Kelly Clarkson segist hvorki hafa fengið sigurféð né bílinn sem henni var lofað Freyja Þórisdóttir skrifar 12. mars 2026 19:04 Kelly Clarkson hefur haldið úti spjallþáttum síðan árið 2019 en hún sigraði fyrstu seríu American Idol árið 2001. Getty Í samtali við Rob Rausch, nýjasta sigurvegara The Traitors í Bandaríkjunum, afhjúpaði söngkonan og spjallþáttastjórnandinn Kelly Clarkson stórt leyndarmál. Hún fékk aldrei að snerta sigurféð sem henni var lofað við lok fyrstu þáttaraðar American Idol.
Clarkson ræddi við Rob Rausch og Daniel Radkliffe, leikara sem er einna best þekktur fyrir hlutverk sitt sem Harry Potter í samnefndri röð kvikmynda, í spjallþætti sínum fyrr í vikunni. Þar spyr hún Rob, sem varð nýlega fjórði sigurvegari The Traitors í Bandaríkjunum, út í hvernig tilfinningin var þegar hann áttaði sig á því að hann færi heim með verðlaunin. „Svo þú ert 220.800 dollurum ríkari núna? Er það rétt skilið?“ spyr hún Rob, sem játar því að upphæðin sé rétt, að hann haldi, en að hann hafi ekki fengið neitt greitt sem stendur. Upphæðin jafngildir rúmum 27 milljónum íslenskra króna, enda nefnir Clarkson að svona sigur breyti lífi manns. En um leið og Rob sagði frá því að hafa ekki ennþá fengið neitt greitt veðraðist Clarkson upp og segist kannast mjög við svona enda hafi hún lent í nánast því sama. Kelly Clarkson hefur gefið út fjölda laga og einnig hefur hún sjálf dæmt keppnir á borð við The Voice.Getty Hún sigraði fyrstu þáttaröð söngvakeppninnar American Idol árið 2002 en hún var tvítug þegar hún hreppti fyrsta sætið. Clarkson hefur síðan þá verið ein farsælasta söngkona Bandaríkjanna og margir telja hana vera þekktasta sigurvegara keppninnar. „Veistu hvað? Ég tengi svo mikið við þetta því þegar ég vann þáttinn, og þetta var í beinni útsendingu, sögðu þeir við mig „þú vinnur milljón dollara“, nei, þú gerðir það ekki. Þeir lugu!“ Kelly Clarkson var einungis tvítug þegar hún sigraði American Idol.Getty Clarkson lýsir því hvernig henni hafi verið lofað vinningsfé, sem hljóðar upp á ríflega 125 milljónir íslenskra króna, sem og bíl. Hún hafi svo aldrei fengið bílinn né sigurféð og ólíkt raunveruleikastjörnum á við Rob var Clarkson bláfátækur námsmaður þegar hún skráði sig til keppni. „Þetta var semsagt „milljón dollara fjárfesting í mér sem söngkonu“, og ég fékk ekki bílinn, sem ég þurfti sárlega á að halda því bíllinn minn var klesstur og ég átti ekki efni á sjálfsábyrgðinni.“ Loks segir hún frá því að Clay Aiken, sem var einn af keppendum í annarri þáttaröð American Idol, hafi fengið bíl bæði fyrir sig og mömmu sína þrátt fyrir að hafa ekki unnið sína þáttaröð. „Ég man að Clay sagði mér „já, þau gáfu mömmu minni líka einn“ og ég hugsaði með mér „ég ætla að lúskra á þér“.
Tónlist Bandaríkin Hollywood Mest lesið Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn Lífið Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Lífið Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Lífið Nicole er fyrir norðan Lífið Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Lífið Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Lífið Sannkallað stjörnubrúðkaup Katrínar Tönju og Brooks Lífið Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Lífið „Ógleymanlegt söngævintýri“ með Nicole Kidman Lífið Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Lífið Fleiri fréttir Sannkallað stjörnubrúðkaup Katrínar Tönju og Brooks Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn „Ógleymanlegt söngævintýri“ með Nicole Kidman Prjóna á klúbbnum án þess að prjóna yfir sig Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Verjendur Davis segja ekkert að marka skjólstæðing sinn Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Sjá meira