Gera ekki aðra atlögu Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 13. apríl 2026 13:47 Íris Helga opnaði á sína hlið málanna í hlaðvarpi á vegum Brotkasts árið 2025. Skjáskot Lögreglustjórinn á Suðurnesjum ætlar ekki að kæra niðurstöðu Héraðsdóms Reykjaness sem hafnaði kröfu um fjögurra daga gæsluvarðhald yfir grunuðum eltihrelli á laugardaginn. Íris Helga Jónatansdóttir er sökuð um að hafa keypt dánartilkynningu um lifandi karlmann og fengið hana birta í Morgunblaðinu síðastliðinn föstudag.
Margrét Kristín Pálsdóttir, lögreglustjóri á Suðurnesjum, staðfestir ákvörðun embættisins að kæra ekki úrskurðinn. Hún segir rannsókn á hinum grunaða í málinu á lokametrunum. Sjö menn hafa kært Írisi fyrir umsáturseinelti og þeirra á meðal Sölvi Guðmundsson sem var öllum að óvörum tilkynntur látinn í föstudagsblaði Morgunblaðsins. „Kæru ættingjar og vinir, þið sem hafið verið að senda skilaboð og athuga hvort ég sé í alvöru dáinn, þá er svo alls ekki og er ég sprelllifandi,“ sagði Sölvi í færslu á Facebook. Þau Íris voru að hans sögn í árslöngu sambandi sem lauk í byrjun mars 2024. Samkvæmt heimildum fréttastofu féll krafa lögreglu um gæsluvarðhald meðal annars á því að lögregla hafði ekki aflað sér sannana fyrir því að Íris hefði keypt dánartilkynninguna í Morgunblaðinu. Tilkynningarnar eru sendar inn rafrænt á vef Morgunblaðsins og greiða má með kreditkorti eða með því að fá sendan reikning sem birtist í heimabanka. „Með öllum birtingarbeiðnum þurfa að fylgja upplýsingar um kennitölu greiðanda, netfang og símanúmer,“ segir á vef Morgunblaðsins.
Lögreglumál Mál Írisar Helgu Jónatansdóttur Tengdar fréttir Gæsluvarðhaldskröfu yfir Írisi hafnað Dómari hafnaði kröfu um gæsluvarðhald yfir Írisi Helgu Jónatansdóttur, meintum eltihrelli, í Héraðsdómi Reykjaness í morgun. Farið var fram á fjögurra daga varðhald. 11. apríl 2026 10:12 Kona handtekin vegna dánartilkynningar í Morgunblaðinu Lögreglan á Suðurnesjum hefur handtekið konu í þágu rannsóknar á umsáturseinelti í kjölfar birtingar á dánartilkynningu í Morgunblaðinu nú í morgun. Lögregla ætlar að fara fram á gæsluvarðhald yfir konunni í dag. 10. apríl 2026 12:33 Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Vilja hækka samræðisaldur Innlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Erlent Fleiri fréttir Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Sjá meira
Gæsluvarðhaldskröfu yfir Írisi hafnað Dómari hafnaði kröfu um gæsluvarðhald yfir Írisi Helgu Jónatansdóttur, meintum eltihrelli, í Héraðsdómi Reykjaness í morgun. Farið var fram á fjögurra daga varðhald. 11. apríl 2026 10:12
Kona handtekin vegna dánartilkynningar í Morgunblaðinu Lögreglan á Suðurnesjum hefur handtekið konu í þágu rannsóknar á umsáturseinelti í kjölfar birtingar á dánartilkynningu í Morgunblaðinu nú í morgun. Lögregla ætlar að fara fram á gæsluvarðhald yfir konunni í dag. 10. apríl 2026 12:33