Stórtónleikarnir verða fyrir neðan Öxarárfoss Sunna Sæmundsdóttir skrifar 29. mars 2026 15:00 Einar Á.E. Sæmundsen, þjóðgarðsvörður á Þingvöllum, segist takast spenntur á við verkefnið en stórtónleikar fara fram í þjóðgarðinum í sumar. vísir/Arnar Gert er ráð fyrir að tuttugu þúsund gestir sæki tónleika hljómsveitarinnar Kaleo á Þingvöllum í sumar. Tónleikarnir fara fram á grasflötum fyrir neðan Öxarárfoss og þjóðgarðsvörður segir heilan her fólks munu gæta þess að náttúran beri engan skaða af. Hann kannast ekki við tónleikaumsóknir frá Coldplay eða U2.
Hljómsveitin Kaleo mun standa fyrir stórtónleikum á Þingvöllum 20. júní næstkomandi. Einar Sæmundsen þjóðgarðsvörður segir umsóknina hafa borist í haust og að Þingvallanefnd hafi gefið sér góðan tíma í að fara yfir málið. „Nefndin tók það fyrir með jákvæðum huga að opna staðinn meira fyrir Íslendingum og þeim sem að koma til þess að upplifa Þingvelli á annan hátt,“ segir Einar. Gert er ráð fyrir að gestir verði um tuttugu þúsund og Einar telur þjóðgarðinn ráða vel við það. Hann bendir á að um tíu þúsund ferðamenn komi á Þingvelli daglega yfir hásumarið - til þess að setja fjöldann í samhengi. „Tónleikarnir sjálfir fara fram á tveimur grasflötum sem eru neðan við Öxarárfoss og það er gott svæði þar. Fólk áttar sig kannski ekki á því að þar er næstum því tveir og hálfur hektari sem er þar beint fyrir neðan. Þessar flatir sem eru þar eru sléttar og hafa í raun og veru verið nýttar áður fyrir stóra viðburði eins og á fyrri þjóðhátíðum.“ Utanumhaldið verði þétt og svokallað öryggisráð verður stofnað undir formennsku lögreglunnar á Selfossi og í því munu einnig sitja umsagnaraðilar og viðburðahaldarar. Hátt í þrjú hundruð manns verði að aðstoða á vettvangi og gæta þess að náttúran beri ekki skaða af, enda um viðkvæmt og friðlýst svæði að ræða. „Það verður alveg her af fólki með okkur hérna á vegum viðburðahaldarans og öll aðföng, fleiri salerni og allt gert samkvæmt skilyrðum umsagnaraðila þannig við erum bara nokkuð spennt fyrir því að takast á við þetta.“ Þingvallanefnd muni síðar meta reynsluna af þessu verkefni. „Búa okkur til einhver frekari viðmið og líklega ramma og reglur um hvernig við tökum á svona viðburðum ef það verður eftirspurn eftir því að koma til okkar. Þá munum við hafa það í hendi okkar að geta brugðist við.“ Tónleikarnir fara fram á grasflötum fyrir neðan Öxarárfoss.vísir/Vilhelm Jakob Frímann Magnússon, tónlistarmaður og tónleikahaldari, sagði í Bítinu í vikunni að stórsveitunum U2 og Coldplay hefði verið hafnað þegar leitast var eftir því að fá að halda tónleika á Þingvöllum. „Þegar Coldplay báðu um leyfi þá var svarið nei og þegar U2 báðu um leyfi þá var svarið nei. Þegar Kaleo biðja um leyfi með Jökul í forsvari; þá er svarið auðmjúkt já,“ sagði Jakob Frímann. Einar kannast ekki við slíkar umsóknir. „Ég þarf nú bara að fara að kíkja í spam-folderið þar sem ég kannast ekki við þetta,“ segir Einar kíminn. „Þetta hefur kannski verið einhvern tímann fyrir tuttugu til tuttugu og fimm árum þar sem einhverjir hafa mögulega borið víurnar óformlega í að fá að halda tónleika án þess að það hafi farið fram einhver umræða. En þetta snýst ekkert um Kaleo eða U2. Við tókum bara þessa umsókn fyrir núna,“ segir Einar.
Tónleikar á Íslandi Kaleo Þingvellir Bláskógabyggð Tónlist Tónleikar Kaleo á Þingvöllum 2026 Mest lesið Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent „Við erum næstum að kæfa framhaldsskólastigið“ Fréttir Trump samdi við Pútín um dísel Erlent Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Erlent Seldu óvart hjól viðskiptavinar Innlent Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Innlent Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Innlent Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Innlent Fleiri fréttir Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Sjá meira