Ráðin framkvæmdastjóri Rauða krossins Atli Ísleifsson skrifar 26. mars 2026 09:53 Ingibjörg Elín Halldórsdóttir. Rauði krossinn Stjórn Rauða krossins á Íslandi hefur ráðið Ingibjörgu Elínu Halldórsdóttur sem framkvæmdastjóra félagsins og mun hún hefja störf 1. maí næstkomandi. Hún tekur við starfinu af Gísla Rafni Ólafssyni sem hætti störfum fyrr á árinu.
Í tilkynningu segir að Ingibjörg hafi þar til nýverið gegnt stöðu deildarstjóra Rauða krossins við Eyjafjörð en undanfarna mánuði hafi hún starfað sem sérfræðingur í forsætisráðuneytinu. „Ingibjörg er 46 ára, fædd árið 1980. Hún útskrifaðist með B.A.-gráðu af félagsvísindasviði Háskólans á Akureyri (HA) árið 2014 og hefur sótt sér ýmsa viðbótarmenntun, m.a. í almennri stjórnun og áfallastjórnun. Á árunum 2011–2014 starfaði hún við HA þar sem hún sinnti m.a. erlendum verkefnum og samskiptum. Þá var hún fulltrúi Íslands í stjórn Norræna sumarháskólans á árunum 2012–2015. Ingibjörg hóf störf fyrir Rauða krossinn árið 2015 í heimabæ sínum Akureyri, fyrst sem verkefnastjóri deilda félagsins á Norðurlandi en frá 2018 sem deildarstjóri Eyjafjarðardeildar. Góður og fjölbreyttur árangur náðist í starfi deildarinnar undir hennar stjórn, m.a. fjölgaði sjálfboðaliðum um tæp 40 prósent og breidd í verkefnum jókst að sama skapi,“ segir í tilkynningunni. „Ég er full tilhlökkunar að taka við starfi framkvæmdastjóra Rauða krossins á Íslandi enda á félagið, starfsfólk þess og sjálfboðaliðar, alveg sérstakan stað í hjarta mínu,“ er haft eftir Ingibjörgu. „Ég geri mér á sama tíma fulla grein fyrir þeim gríðarstóru áskorunum sem eru fram undan nú á tímum töluverðrar ókyrrðar og óvissu í heimsmálunum.“ Í tilkynningu nefnir Ingibjörg sem dæmi að mannúðarsamtök á borð við Rauða krossinn eigi í vök að verjast fjárhagslega. „Í því samhengi er gott að minna á að Rauði krossinn sinnir mikilvægu hlutverki í almannavörnum og neyðarviðbrögðum. Þar skiptir net sjálfboðaliða um allt land – og um allan heim – lykilmáli. Sjálfboðaliðar okkar eru til staðar í nærsamfélaginu, tilbúnir að veita stuðning og aðstoð þegar á þarf að halda.“ Ingibjörg segir verkefnið framundan að þétta raðirnar innanlands, ýta enn frekar undir starf félagsins á landsbyggðinni og halda áfram að styðja við fólk í viðkvæmri stöðu, hér heima og erlendis. „Rauði krossinn vill vera til staðar fyrir öll þau sem þarfnast aðstoðar. Í umhverfi sem er síbreytilegt þurfum við að vera sveigjanleg, tilbúin að aðlagast nýjum veruleika og vera fljót að bregðast við þegar á reynir. Félagið nýtur trausts í íslensku samfélagi og við verðum að sýna og sanna að við ætlum okkur að standa áfram undir því trausti.“ Flutti til Reykjavíkur Af starfi deildarstjóra lét Ingibjörg um áramót er hún fluttist búferlum til Reykjavíkur ásamt eiginmanni sínum, Haraldi Loga Hringssyni, og hóf störf sem sérfræðingur og ritari ráðuneytisstjóra í forsætisráðuneytinu. Í tilkynningu segir að hún sé hins vegar nú aftur að koma „heim“ til Rauða krossins. „Við erum afar ánægð að fá Ingibjörgu Halldórsdóttur aftur til liðs við okkur, og nú sem framkvæmdastjóra,” er haft eftir Sigríði Stefánsdóttur, formanni Rauða krossins. „Við stöndum frammi fyrir krefjandi umhverfi og stórum verkefnum sem takast þarf á við af yfirvegun og með nýjum leiðum. Í það starf þarf leiðtoga sem býr yfir sterkri sýn og drifkrafti. Við í stjórn Rauða krossins trúum að Ingibjörg sé sú manneskja. Hún er framsýn hugsjónamanneskja sem þekkir kjarnann í starfi Rauða krossins en kemur líka með ferskt sjónarhorn að borðinu. Við bjóðum Ingibjörgu Halldórsdóttur, nýjan framkvæmdastjóra Rauða krossins á Íslandi, hjartanlega velkomna til starfa.“
Vistaskipti Félagasamtök Mest lesið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu Innlent CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Innlent Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Erlent Fleiri andvígir aðild nú en í fyrra Innlent Dómur yfir Helga Bjarti: Fara þyrfti varlega í að draga ályktanir út frá framburði drengsins Innlent Halla Bergþóra nýr ríkislögreglustjóri Innlent Ingimar er bæjarstjóraefni D-listans í í Hveragerði Innlent Bækurnar of leiðinlegar og forritaði stærðfræðitölvuleik Innlent Fleiri fréttir Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Fleiri andvígir aðild nú en í fyrra Ingimar er bæjarstjóraefni D-listans í í Hveragerði Bækurnar of leiðinlegar og forritaði stærðfræðitölvuleik „Vélin að bila og hún stingur upp á að við skiptum um áklæði“ Lögðu hald á um tug lítra fíkniefna Æfir kennarar og varað við verðstýringu Mótorinn í Herjólfi þarf til útlanda Margir sátu hjá þegar launin voru hækkuð Halla Bergþóra nýr ríkislögreglustjóri „Nú hef ég auðvitað ekkert á móti fólki frá Nígeríu“ Dómur yfir Helga Bjarti: Fara þyrfti varlega í að draga ályktanir út frá framburði drengsins Rannsóknin á lokametrunum Fjórir landsréttardómarar vilja taka skrefið í Hæstarétt Forsetar Íslands og Slóveníu ræða leiðtogahlutverk í breyttum heimi Segir forsætisráðuneytið misnotað í þágu sveitarstjórnarkosninga Sjálfsmark með „sjúklega samfylkingarlegu“ kjötvörubanni Framkoman laði ekki lækna að Landspítalanum Ók á móti umferð í Hvalfjarðargöng með lögregluna á hælunum Helgi Bjartur dæmdur í tólf mánaða fangelsi Eimskip líta smyglið mjög alvarlegum augum „Já, ég er dálítið reiður“ Matarstefnan bara „orð út í loftið“ Töldu framboðinu ekki til framdráttar að mæta í þáttinn Verð á stökum miða í sund hækkar en árskortið lækkar Árni vill stöðuna þrátt fyrir auglýsingu Skjálfti vegna Írisar innan Sjálfstæðisflokksins í Eyjum Sjá meira
Dómur yfir Helga Bjarti: Fara þyrfti varlega í að draga ályktanir út frá framburði drengsins Innlent
Dómur yfir Helga Bjarti: Fara þyrfti varlega í að draga ályktanir út frá framburði drengsins Innlent