„Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt“ Kristján Már Unnarsson skrifar 14. apríl 2026 21:54 Jón Grétar Herjólfsson er rekstrarstjóri raftæknideildar Keflavíkurflugvallar. Egill Aðalsteinsson „Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt, sérstaklega ef það er myrkur,“ svarar Jón Grétar Herjólfsson, rekstrarstjóri raftæknideildar Keflavíkurflugvallar, og hlær þegar við spyrjum um mikilvægi flugbrautaljósanna í rekstri vallarins. Flugmennirnir treysta á ljósadýrðina til að hitta á réttan stað.
Tekist hefur að draga úr orkunotkun flugbrautaljósa Keflavíkurflugvallar um allt að áttatíu prósent með nýrri tækni. Ljósafjöldinn á brautunum skiptir þúsundum. Í kvöldfréttum Sýnar má sjá flugvél Icelandair frá New York nálgast Keflavíkurflugvöll snemma að morgni. Ljósadýrð flugbrautarinnar birtist sem flugmennirnir horfa á í lokaaðfluginu til að hitta á réttan stað á brautinni. Svona birtist ljósadýrð Keflavíkurflugvallar flugmönnum Icelandair-vélar rétt fyrir lendingu árla morguns.Egill Aðalsteinsson Tíu manna raftæknideild Keflavíkurflugvallar undir stjórn Jóns Grétars Herjólfssonar annast brautaljósin. Á stórum skjá sýnir Jón Grétar okkur yfirlitsmynd af flugvellinum. Á henni sést hvaða flugbraut er í notkun hverju sinni og á hvaða brautaljósum er kveikt. „Þetta eru sem sagt ljósin sem eru í notkun, miðlínan og kantljós. Og hérna sést aðflugsbúnaður sem er í notkun á hverjum enda, sem er bæði „localizer“ og „glideslope“,“ segir Jón Grétar. Við spyrjum hvort það sé ekki einhver mikilvægasti rekstrarþáttur flugvallarins að hafa brautaljósin í lagi. „Jú, jú. Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt, sérstaklega ef það er myrkur,“ svarar Jón Grétar og hlær. Jón Grétar sýnir yfirlitsmynd af ljósabúnaði flugbrautanna í Keflavík.Egill Aðalsteinsson Í sjónvarpsfréttinni sjáum við flugstjóra Airbus þotu Play lenda í nýdimmri þoku. Áhorfendur geta séð aðflugsljósin birtast flugstjóranum áður en hann sér sjálfa flugbrautina. Ljósaröðin við brautina er ein helsta forsenda þess að flugmönnum leyfist að lenda flugvélum í Keflavík allt niður í þrjátíu metra skýjahæð, sem eykur verulega notagildi vallarins og rekstraröryggi flugsins. Siggeir Þór Siggeirsson, flugstjóri á Airbus-þotu Play, sér upplýsta flugbrautina í Keflavík nýkominn út úr dimmri þoku. Skýin sjást liggja lágt yfir brautinni.Egill Aðalsteinsson Og það er enginn smáræðisfjöldi ljósa sem fylgir flugbrautunum. „Þau eru ábyggilega einhvers staðar í kringum fimm til sexþúsund, svona þegar allt er talið.“ Með nýrri tækni hefur tekist að draga úr rafmagnseyðslu brautarljósanna um allt að áttatíu prósent á undanförnum árum, að sögn Jóns Grétars. Endurnýjun ljósanna hófst árið 2016 og stendur enn yfir. „Við náttúrulega erum búnir að færa okkur svolítið mikið í LED ljós. Það er svona það nýjasta hjá okkur,“ segir Jón Grétar Herjólfsson, rekstrarstjóri raftæknideildar Keflavíkurflugvallar, hér í frétt Sýnar: Fjallað er um Keflavíkurflugvöll í nítjánda þætti Flugþjóðarinnar. Áskrifendur geta séð alla þættina hvenær sem er á streymisveitunni Sýn+. Í kynningarstiklu má sjá dæmi um umfjöllunarefni þáttanna sjö í þriðju seríu Flugþjóðarinnar: Kynningarstiklu fyrir seríu númer tvö má sjá hér: Kynningarstiklu fyrstu seríu má sjá hér:
Flugþjóðin Keflavíkurflugvöllur Fréttir af flugi Icelandair Rafmagn Tengdar fréttir Þriðja flugbrautin í Keflavík „rosalega dýr framkvæmd“ Isavia hefur frestað áformum um að bæta við þriðju flugbrautinni á Keflavíkurflugvelli vegna kostnaðar. Þá hafa hugmyndir um að taka aflagða flugbraut í notkun á ný verið slegnar út af borðinu. 8. apríl 2026 22:00 Smíða tengibyggingu sem verður hjarta Leifsstöðvar Ein stærsta framkvæmd í landinu á næstu árum verður enn frekari stækkun flugstöðvarinnar á Keflavíkurflugvelli, sem Isavia hyggst hefja á þessu ári. Þetta er smíði 22 milljarða króna tengibyggingar sem verða á hjarta Leifsstöðvar. 10. febrúar 2026 22:33 Aldrei neinn afsláttur gefinn í flugprófunum Prófanir á flugleiðsögutækjum annarra þjóða eru ein sérhæfðasta útrás íslenska fluggeirans. Þannig er flugvél Isavia nýtt í mælingum fyrir Grænlendinga, Færeyinga og Norðmenn og íslenskir flugprófanamenn gegna um þessar mundir lykilhlutverki í úttekt á nýjum flugvöllum Grænlands. 28. september 2025 21:11 Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Veður Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Fleiri fréttir Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Sjá meira
Þriðja flugbrautin í Keflavík „rosalega dýr framkvæmd“ Isavia hefur frestað áformum um að bæta við þriðju flugbrautinni á Keflavíkurflugvelli vegna kostnaðar. Þá hafa hugmyndir um að taka aflagða flugbraut í notkun á ný verið slegnar út af borðinu. 8. apríl 2026 22:00
Smíða tengibyggingu sem verður hjarta Leifsstöðvar Ein stærsta framkvæmd í landinu á næstu árum verður enn frekari stækkun flugstöðvarinnar á Keflavíkurflugvelli, sem Isavia hyggst hefja á þessu ári. Þetta er smíði 22 milljarða króna tengibyggingar sem verða á hjarta Leifsstöðvar. 10. febrúar 2026 22:33
Aldrei neinn afsláttur gefinn í flugprófunum Prófanir á flugleiðsögutækjum annarra þjóða eru ein sérhæfðasta útrás íslenska fluggeirans. Þannig er flugvél Isavia nýtt í mælingum fyrir Grænlendinga, Færeyinga og Norðmenn og íslenskir flugprófanamenn gegna um þessar mundir lykilhlutverki í úttekt á nýjum flugvöllum Grænlands. 28. september 2025 21:11