Sinner tók fram úr goðsögnum með glæstum sigri Ágúst Orri Arnarson skrifar 3. maí 2026 21:54 Sigurinn í dag var enn ein rós í hnappagat Sinner. David Ramos/Getty Images Jannik Sinner skráði sig á spjöld sögunnar með sigrinum gegn Alexander Zerev í úrslitaleik opna meistaramótsins í Madríd.
Þetta var fimmta ATP Masters 1000 mótið í röð sem Sinner vinnur en engum hefur áður tekist það. Rafael Nadal, Roger Federer og Novak Djokovic unnu allir fjögur mót í röð á sínum ferlum en Sinner toppaði goðsagnirnar. Sinner er nú aðeins þremur sigrum frá Djokovic sem hefur unnið flest ATP Masters 1000 mót allra eða 31 talsins. „Þetta er þýðingarmikið en á sama tíma, eins og ég hef alltaf sagt, get ég ekki borið mig saman við Rafa, Roger eða Novak. Það sem þeir afrekuðu er ótrúlegt. Ég spila ekki fyrir metin heldur sjálfan mig, fjölskylduna og liðið sem stendur mér að baki. Auðvitað er þetta samt þýðingarmikið, þetta eru stórar tölur,“ sagði Sinner eftir sigurinn í dag. Sigurinn í dag var líka alveg sérlega öruggur. Það tók Sinner níu mínútur að ná 3-0 forystu, eftir sautján mínútur var hann kominn með 5-0 forystu og leiknum var lokið eftir aðeins 58 mínútur. Zverev after losing to Sinner in Madrid final“First of all super sorry for the final. It was not my best day. But then of course congratulations to Jannik. Best player in the world by far at the moment. Really no chance for most of the people, for us at the moment against you.… pic.twitter.com/uPujsDkWMf— The Tennis Letter (@TheTennisLetter) May 3, 2026 Ef Sinner heldur sigurgöngunni áfram og stendur uppi sem sigurvegari á heimavelli í Róm í næstu viku á opna ítalska meistaramótinu verður hann annar á eftir Djokovic til að vinna öll níu mótin á ATP mótaröðinni. Djokovic tókst það þegar hann var 31 árs en Sinner aðeins 24 ára. Leiðin virðist líka vera greið fyrir Sinner því hans helsti keppinautur, Carlos Alcaraz, er meiddur og verður frá keppni fram yfir Opna franska að minnsta kosti. „Hlutirnir geta breyst hratt. Það eru margir mjög, mjög öflugir tennisspilarar þarna úti og þeir reyna alltaf að vinna okkur. Oftast er pressan á mér en ég reyni að höndla það. Novak vann mig í Ástralíu [í undanúrslitum]. Við sjáum til, ég veit ekki hvað mun gerast.“ The first man *EVER* to win five consecutive Masters 1000 titles:🇫🇷 Paris🇺🇸 Indian Wells🇺🇸 Miami🇲🇨 Monte Carlo🇪🇸 Madrid@janniksin #MMOpen pic.twitter.com/sX9Y07eei5— Tennis TV (@TennisTV) May 3, 2026
Tennis Mest lesið Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Handbolti Falko farinn frá ÍR Körfubolti Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior Fótbolti Ofursunnudagur á Sýn Sport Sport Stefán og Alfons gátu ekki klárað leikinn vegna óeirða Fótbolti Arnar Freyr og félagar í Flensburg áfram með fullt hús Handbolti ,,Eftir þessar síðustu 20 mínútur held ég að ég þurfi bara að leggjast niður.” Íslenski boltinn Rúst hjá Rosenborg Fótbolti Framarar skoruðu 38 mörk og unnu Handbolti Fleiri fréttir Modric ætlar að halda áfram með Króatíu Ofursunnudagur á Sýn Sport Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Falko farinn frá ÍR Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val ,,Eftir þessar síðustu 20 mínútur held ég að ég þurfi bara að leggjast niður.” Fred framlengir við Fram til 2028 Stefán og Alfons gátu ekki klárað leikinn vegna óeirða Arnar Freyr og félagar í Flensburg áfram með fullt hús Schalke náði í stig gegn Bayern Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Selfoss þakkaði sæti í Olís-deildinni með því að vinna meistarana í fyrsta leik Framarar skoruðu 38 mörk og unnu Raphinha nýr fyrirliði Barcelona Rúst hjá Rosenborg Arbeloa í brasi Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Uppgjörið og viðtal: Keflavík - Valur 1-2 | Valsmenn héldu út Gasly óvænt á ráspól í fyrsta sinn Misjafn árangur Íslendingaliðanna Uppgjörið: ÍBV-Fram 2-3 | Fram sneri taflinu við í Eyjum Eyjakonur unnu opnunarleikinn Leikur Aftureldingar og Víkings kláraður á morgun 16 ára gamalt myndskeið af Messi vekur athygli Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Sjá meira