Uppgjörið: KA - Stjarnan 2-3 | Flugu heim með stigin þrjú eftir fjörugan leik Árni Gísli Magnússon skrifar 12. apríl 2026 20:45 Garðbæingar gátu fagnað í dag. Stjarnan gerði góða ferð norður á Akureyri í fyrstu umferð Bestu deildar karla í dag. Þar mættu þeir KA og höfðu að lokum 2-3 sigur eftir skemmtilegan leik. Stjörnumenn byrjuðu leikinn mun betur og komust yfir strax á þriðju mínútu eftir sofandahátt í varnarleik heimamanna sem olli því að Sindri Þór Ingimarsson náði góðri sendingu inn fyrir á Emil Atlason sem kláraði færið sitt vel einn gegn Steinþóri í markinu. Stuttu síðar kom Samuel Karl Kroon boltnaum yfir marklínu Stjörnunnar af miklu harðfylgi eftir fína sókn en rangstaða dæmd og markið ekki gilt. KA menn voru mjög ósáttir og umdeilt hvort um rangstöðu hafi í raun verið að ræða. Stjörnumenn gengu á lagið og bættu við öðru marki á 13. mínútu og var þar að verki Örvar Eggertsson eftir sendingu frá Birni Snæ Ingasyni en Örvar var einn og óvaldaður á fjærstönginni og eftirleikurinn auðveldur. Stjarnan komin í tveggja marka forystu. KA liðið bætti í eftir þetta mark og skilaði bætt spilamennska sér í marki eftir rúman hálftíma leik. KA menn spiluðu þá vel sín á milli eftir hornspyrnu og Guðjón Ernir Hrafnkelsson sendi háa fyrirgjöf yfir á fjærstöngina þar sem Birgir Baldvinsson mætti og skallaði boltann í fjærhornið. Staðan í hálfleik 1-2. KA byrjaði síðari hálfleik vel og fengu tvö fín færi sem fóru forgörðum. Stjörnumenn nýttu sér það til fullnustu með því að bæta við þriðja markinu á 56. mínútu eftir slæm mistök frá miðverðinum unga, Markúsi Mána Péturssyni, en tók þá við boltanum inn í eigin markteig en átti slæma snertingu og boltinn fór beint fyrir fæturna á Emil Atlasyni sem gat ekki annað en skorað. KA minnkaði muninn strax í næstu sókn nánast og var þar að verki Jakob Héðinn Róbertsson. Hann slapp í gegnum vörn Stjörnunnar eftir frábæra stungusendingu frá Jeppe Pedersen. Heimamenn vildu ólmir jafna leikinn og bönkuðu fast á dyr gestanna. Samuel Karl Kroon fékk sannkallað dauðafæri inn á markteig á 75. mínútu en skóflaði boltanum á ótrúlegan hátt yfir markið. Það fór svo að Stjarnan sigldi sigrinum heim. Lokatölur 2-3. Atvik leiksins Samuel Karl Kroon virtist hafa jafnað leikinn í 1-1 á 10. mínútu þegar hann kom boltanum í netið af miklu harðfylgi en rangstaða var dæmd sem KA menn voru mjög ósáttir með og töldu vera rangan dóm. Stjarnan komst svo í 2-0 örfáum mínútum síðar og því stórt atvik sem vonandi var rétt leyst úr. Stjörnur og skúrkar Emil Atlason skoraði tvö mörk og var erfiður við að eiga í fremstu víglínu sem endranær, líkt og félagi hans Örvar Eggertsson sem skoraði eitt mark. Jakob Héðinn Róbertsson, sóknarmaðurinn ungi, byrjaði óvænt í stað Jakob Snæs Árnasonar sem meiddist í upphitun og átti góðan leik. Skoraði mark og var ógnandi og býr yfir miklum hraða. Jeppe Pedersen var öflugur á miðjunni og átti fallega stoðsendingu í þriðja markinu. Daniel Dejan Djuric komst ekki mikið í takt við leikinn en á eflaust eftir að reynast liðinu mikilvægur í sumar. Var óheppinn að eiga ekki stoðsendingu þegar Hallgrímur Mar fór illa með gott færi. Dómarinn Lítið hægt að setja út á dómgæsluna í dag. Arnar Þór Stefánsson átti fínan leik með flautuna.Eina vafaatriðið er í raun hvort markið sem dæmt var af KA hafi verið réttur dómur, en KA menn vilja meina að svo sé ekki því engin rangstaða hafi verið í aðdragandanum. Stórt atvik, því KA hefði jafnað í 1-1 þarna en Stjarnan fer svo upp stuttu síðar og kemst í 2-0. Stemning og umgjörð Silfurskeiðin, stuðningsmannasveit Stjörnunnar, átti stúkuna skuldlaust í dag og eiga hrós skilið fyrir frábæra mætingu norður í fyrsta leik í ekkert frábæru veðri. Það var sungið og trallað allan leikinn.Fín mæting hjá KA fólki og ágætis stemning á köflum. Besta deild karla KA Stjarnan