Upp­gjör: KR - Tinda­stóll 99-101 | Stólarnir gulltryggðu annað sætið

Árni Jóhannsson skrifar
Badmus á ferð og flugi.
Badmus á ferð og flugi. vísir / Vilhelm

Tindastóll náði að vinna KR á útivelli í lokaumfeðr Bónus deildar. Úr varð frábær körfuboltaleikur sem gefur góð fyrirheit fyrir úrslitakeppnina. Lokastaðan 99-101 fyrir Tindastól sem gulltryggði annað sætið.

Tindastóll byrjaði betur og keyrði í átta stiga forskot strax í byrjun og virtust vera talsvert betur stemmdir en heimamenn í KR. Stolinn bolti, langir tvistar og þristu var stemmningsaukandi fyrir gestina en KR þurfti að kippa sér í liðinn og byrja. Þeir náðu því og fóru að hægja á gestunum og staðan fór úr 5-13 í 13-16 á skömmum tíma og leikurinn datt í jafnvægi. Tindastóll var alltaf skrefi á undan en Lars Erik Bragason setti upp sýningu og dró sína menn áfram. Leikhlutinn endaði í stöðunni 28-29 þar sem liðin hittu vel og nutu sín að spila sóknarleik.

Annar leikhluti var alveg jafn góður. Það hægðist örlítið á stigaskorinu en KR náði frumkvæðinu. Tveir þristar í röð ráku gestina í að taka leikhlé en þá var staðan 39-34 heimamönnum í vil sem þó náðu að halda frumkvæðinu eftir leikléið. KR hafði hitt úr rúmlega helmingi þriggja stiga skota sinna á þessum tímapunkti sem skóp forskot. Gestirnir fóru að klikka undir körfunni og það dróst í sundu. Staðan 44-37 þegar fjórar mínútur voru eftir af leikhlutanum en þá tók Tindastóll við sér.

Gestirnir jöfnuðu metin í 44-44 og svo var skipst á körfum þangað til gengið var til búningsklefanna í stöðunni 50-51 fyrir Tindastól. Piltarnir af frá Sauðárkróki höfðu ekki farið vel með skotin sín en 35% þeirra fóru ofan í í fyrri hálfleiknum. KR setti á meðan 42% þrigga stiga skota sinna sem hélt gestunum við efnið.

Aftur byrjaði Tindastóll betur í seinni hálfleik en KR var ekki jafnlengi úr startblokkunum í það skiptið. Mikill hiti var í mönnum sem voru í því að flækjast í hvorum öðrum og nuddast upp við hvorn annan þannig að það fauk í menn. Kennth Jamar Doucet og Adomas Drungilas lentu í stympingum og virtist það vera að Drungilas hafi fengið högg á augað og lentu báðir leikmenn í gólfinu og draga þurfti þá í sundur. Dæmd var óíþróttamannsleg villa á báða og enginn var sáttur. Dómararni hættu á þessum tímapunkti að flauta en höfðu flautað mikið í fyrri hálfleik. Það róaði ekki menn en það hallaði heldur ekki á neinn. Liðin héldu áfram að skiptast á körfum en Tindastól gekk örlítið betur í sínum leik og voru með forskot 74-80 þegar þriðja leikhluta lauk.

Liðin héldu áfram að skiptast á körfum eða þá að skiptast á því að klikka. Hvorugu liðinu tókst að ná takti í sinn leik og hlaupa af stað þegar á reyndi. Jafn var þegar þrjár mínútur voru eftir af leiknum 91-91 og aftur 93-93 en þá náðu gestirnir smá sprett. Tveir þristar í röð frá David Geks komu Tindastól í góða stöðu þegar um tvær mínútur voru eftir.

KR náði ekki að nýta sér það að Tindastól gekk illa að skora og í stöðunni 97-101 var eiginlega fokið í flest skjól. Lars Erik Bragason rauk þá af stað í átt að körfunni, skoraði og fékk villu að auki. Þá voru 7 sekúndur eftir af leiknum og ekki öll von úti enn. Lars klikkaði á vítinu en KR náði sóknarfrákastinu. Toms hitti ekki úr þrist en Kenneth Doucet náði sóknarfrákastinu, hann hljópu út í hornið sneri sér við og kastaði boltanum upp í loftið. Hann fór í spjaldið og ofan í úr vonlausri stöðu en því miður fyrir KR-inga þá hafði KJ stigið út af og því var búið að dæma boltann af honum og Tindastóll náði að sigla þessum sigri heim. 

Lokastaðan 99-101. KR dettur niður í sjötta sætið við þetta en Tindastóll endar í öðru sæti. Í meðfylgjandi grein er hægt að sjá hvaða lið mætast í átta liða úrslitunum.

Atvik leiksins

Þristurinn serm ekki varð. KJ Doucet var líklega ekki nema einu númeri af skóstærð sinni frá því að vera hetja KR þegar skot hans undir lokin fór ofan í en hann steig út af. Þetta hefði verið ótrúlegur endir en Tindastóll lifði af.

Stjörnur og skúrkar

KR þarf að taka til sín skúrkatitilinn í þetta skiptið. Þegar talið er upp úr pokanum þá kemur í ljós að KR tapaði fimm fleiri boltum en KR og skoraði tveimur stigum úr þeim atvikum. Kannski er leikurinn þar?

Annars áttu margir leikmenn fantagóðan leik. Lars Erik Bragason skilaði 15 stigum og skiptu þau öll máli. Linars Jauntsems var stigahæstur KR-inga með 22 stig og 11 fráköst.

Hjá Tindastól var Taiwo Badmus stigahæstur með 26 stig og Daniel Dolenc átti líklega sinn besta leik og skoraði 17 stig af bekknum. Heldur betur gott að fá þann leikmann inn á næsta stig með meira sjálfstraust.

Umgjörð og stemmning

Frábær stemmning á Meistaravöllum. Bæði stuðningsmannalið voru í flottum gír og greinilegt að allir eru að undirbúa sig fyrir úrslitakeppnina. Ég vona þó að búið verði að taka til í blaðamannastúkunni fyrir stóra ballið en þar var allt á rúi og stúi og enn leifar af frábærum rapp tónleikum þriðjudagsins.

Dómarar leiksins

Þetta var rosalega erfiður leikur að dæma. Arnar kom inn á það í viðtali eftir leik að dæmt var mikið í byrjun en ekkert í seinni hálfleik og það gerir það að verkum að ekki er hægt að tempra leikmenn. Það hallaði á hvorugt lið en þetta var ekki gott á köflum en svo náðu þeir góðum dómum inn á milli.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira