Segir meinta vegtolla ekki á dagskrá Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 18. mars 2026 17:16 Daði Már segir Vilhjálm sjálfan hafa stutt tillögu um vegtolla á sínum tíma. Fjármálaráðherra segir að ekki standi til að innheimta veggjöld á helstu leiðum til og frá höfuðborgarsvæðiinu með frumvarpi um nýtt innviðafélag þrátt fyrir að fram komi að það hafi verið til skoðunar í greinargerð með frumvarpinu. Þingmaður Sjálfstæðisflokksins hafi sjálfur stutt vegtolla á sínum tíma.
Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra lagði í gær fram frumvarp um stofnun innviðafélags í eigu ríkisins sem ætlað er að hraða uppbyggingu stórra samgönguverkefna. Í greinargerð með frumvarpinu kemur fram að við vinnslu þess hafi verið skoðað að taka upp innheimtu veggjalda á helstu leiðum til og frá höfuðborgarsvæðinu, líkt og á Reykjanesbraut og Suðurlandsvegi. Vilhjálmur Árnason þingmaður Sjálfstæðisflokksins og oddviti á lista flokksins í Reykjanesbæ gagnrýndi áformin harðlega og sagði þau myndu bitna mjög á flestum landsmönnum. Daði Már segir slík veggjöld ekki vera til skoðunar, þvert á það sem stendur í greinargerðinni. Það er kannski nærtækast að spyrja bara að því, er til skoðunar að innheimta veggjöld á þessar helstu leiðir til og frá höfuðborgarsvæðinu? „Nei. Ég verð nú að viðurkenna að mér finnst umræðan sérstök. Það sem þarna er verið að vísa til er að ef að við færum í framkvæmdir til þess að bæta umferðarflæðið á þessum æðum, að þá mætti fjármagna það á grundvelli félagsins. Dæmi um það gæti til dæmis verið að ráðast í þær framkvæmdir sem þyrfti til þess að hækka hámarkshraða og þar með stuðla að samgöngubótum. Og líka þá til dæmis tvöföldun Hvalfjarðarganga þegar þar að kemur. Það er bara mjög mikil innviðaskuld á Íslandi,“ segir Daði. „Og það er mjög mikilvægt að við vinnum á henni og ég held að almennt sé það síðan þannig að svo lengi sem er í boði hjáleið að þá viljum við frekar fá þjónustuna og borga fyrir hana en að fá þjónustuna frekar en ekki. Ég vil nú kannski síðan bæta við að þetta kemur úr hörðustu átt í ljósi þess að þetta hefur nú beinlínis verið tillaga sem Vilhjálmur sjálfur hefur komið með og stutt.“ Ríkisstjórnin lækki engar aðrar álögur Vilhjálmur Árnason ræddi ummæli Daða í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni. Þar voru borin undir hans ummæli Daða og segir hann veggjöld sína hugmynd að hluta til. Hugmyndin hafi verið sú að önnur gjöld myndu lækka á móti. Það hafi ríkisstjórnin ekki gert. „Það sem stendur helst í mér er að hérna ertu með ríkisstjórn sem er algjörlega gjaldþrota. Kemur ekki með neinar hagræðingarkröfur, á enga 75 milljarða til að setja inn í félagið. Og hvaða leið velja þau? Að sjálfsögðu munu þau velja það að setja þegar byggðan veg inn. Og það er það sem hræðir mig. Þannig að ef að þetta frumvarp fer svona í gegn, að þá geta þeir sett bara enn ein gjöldin á okkur notendurna. En við sjáum engar samgönguframkvæmdir þar sem að gjöldin verða tekin. Og ég hef ekki séð neinar samgönguframkvæmdir út af kílómetragjaldinu.“ Hann segist gagnrýna að ríkisstjórnin hafi innleitt margar nýjar gjaldtökur. Á sama tíma fresti hún framkvæmdum. „ Svo ertu að búa til opna heimild fyrir gjaldþrota ríkisstjórn til að setja enn eina gjaldtökuna á framkvæmd sem þú ætlar að fresta. Það gengur ekki upp. Um það snýst þessi gagnrýni. Þeir segjast hafa aldrei staðið til af þessu moldviðri, en þá hafa þeir einfaldlega ekki lesið gögnin sem þeir eru að samþykkja úr ríkisstjórn eða þingflokkum.Jóhann Páll er búinn að pósta þessu út um allt, og Samfylkingarfólk hefur verið að apa það eftir honum að þetta sé moldviðri. Ég hef verið kallaður úlfur í sauðargæru og ýmislegt slíkt. En ég segi: þetta stendur bara í frumvarpinu eins og það er. Þá þarf bara að breyta frumvarpinu. Það er opin heimild til að setja þegar byggða vegi, eins og Reykjanesbraut, inn.“ Fréttin var uppfærð með viðbrögðum Vilhjálms í Reykjavík síðdegis.
Samgöngur Umferð Skattar, tollar og gjöld Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Reykjavík síðdegis Vegtollar Mest lesið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Erlent Flúði táragas lögreglu í Nice Innlent Fleiri fréttir Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför Sjá meira