Uppgjörið:Valur - Keflavík 75-78| Keflavík stelur heimavellinum í fyrsta leik Stefán Marteinn Ólafsson skrifar 2. apríl 2026 21:30 Valur -Keflavík Bónus deild karla Vor 2026 Paweł/Vísir Valsmenn tóku á móti Keflavík í fyrsta leik liðana í 8-liða úrslitum Bónus deild karla í kvöld. Liðin sem enduðu í fjórða og fimmta sæti og því ljóst að baráttan yrði hörð. Það er Keflavík sem tekur forystu í einvígi þessara liða eftir þriggja stiga sigur 75-78 og um leið „stelur“ heimavalla réttinum. Callum Lawson í baráttunni í kvöldPaweł/Vísir Leikurinn fór rólega af stað en bæði lið skiptust á að leiða leikinn fyrst um sinn. Varnir beggja liða stóðu vel í upphafi leiks og þurfti að hafa vel fyrir öllum stigum. Það þurfti eitthvað sérstakt til þess að komast skrefinu framar í þessum leik og þar steig Keyshawn Woods upp en hann var með tólf stig í fyrsta leikhluta og það voru Valsmenn sem leiddu 21-14. Keyshawn Woods átti góðan leik fyrir Val í kvöld.Paweł/Vísir Annar leikhluti var mikil varnarskák þar sem bæði lið voru að ná góðum stoppum. Hvoru liðinu tókst þó að nýta sér þessi varnarstopp sem þau voru að sækja lengst af. Sóknarleikurinn hrestist örlítið við eftir því sem leið á leikhlutann en þá voru Valsmenn sterki og fóru inn í hálfleikinn með tíu stiga forskot 42-32. Valur -Keflavík Bónus deild karla Vor 2026Paweł/Vísir Gestirnir frá Keflavík mættu mun grimmari út úr hálfleiknum og byrjuðu strax að saxa niður forskot Vals. Keflavík henti sér á eftir öllum lausum boltum og byrjuðu að setja stóru skotin og náðu að minnka muninn niður í eitt stig í tvígang. Valsmenn stóðu þann storm af sér og náðu sjálfir flottu áhlaupi og unnu upp forskotið aftur áður en langt um leið. Keflavík náði þó fínum endasprett en Valsmenn voru þó skör framar og leiddu eftir þriðja leikhluta með fjórum stigum 61-57. Hilmar Pétursson í baráttunniPaweł/Vísir Keflavík mætti með krafti í fjórða leikhluta og náðu að skrúfa aðeins upp hitann. Remy Martin kom gestunum yfir í fjórða leikhluta og leikurinn var að spilast upp í hendurnar á Keflavík. Mikill barningur var í lokinn en það reyndist á endum vera Keflavík sem var sterkari og þeir fara með sigur í fyrsta leik þessa einvígis með sér til Keflavíkur en gestirnir höfðu á endum betur með þremur stigum 75-78. Remy Martin Paweł/Vísir Atvik leiksins Mirza Bulic sækir óíþróttamannslega villu á Keyshawn Woods sem gefur Keflavík tvö vítaskot og þeir halda boltanum. Það var risastórt þegar það var ekki nema rétt um 11 sekúndur eftir og Keflavík bara með eins stigs forystu. Stjörnur og skúrkar Mirza Bulic var gríðarlega öflugur í liði Kelfavíkur í kvöld og endaði með 25 stig. Hjá Val var Keyshawn Woods hvað öflugastur en hann endaði með 26 stig. Dómararnir Sigmundur Már, Jóhannes Páll og Birgir Örn sáu um flautuna hér í kvöld. Heilt yfir fannst mér þeir komst bara þokkalega frá sínu í kvöld. Alltaf hægt að taka til einstaka atvik hér og þar en heilt yfir var þetta bara mjög fínt, Stemingin og umgjörðStemningin var góð í N1 höllinni í kvöld. Það heyrðist meira í gestunum úr Keflavík sem voru syngjandi og trallandi allan leikinn. Valsmenn gáfu þó ekkert eftir á lokametrunum þegar mest lét. Viðtöl Daníel Guðni Guðmundsson fer yfir málin með sínu liði í kvöldPaweł/Vísir „Virkilega sterkur karakter og þrautseigja að koma til baka“ „Virkilega sterkt og gefur okkur mikið sjáfstraust fyrir komandi leiki“ sagði Daníel Guðni Guðmundsson þjálfari Keflavíkur í samtali við Andra Már Eggertsson eftir sigurinn í kvöld. „Þetta var virkilega erfiður leikur hér í kvöld og fyrri hálfleikurinn var afleitur af okkar hálfu en virkilega sterkur karakter og þrautseigja að koma til baka hérna og ná í sigur“ Keflavík skoraði 32 stig í fyrri hálfleik í kvöld. „Við vorum bara alltof staðir sóknarlega og þetta var svo mikið hökkt og hægt allt saman þannig við náðum aldrei upp neinum takti“ „Við náðum ekki að hlaupa völlinn eins og við vildum gera og um leið og við komumst í smá takt þarna fyrstu þrjár mínúturnar í þriðja leikhluta þá fann maður þetta augnablik koma til okkar“ „Þeir gerðu hins vegar mjög vel að koma til baka og komast aftur yfir einhver 8-9 stig en ég er bara svo ánægður með að við vorum að finna lausnir á þessu sóknarlega og gera hlutina bara almennilega þannig við höldum þeim sömuleiðis í 33 stigum í seinni hálfleik“ sagði Daníel Guðni Guðmundsson. Finnur Freyr Stefánsson ræðir við sitt lið í kvöldPaweł/Vísir „Gefum þeim sjálfstraust og frostnum svo bara í kjölfarið sóknarlega“ „Þetta er í raun bara nákvæmlega eins leikur og síðustu tveir sem við höfum spilað á móti Keflavík“ sagði Finnur Freyr Stefánsson þjálfari Vals í samtali við Andra Már Eggertsson eftir leik í kvöld. „Annað liðið setti stóru skotin í lokin og hitt ekki. Við búum okkur til tvö fín skot í síðustu kerfunum en þau vildu ekki niður. Þannig er bara körfuboltinn“ „Ósáttur með kannski hvernig við komum út í seinni hálfleik. Við vorum að gera vel í fyrri hálfleik að halda þeim niðri og spila góða vörn með fínt flæði sóknarlega“ „Við gerum kannski mikið af mistökum þarna á fyrstu mínútum í seinni hálfleik og hleypum þeim inn í leikinn og gefum þeim sjálfstraust og frostnum svo bara í kjölfarið sóknarlega“ sagði Finnur Freyr Stefánsson. Bónus-deild karla Valur Keflavík ÍF