Jenner og Elordi verið að hittast síðustu mánuði Magnús Jochum Pálsson skrifar 22. apríl 2026 08:37 Kendall Jenner og Jacob Elordi hafa verið að deita síðan í febrúar og sáust saman á Coachella nýverið þannig það er alvara að færast í leikinn. Getty Fyrirsætan Kendall Jenner og leikarinn Jacob Elordi hafa verið að hittast undanfarna mánuði án þess að láta mikið fyrir því fara. Orðrómur um vaxandi rómans þeirra hefur orðið sífellt háværarri síðustu vikur.
Dægurmálamiðillinn People er einn þeirra fjölmörgu miðla sem fjallar um samband Jenner og Elordi og hefur eftir heimildarmanni að „þau hafi verið að hanga og kynnst hvoru öðru síðustu mánuði“. Orðrómurinn um samband hinnar þrítugu Jenner og hins 28 ára Elordi náði hámarki fyrstu helgina Coachella-tónlistarhátíðarinnar um miðjan apríl þar sem þau voru mikið saman. Frásögn nafnlauss Coachella-gests um að þau hefðu verið í hörkusleik í eftirpartýi hjá Justin Bieber kynti heldur betur undir það tal. Breska götublaðið Daily Mailhefur líka fjallað um málið og segir parið hafa verið saman síðan í febrúar. Þau hafi bæði verið stödd í Los Angeles síðustu mánuði sem hafi hjálpað mikið og sömuleiðis að Kylie Jenner, yngri systir Kendall, hafi komið þeim saman. Timothee Chalamet og Kylie Jenner hafa rekist reglulega á Elordi á verðlaunahátíðum síðustu mánuði og því ákvað Jenner að koma honum saman með stóru systur sinni.Getty Hvorki Elordi né Jenner hafa tjáð sig um málið. Þau hafa hins vegar þekkst lengi, Elordi mætti í afmæli Jenner árið 2022 og fyrr á árinu sást til þeirra í djúpum samræðum í Óskarspartýi Vanity Fair. Jenner var síðast í sambandi með tónlistarmanninum Bad Bunny en þau hættu saman í desember 2023 eftir rúmlega ár saman. Þar áður voru Jenner og körfuboltamaðurinn Devin Booker í tvö ár saman frá 2020 til 2022. Hún hefur líka deitað Ben Simmons, Blake Griffin, A$AP Rocky og Harry Styles. Elordi var í fjögur ár, frá 2021 til 2025, í stormasömu sambandi með Youtube-áhrifavaldinum og menningarbarninu Oliviu Jade Giannulli. Þar áður var hann í rúmlega árs sambandi með fyrirsætunni Kaiu Gerber frá 2020 til 2021. Fyrir það var hann orðaður við Zendayu og deitaði meðleikkonu sína Joey King.
Bandaríkin Ástin og lífið Hollywood Bíó og sjónvarp Tengdar fréttir Kendall Jenner og Bad Bunny hætt saman Ofurfyrirsætan og raunveruleikastjarnan Kendall Jenner og rapparinn Bad Bunny eru hætt saman ef marka má heimildir erlendra slúðurmiðla. 18. desember 2023 00:10 Mest lesið „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Lífið Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Lífið Steiney frumsýnir kærastann Lífið Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Lífið Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Lífið Loksins sást til hjónanna Lífið Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Lífið Björk og Yara nýtt par Lífið Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Lífið Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Lífið Fleiri fréttir Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Sjá meira
Kendall Jenner og Bad Bunny hætt saman Ofurfyrirsætan og raunveruleikastjarnan Kendall Jenner og rapparinn Bad Bunny eru hætt saman ef marka má heimildir erlendra slúðurmiðla. 18. desember 2023 00:10