Innan við fimmtán prósent telja loftslagsbreytingar ekki staðreynd Kjartan Kjartansson skrifar 26. mars 2026 07:49 Lón hafa myndast við sporða fjölmargra jökla á Íslandi vegna hlýnandi loftslags. Um fjórtán prósent landsmanna telja það ekki gerast af völdum manna. Vísir/Vilhelm Afgerandi meirihluti segist sammála því að loftslagsbreytingar af mannavöldum séu staðreynd í skoðanakönnun en innan við fimmtán prósent eru á öndverðum meiði. Karlar og eldra fólk er líklegra til þess að þekkja ekki staðreyndir málsins en konur og yngra fólk.
Skoðanakönnun sem Náttúruverndarsamtök Íslands fengu Maskínu til að gera sýnir að sjötíu prósent lýsa sig sammála því að loftslagsbreytingar af völdum manna sé staðreynd, þar af 47 prósent mjög sammála. Rúm fjórtán prósent segja ósammála staðreyndinni, þar af 6,4 prósent mjög ósammála. Ekki hefur áður verið spurt um málið á vegum samtakanna og því er ekki hægt að bera saman hvernig afstaða til þess hefur breyst. Loftslagsbreytingar sem nú eiga sér stað á jörðinni eru afleiðing stórfelldrar losunar mannkynsins á gróðurhúsalofttegundum, fyrst og fremst með bruna á jarðefnaeldsneyti. Þegar hefur hlýnað um meira en gráðu frá viðmiðunartímabili fyrir iðnbyltingu en hlýnunin gæti náð um þremur gráðum fyrir lok aldarinnar ef ekki verið dregið hratt úr losun. Sterk fylgni við menntunarstig, aldur og kyn Afgerandi meirihluti í öllum aldurshópum telur loftslagsbreytingar staðreynd en hlutfallið lækkar eftir því sem svarendur eldast. Hlutfallið er lægst í aldurshópnum sextíu ára og eldri þar sem það er 59 prósent. Verulegur munur er á afstöðu kynjanna til spurningarinnar en konur eru mun líklegri til þess að viðurkenna staðreyndina en karlar, 78 gegn 62 prósentum. Þá er bein fylgni á milli menntunarstigs svarenda og afstöðu þeirra til spurningarinnar. Tæp 57 prósent þeirra sem eru aðeins með grunnskólapróf telja loftslagsbreytingar af völdum manna staðreynd en tæp 84 prósent háskólamenntaðra. Reykvíkingar eru mest afgerandi um að loftslagsbreytingarnar séu staðreynd en tæp sextíu prósent þeirra sögðu mjög sammála. Aðeins rúm tíu prósent þar sögðust ósammála. Þótt það væri meirihlutaskoðun í öllum landshlutum að breytingarnar væru staðreynd var hlutfallið lægst á Vesturlandi, Vestfjörðum, Suðurlandi og Reykjanesi þar sem um 52 prósent sögðust mjög sammála eða sammála. Meirihluti hjá öllum nema Flokki fólksins og Miðflokknum Meirihluti kjósenda allra stjórnmálaflokka sem voru í framboði fyrir síðustu þingkosningar utan tveggja voru sammála því að loftlagsbreytingar væru staðreynd. Tæp 49 prósent kjósenda Flokks fólksins var þeirrar skoðunar en tæp 35 prósent sögðust í meðallagi sammála. Kjósendur Miðflokksins skáru sig mest úr en aðeins 4,7 prósent þeirra sögðust mjög sammála staðreyndinni. Í heildina sagðist tæpur þriðjungur þeirra sammála. Á móti sögðust fjörutíu prósent miðflokksmanna ósammála, þar af tæp nítján prósent mjög svo. Þá var veikasti meirihlutinn í röðum sjálfstæðismanna. Tæp 53 prósent þeirra sögðust sammála, þar af 26,6 prósent mjög sammála. Rúmur fimmtungur sjálfstæðismanna trúir ekki að loftlagsbreytingar af völdum manna sé staðreynd. Á hinum enda rófsins telja 88,6 prósent kjósenda Samfylkingarinnar loftslagsbreytingar staðreynd og tæp níutíu prósent kjósenda Viðreisnar.
Loftslagsmál Vísindi Skoðanakannanir Jarðefnaeldsneyti Mest lesið Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Innlent Áfram geisar innbrotahrinan Innlent Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Innlent Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Innlent Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Innlent Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Innlent Veðrið haggist ekki að neinu ráði Innlent Ferðaþjónustan, fullveldið og fullt af forsætisráðherrum Innlent Fleiri fréttir „Það þarf ekki nema einn sígarettustubb til þess að kveikja í öllu“ Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Sjá meira