samfylkingin stærst

Listi Samfylkingar og óháðra fær þrjá bæjarfulltrúa í Suðurnesjabæ og listi Framsókn tvo samkvæmt lokatölum í sveitarstjórnarkosningum. Sjálfstæðisflokkurinn og Miðflokkur fá tvo fulltrúa hvor.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×