Réðust fyrirvaralaust á miðborg Beirút Kjartan Kjartansson skrifar 8. apríl 2026 13:57 Neyðarstarfsmaður kannar rústir íbúðablokkar sem Ísraelar sprengdu í loft upp í miðborg Beirút í dag. AP/Bilal Hussein Tugir eru sagðir fallnir og hundruð særð eftir að Ísraelsher gerði fyrirvaralausar loftárásir á miðborg Beirút í Líbanon í dag. Ísraelar segja að vopnahlé sem þeir gerðu við Írani í gær nái ekki til árása þeirra á Hezbollah-samtökin í Líbanon.
Árásir Ísraela á Beirút í dag eru þær umfangsmestu frá því að hernaður þeirra gegn Hezbollah hófst. Að sögn ísraelska hersins verpaði hann sprengjum á rúmlega hundrað skotmörk á innan við tíu mínútum í Beirút, sunnanverðu Líbanon og austanverðum Bekaa-dal. AP-fréttastofan segir að Ísraelar hafi meðal annars ráðist á íbúða- og verslunarhverfi sem hafi valdið glundroða og ótta á götum borgarinnar. Haneed Sayed, félagsmálaráðherra Líbanons, fordæmir árásirnar og bendir á að um helmingur þeirra Líbana sem eru á hrakhólum vegna fyrri aðgerða Ísraelshers í landinu haldi til á þeim svæðum sem ráðist var á í dag. Ísraelar og Bandaríkjamenn gerðu samkomulag við klerkastjórnina í Íran um tímabundið vopnahlé gegn því að Hormússund verði aftur opnað fyrir flutningaskipasiglinum. Slökkviliðsmenn sprauta vatni á eld í rústum eftir sprengjuárásir Ísraela á Beirút 8. apríl 2026.AP/Bilal Hussein Hezbollah-samtökin hafa notið stuðnings írönsku klerkastjórnarinnar. Ísraelar segja að vopnahléið nái ekki til stríðs þeirra gegn samtökunum. Fulltrúar Hezbollah höfðu sagt áður en árásirnar hófust að þeir æru tilbúnir til viðræðna um vopnahlé. Þeir hefðu sjálfir ekki haldið sig við vopnahlé sem var gert í byrjun mars þar sem að Ísraelar hefðu ekki gert það. Rúmlega 1.500 manns hafa látið lífið í árásum Ísraela á Líbanon frá því að þeir hófu árásir af krafti árið 2024.
Líbanon Ísrael Hernaður Átök í Ísrael og Palestínu Mest lesið Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent „Við erum næstum að kæfa framhaldsskólastigið“ Fréttir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Innlent Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Erlent Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent Trump samdi við Pútín um dísel Erlent Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Innlent Fleiri fréttir Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Trump samdi við Pútín um dísel Vance biðlar til ungra reiðra manna Ætla að „binda enda“ á stríðsglæpadómstól Skólum lokað eftir árásir og tíu handteknir vegna hótana Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Bein útsending: Hver hlýtur friðarverðlaun Nóbels? Yfir sjötíu þúsund mótmæltu þrátt fyrir umbótatillögur Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Ætla að streyma aftöku í beinni Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Tveir Lettar handteknir á breskri herstöð í nótt Máttu ekki leita hjá fyrrverandi prinsi vegna Epstein-tengsla Breskur hermaður ákærður fyrir njósnir Hættu við að ræða upplýsingafals undir þrýstingi frá Bandaríkjastjórn Segir í tísku að setja alþjóðasamfélagið ofar eigin þjóð Konan sem var borin út er látin Margaret Hamilton er látin Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Fangaði sólarupprás á Mars Fátt um svör frá Rússum um meinta plágu Kona stungin til bana við matvöruverslun í Malmö Bandarískir hermenn í útgöngubanni eftir morð Sjá meira