Afhverju skiptir tilfinningin um að tilheyra meira máli en Instagram? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar 27. mars 2026 09:47 Í alþjóðlegri hamingjuskýrslunni var lögð áhersla á tengsl samfélagsmiðla við hamingju hjá ungu fólki. Þar voru skoðaðar niðurstöður úr spurningum í PISA frá árinu 2022 sem könnuðu hvort fjöldi klukkustunda á netinu hefði tengsl við hamingju. En þar var ekki látið staðar numið, þau könnuðu einnig hvort tegund netnotkunar hefði mismunandi tengsl við hamingju. Það sem kom í ljós í þessari greiningu var að netnotkun sem flokkaðist sem samfélagsmiðlar, leikir og að vafra sér til gamans hafði neikvæð tengsl við hamingju ef notkunin var meiri en 1 klukkustund eða minna. Hins vegar hafði notkun efnis sem flokkaðist undir lærdóm, samskipti, sköpun á efni hæstu tengsl við hamingju í 1-3 klukkustunda notkun en þau tengsl minnkuðu eftir því sem tíminn jókst umfram það. Í skýrslunni voru einnig skoðuð tengsl hamingju við ólíkar tegundir samfélagsmiðla. Þar var greint hvort munur væri á tengslum við hamingju eftir tegund samfélagsmiðla hjá ungu fólki í Mexíkó. Gerður var greinarmunur á miðlum sem styðja samskipti (t.d. Facebook og WhatsApp) og samfélagsmiðlum sem byggja á algóritmum sem hafa áhrif á hegðun notenda (t.d. TikTok og Instagram). Þar kom í ljós að samfélagsmiðlar sem byggja á algóritmum hafa neikvæðari tengsl við hamingju en þeir sem styðja samskipti. Þeir enduðu þó ekki þar. Rúsínan í pylsuendanum var greining á tengslum þátta eins og mæting í skóla, frammistaða í skóla, og þess að upplifa sig tilheyra í skólanum. Það sem var hvað áhrifaríkast og áhugaverðast í þeirri greiningu voru sterk og marktæk tengsl milli þess að upplifa sig tilheyra í skólanum og hamingju. Sá þáttur, tilfinningin að upplifa sig tilheyra, hafði sexfalt meiri áhrif á hamingju en samfélagsmiðlanotkun. Þessar niðurstöður fá mann virkilega til að staldra við og hugsa. Þær vekja upp spurningar um hvað getum við gert til þess að ungt fólk upplifi sig tilheyra í skólanum. Hvernig umhverfi, félagslegt umhverfi eða umgjörð styður best við þá tilfinningu hjá ungu fólki að það sé hluti af heildinni og tilheyri? Það eru ýmsar rannsóknir sem varpa ljósi á þetta. Niðurstöður benda til þess að þau inngrip sem hafa mest áhrif á upplifun nemenda af því að tilheyra séu þau sem annað hvort breyta túlkun nemenda á félagslegum aðstæðum eða styrkja raunveruleg tengsl þeirra innan skólans. Þar hafa svokölluð „belonging interventions“ sýnt sérstaklega sterk og langvarandi áhrif, þrátt fyrir að vera stutt og einföld inngrip (Walton & Cohen, 2011; Yeager et al., 2016). Á sama tíma sýna umfangsmiklar rannsóknir að gæði samskipta milli kennara og nemenda eru einn af sterkustu forspárþáttum þess að nemendur upplifi sig sem hluta af skólasamfélaginu (Pianta et al., 2012). Slík tengsl hafa ekki aðeins áhrif á líðan heldur einnig námsárangur og þátttöku. Einnig hafa félags- og tilfinningafærni-inngrip (SEL) verið studd af stórum safngreiningum rannsókna og sýnt víðtæk jákvæð áhrif á bæði félagslega færni, líðan og tengsl nemenda (Durlak et al., 2011). Þá hafa samvinnunám og jafningjastuðningur einnig sýnt marktæk áhrif, sérstaklega þegar kemur að því að efla tengslamyndun og draga úr einmanaleika. Mikilvægt er þó að hafa í huga að rannsóknir benda til þess að samspil þessara þátta skipti mestu máli. Inngrip sem sameina breytingar á hugsun nemenda, styðjandi tengsl við kennara og aukin tækifæri til jákvæðra félagslegra samskipta virðast hafa sterkust og varanleg áhrif á upplifun ungs fólks af því að tilheyra í skóla. Tilfinning um að tilheyra er ekki eingöngu sálfræðileg upplifun, hún er einnig lífeðlisfræðilegt ástand. Þegar ungmenni upplifa sig í öruggu félagslegu umhverfi virkjast kerfi í líkamanum sem tengjast ró og jafnvægi, meðal annars í gegnum parasympatíska taugakerfið og virkni vagus-taugarinnar. Slík virkni hefur verið tengd betri tilfinningastjórnun, aukinni athygli og meiri getu til að tengjast öðrum og rannsóknir benda til þess að hærri parasympatísk virkni tengist betri félagslegri virkni og tengslamyndun. Á hinn bóginn getur skortur á tilfinningu um að tilheyra virkjað streituviðbrögð líkamans, þar sem nemendur fara frekar í varnarstöðu, upplifa meiri kvíða og eiga erfiðara með að einbeita sér og taka þátt. Þannig getur líkamlegt ástand nemanda annaðhvort stutt við eða hindrað getu hans til að tengjast og læra. Út frá þessu má líta á tilfinninguna að tilheyra sem samspil þriggja lykilþátta: hugsunar, tengsla og lífeðlisfræðilegs ástands. Þegar nemandi túlkar félagslegar aðstæður á jákvæðan hátt, upplifir styðjandi tengsl og er í líkamlegu ástandi sem styður við öryggi og ró, aukast líkurnar á því að hann upplifi sig sem hluta af heildinni Hér liggur mikið og kjörið tækifæri til þess að skoða þetta og sjá hvað við getum gert til að hjálpa ungu fólki að upplifa að það tilheyri. Sérstaklega þar sem skólaumhverfið er eitthvað sem við getum haft raunveruleg áhrif á. Þar dvelur ungt fólk stóran hluta dagsins, ef ekki stærsta hluta dagsins síns. Því liggur þar stórt og mikilvægt tækifæri til að skapa umhverfi sem hefur jákvæð áhrif á unga fólkið okkar. Höfundur er doktor í lífeðlislegri sálfræði. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sigrún Þóra Sveinsdóttir Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Skoðun Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar