Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Kristján Már Unnarsson skrifar 21. apríl 2026 22:10 Hildigunnur H. H. Thorsteinsson er veðurstofustjóri. Sigurjón Ólason Líkur á hraunflæði í byggð eru metnar litlar á meginhluta höfuðborgarsvæðisins í nýju áhættumati Veðurstofu Íslands vegna eldfjallavár á Reykjanesskaga. Tvö bæjarfélög, Grindavík og Hveragerði, eru talin í mestri hættu sem og hluti Hafnarfjarðar.
Í kvöldfréttum Sýnar er rætt við veðurstofustjóra og rýnt í kort Veðurstofunnar um líkur á gosupptökum. Á því sést að Grindavík er eini þéttbýlisstaðurinn með miklar líkur á gosopnun. Hins vegar eru fjórar mikilvægar virkjanir inni á skilgreindum eldgosasvæðum; Reykjanesvirkjun, Svartsengi, Hellisheiðarvirkjun og Nesjavallavirkjun. Mestar líkur á gosupptökum á Reykjanesskaga. Litir tákna mismiklar líkur, frá gráu upp í fjólublátt.Veðurstofan Annað kort sýnir líkur á hraunflæði miðað við meðalstór hraun. Reynsla er þegar fengin frá Grindavík og Svartsengi. En vert er að taka eftir öðrum svæðum á kortinu eins og Vogum, Hvassahrauni, Hafnarfirði og Hengilssvæðinu, bæði við Hveradali og á Nesjavöllum. Veðurstofan skilgreinir þrjá þéttbýlisstaði sem eru í mestri hættu á að fá hraunrennsli yfir byggð. Það eru Grindavík, hluti Hafnarfjarðar en einnig Hveragerði, sökum þess að hraun frá eldstöðvum í Henglinum og Hrómundartindi eru talin geta runnið niður í Ölfus, eins og lýst er hér í sjónvarpsfrétt Sýnar: En kannski góðu fréttirnar eru þær að fyrir utan hluta Hafnarfjarðar er meginhluti höfuðborgarsvæðisins talinn í mjög lítilli hættu. Það eru þó sýndar fimm líklegar hraunrennslisleiðir í átt að Hafnarfirði og Garðabæ og niður Elliðaárdal. Eldgosin við Grindavík leiddu til þess að Veðurstofunni var fyrir tveimur árum falið af ráðherra að vinna langtímaáhættumat vegna jarðskjálfta, eldgosa og annarrar jarðvár á Reykjanesskaga. Skýrslurnar tvær sem birtar voru í dag bera heitin Hraunvá á Reykjanesskaga og Hraunvá á höfuðborgarsvæðinu. Fimm líklegustu hraunrennslisleiðir í átt að byggðinni á Reykjavíkursvæðinu.Veðurstofan Hildigunnur H. H. Thorsteinsson veðurstofustjóri segir að með þeim sé þó hvorki verið að spá því hvar næst muni gjósa né hvenær. „Við erum ekki að segja að þetta sé gos sem komi á morgun eða á næsta ári. Við erum að gera okkur undirbúin fyrir að við séum á gosskeiði á þessum skaga. Það getur þýtt gos á næstu áratugum á einhverju af þessum svæðum og við þurfum að vera tilbúin þegar það gerist.“ Dökkblár og fjólublár litur tákna mestar líkur á hraunflæði á Reykjanesskaga fyrir meðalstór hraun. Á myndinni má sjá lífæðar samfélaga á svæðinu, það er helstu raflínur, vatnslagnir fyrir heitt og kalt vatn og vegi.Veðurstofan Hildigunnur segir að í raun komi fátt á óvart í skýrslunum. „Þetta eru allt staðir sem við höfum talað um áður. Við höfum byggt á hrauni áður, höfum skipulagt svæði nálægt hraunbreiðum, þannig að það eru svæðin sem að við erum að benda á aftur núna.“ Horft úr Vallahverfi í Hafnarfirði til mögulegra eldgosasvæða.Vísir Skýrslunum er ætlað að gagnast meðal annars við skipulagningu byggða. „Og svo líka að horfa á þannig að við séum tilbúin þegar váin steðjar að. Eða eru einhverjar mótvægisaðgerðir sem við viljum undirbúa? Erum við með flóttaleiðir eða rýmingaráætlanir rétt skipulagðar? Ég veit að þetta er starf sem er nú þegar hafið í almannavarnanefndum á svæðinu,“ segir veðurstofustjóri. Skýrslan tekur einnig á mikilvægum innviðum, eins og vegum og virkjunum. Séð til Hengils frá Þingvallavatni. Nesjavallavirkjun í krikanum til vinstri.Einar Árnason. „Það eru svo sem fjórar virkjanir á svæðinu sem eru á háhitasvæðum. Það er ástæða fyrir að við erum með jarðhitavirkjanirnar þar sem þær eru. En við þurfum að skoða hvernig gerum við þær öruggari. Og sömuleiðis með þéttbýlin sem liggja annaðhvort nálægt gosupptökum eða hraun getur flætt inn á. Við þurfum að skoða hvernig við ætlum að takast á við vána ef hún steðjar að okkur,“ segir Hildigunnur.
Eldgos á Reykjanesskaga Eldgos og jarðhræringar Almannavarnir Vísindi Grindavík Hafnarfjörður Hveragerði Ölfus Reykjavík Garðabær Vogar Orkumál Samgöngur Vatnsból Tengdar fréttir Grindavík og Hveragerði talin í mestri hættu vegna eldgosa Tvö bæjarfélög suðvestanlands, Grindavík og Hveragerði, eru á svæðum á efsta hættustigi í nýju áhættumati Veðurstofu Íslands vegna eldfjallavár á Reykjanesskaga. Hluti Hafnarfjarðar er mjög nærri svæðum þar sem mjög mikil hætta er á hraunflæði. Líkur á gosupptökum eða hraunflæði eru annars metnar litlar á meginhluta höfuðborgarsvæðisins. Allar jarðvarmavirkjanir á Reykjanesfjallgarði; virkjanirnar á Reykjanesi, í Svartsengi, á Hellisheiði og á Nesjavöllum, eru staðsettar á svæðum sem flokkast á efsta hættustigi. 21. apríl 2026 15:30 Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Erlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent Katla skelfur Innlent „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Innlent Fleiri fréttir Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Sjá meira
Grindavík og Hveragerði talin í mestri hættu vegna eldgosa Tvö bæjarfélög suðvestanlands, Grindavík og Hveragerði, eru á svæðum á efsta hættustigi í nýju áhættumati Veðurstofu Íslands vegna eldfjallavár á Reykjanesskaga. Hluti Hafnarfjarðar er mjög nærri svæðum þar sem mjög mikil hætta er á hraunflæði. Líkur á gosupptökum eða hraunflæði eru annars metnar litlar á meginhluta höfuðborgarsvæðisins. Allar jarðvarmavirkjanir á Reykjanesfjallgarði; virkjanirnar á Reykjanesi, í Svartsengi, á Hellisheiði og á Nesjavöllum, eru staðsettar á svæðum sem flokkast á efsta hættustigi. 21. apríl 2026 15:30