Íslendingar skipi sér í hóp með öfgaríkjum Smári Jökull Jónsson skrifar 12. mars 2026 19:00 Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra segir Ísland standa með alþjóðalögum. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Diljá Mist Einarsdóttir sitja í utanríkismálanefnd og eru gagrýnin á þátttöku Íslands í málsókn Suður-Afríku gegn Ísrael. Vísir/Anton Brink/Vilhelm/Lýður Valberg Íslendingar skipa sér í hóp með öfgaríkjum með þátttöku í málsókn Suður-Afríku gegn Ísrael að mati formanns Miðflokksins. Ákvörðunin muni óhjákvæmilega hafa afleiðingar í samskiptum við bandamenn Íslendinga. Utanríkisráðherra segir Ísland vera að standa með alþjóðalögum.
Tilkynnt var í gærkvöldi um ákvörðun íslenskra stjórnvalda að taka þátt í málaferlum Suður-Afríku gegn Ísrael fyrir Alþjóðadómstólnum. Þar fer Suður-Afríka fram á að Ísrael verði dæmt brotlegt vegna framgöngu sinnar á Gasa sem Ísland hefur gagnrýnt líkt og árásir Hamas. Sum bandalagsríki Íslands setja sig upp á móti málsókninni.Sýn Ísland tekur eitt Norðurlanda þátt í málsókninni en fleiri Evrópulönd gera það sömuleiðis. Þekktir bandamenn Íslands í Bandaríkjunum, Þýskalandi, Frakklandi og Bretlandi hafa sett sig á móti málsókninni. „Þarna er Ísland að skipa sér í hóp með ýmsum spilltum ríkjum og öfgaríkjum gegn hópi sem að eru nú okkar helstu bandamenn, eins og Kanada, Bandaríkin, Bretland, Þýskaland, og gera það til að renna stoðum undir fullyrðingar stjórnvalda í Suður-Afríku sem hafa lengi hatast út í Ísrael.“ Taka þátt í málsókninni Setja sig á móti henni „Af hverju eru þeir að senda út viðvaranir?“ Ákvörðun stjórnvalda muni óhjákvæmilega hafa afleiðingar í samskiptum við bandamenn. „Ég hefði ekkert á móti því að Íslendingar legðu sitt af mörkum til að rannsaka hugsanlega stríðsglæpi og refsa fyrir þá. Þetta snýst um fullyrðingar um að Ísraelar hafi ætlað sér að fremja helför, þjóðarmorð. Ekkert bendi til þess að sú sé raunin. „Hafi sú verið raunin, þá hefur þeim gengið afskaplega illa með það og maður veit ekki alveg af hverju þeir eru að senda út viðvaranir og reyna að hlífa almennum borgurum ef að það var markmiðið.“ Sigmundur Davíð á landsþingi Miðflokksins fyrr í vetur.Vísir/Lýður Valberg Aldrei tekin afstaða ef við ætlum alltaf að fylgja öðrum Utanríkisráðherra segir Ísland fyrst og síðast vera að standa með alþjóðalögum. „Við höfum sýnt það í gegnum tíðina, eins og þegar Ísland var fyrst ríkja, meðan aðrar þjóðir hikuðu að viðurkenna til að mynda Eystrasaltsþjóðirnar og Króatíu. Við riðum á vaðið meðan aðrar voru hikandi og það er svolítið fallegt hvernig hægt er að beita fullveldinu í þá veru,“ sagði Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir í viðtali við fréttastofu í dag. „Það eru fleiri ríki eins og Holland, Írland, Belgía og Spánn sem taka þátt í þessu og ég vil gjarnan að við höldum áfram þessari prinsippafstöðu okkar. Við gerðum það á sínum tíma þegar við viðurkenndum Eystrasaltsríkin og við eigum að vera óhrædd á þessum tíma að gera það.“ Ef Ísland ætli ávallt að fylgja öðrum ríkjum þá verði aldrei tekin nein afstaða. Hún hefur ekki áhyggjur að snuðra hlaupi á þráðinn í samskiptum við bandamenn. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra.Vísir/Lýður Valberg „Ef að það er þá erum við bara komin út á svolítið hálan ís, talandi um það að vera fullvalda þjóð. Við mótum okkar skoðun og við mótum okkar afstöðu og hún er með alþjóðalögum og hún er með mannréttindum. Þar erum við alveg skýr.