Handbolti

Átta mörk Óðins en gullið að renna úr greipum

Sindri Sverrisson skrifar
Óðinn Þór Ríkharðsson raðaði inn mörkum í kvöld en það dugði ekki til.
Óðinn Þór Ríkharðsson raðaði inn mörkum í kvöld en það dugði ekki til. Getty/Sina Schuldt

Óðinn Þór Ríkharðsson og félagar í Kadetten Schaffhausen eru komnir í afar erfiða stöðu í baráttunni um svissneska meistaratitilinn í handbolta eftir tap í kvöld.

Kadetten tapaði fyrsta leik úrslitaeinvígisins við Kriens, 37-33 á heimavelli, og svo aftur á útivelli í kvöld, 41-36.

Óðinn stóð fyrir sínu hjá Kadetten og klikkaði ekki á einu einasta skoti í kvöld, og var annar tveggja markahæstu leikmanna liðsins með átta mörk. Þar af voru þrjú af vítalínunni.

Staðan var jöfn í hálfleik, 20-20, en heimamenn náðu svo fljótt 3-4 marka forskoti og komust mest sjö mörkum yfir, 39-32.

Liðin mætast aftur á laugardaginn og þar verður Kadetten einfaldlega að vinna, og liðið þarf raunar núna að vinna þrjá leiki í röð til þess að vinna meistaratitilinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×