“ „Það breytir ekki hinu að við eigum í góðum samskiptum, hvort sem það er við Bandaríkin eða önnur ríki sem eru ekkert endilega alltaf sammála okkur í öllu.“ Spurðist fyrir um hagsmunamat Málið var rætt á fundi utanríkismálanefndar í dag. Fulltrúi Sjálfstæðisflokks segir samráð ekki hafa verið viðhaft þó utanríkismálanefnd hafi verið upplýst. „Ég spurðist nú fyrir um hvort það hefðu farið fram einhverjar greiningar, einhvers konar hagsmunamat varðandi stöðu Íslands, til dæmis varðandi öryggishagsmuni, viðskiptahagsmuni eða eitthvað annað. Svarið var afdráttarlaust að það fóru engar slíkar greiningar fram, þannig að ég viðraði ákveðnar áhyggjur varðandi það og spurðist fyrir um sérstöðu Íslands í þessum efnum, af því að við skerum okkur auðvitað þarna úr.“ Diljá Mist er þingmaður Sjálfstæðisflokks og situr í utanríkismálanefnd.Vísir/Vilhelm Diljá Mist telur milligöngu Íslands ekki grundvallaratriði til að fá úr því skorið hvort þjóðarmorð hafi átt sér stað og veltir fyrir sér af hverju hin Norðurlöndin hafi ekki stigið sama skref og Íslendingar. „Það er væntanlega vegna einhvers konar hagsmunamats sem að fer fram því að það er varla hægt að segja það að Norðurlöndin beri minni virðingu fyrir alþjóðalögum eða Norðurlöndin beri ekki virðingu fyrir mannréttindum eins og við gerum. Við höfum verið í fullu samfloti hvað það varðar með Norðurlöndunum og öðrum Evrópuþjóðum.“
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Sjálfstæðisflokkurinn Miðflokkurinn Ísrael Átök í Ísrael og Palestínu Utanríkismál Palestína Suður-Afríka Mest lesið Undrast „leiðinlega“ Íslendinga Innlent Flækt í kafkaískt stjórnsýslulegt helvíti Innlent Skora á Bubba að taka sér pásu frá laxveiði og mæta Innlent Hvalveiðibátarnir haldnir til veiða Innlent Mikið tjón eftir eld á Klapparstíg Innlent Trúði ekki að siglt yrði úr höfninni: „Mér leið svo illa, ég fór að hágráta“ Innlent Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Erlent Segir Reykjavík að verða að Mekka vændisiðnaðar Innlent Meloni segir Trump skrökva upp á sig Erlent Lést í slysi á Hálsasveitarvegi Innlent Fleiri fréttir Jensína Edda er Reykvíkingur ársins Sektaður fyrir að aka á göngugötu Hvalveiðibátarnir haldnir til veiða Mikið tjón eftir eld á Klapparstíg Flækt í kafkaískt stjórnsýslulegt helvíti Undrast „leiðinlega“ Íslendinga Skora á Bubba að taka sér pásu frá laxveiði og mæta „Ég hef verið kölluð þingmaður dauðans“ Segir Reykjavík að verða að Mekka vændisiðnaðar Trúði ekki að siglt yrði úr höfninni: „Mér leið svo illa, ég fór að hágráta“ Höfuðvígi vændismansals, mótmælandi sem brotnaði niður og Þingvellir Björgunarsveitir sóttu göngumann við Háafoss Þingið komið í sumarfrí Samþykkja úrræði fyrir fólk sem sæta þarf öryggisráðstöfunum Óljós um tilganginn en þekktu hvert egg Allt eftirlit matvæla undir einni stofnun Boltinn sé hjá fjarskiptafélögunum Fresta opnun Sundhallar Reykjavíkur Áhöfnin hlúði að Hólmsteini á siglingunni til Hvalfjarðar Vetur í íslenskri kvikmyndagerð Handtökur í vændisrannsókn lögreglu Hjartaljósin ekki sloppin „Virðist vera einhverskonar gamaldags sjómennskuhefndaraðgerð“ Stór mál á dagskrá síðasta þingfundar fyrir þingfrestun Lést í slysi á Hálsasveitarvegi Hvalavinurinn í tunnunni og Kaleo undirbýr Þingvallakonsert Inga ræddi við fulltrúa Tiktok um að hækka aldursmörk Halda í opinbera heimsókn til Færeyja Dómur burðardýrs mildaður Starmer ætlar ekki að láta í minni pokann fyrir Burnham strax Sjá meira