Látinn hrauna yfir Kanada í gervimyndbandi Hvíta hússins Sindri Sverrisson skrifar 27. febrúar 2026 14:45 Brady Tkachuk fagnaði vel eftir 2-1 sigurinn gegn Kanada í úrslitaleiknum í Mílanó á sunnudaginn. Getty/Elsa Brady Tkachuk, leikmaður ólympíumeistaraliðs Bandaríkjanna í íshokkí, segist vissulega ekki hrifinn af myndbandi Hvíta hússins þar sem látið er líta út fyrir að hann hafi hraunað yfir kanadíska landsliðsins.
Myndbandið birtist á opinberum TikTok-reikningi Hvíta hússins eftir að Bandaríkin unnu Kanada í úrslitaleiknum á Vetrarólympíuleikunum á sunnudaginn. Þar eru Tkachuk lögð orð í munn og látið eins og að hann hafi sagt: „Þeir bauluðu á þjóðsönginn okkar svo að ég varð að kenna þessum hlynsýrópsétandi fávitum lexíu. Kanada, við ráðum yfir ykkur litli brósi.“ Klippan af Tkachuk er af blaðamannafundi frá síðasta ári og alveg ljóst að það er ekki hann sem talar á myndbandinu. “Canada they booed our national anthem so I had to go out there and teach those maple syrup eating fcks a lesson. Canada, we own you bro.” - Brady Tkachuk🇺🇸 pic.twitter.com/45ucX60UTt— The General (@1776General_) February 23, 2026 Tkachuk er fyrirliði Ottawa Senators í Kanada og hann var spurður út í myndbandið eftir fyrsta leik sinn í NHL-deildinni eftir Ólympíuleikanna. „Tja, þetta er augljóslega gervimyndband, því þetta er ekki röddin mín og varirnar mínar hreyfast ekki. Ég ræð ekki yfir þessum reikningum. Ég veit bara að þessi orð myndu aldrei koma af mínum vörum, svo ég get ekkert gert við þessu. Ég myndi aldrei segja þetta. Svona maður er ég ekki. Svo ég býst við að ég sé ekki ánægður með þetta myndband,“ sagði Tkachuk. Donald Trump Bandaríkjaforseti var afar ánægður og stoltur af landsliðinu og bauð því að vera viðstatt stefnuræðu sína á þriðjudaginn. Forsetinn hringdi í liðið þegar það var að fagna sigrinum inni í búningsklefa en kvaðst í símtalinu neyðast til að bjóða líka kvennalandsliðinu sem einnig hafði unnið Kanada í úrslitaleik. Brandari Trumps og hlátur sumra af leikmönnum karlaliðsins hefur verið gagnrýndur og kvennaliðið afþakkaði boðið pent. Sumir af leikmönnum karlaliðsins hafa svo beðist afsökunar á viðbrögðum sínum en Hilary Knight, fyrirliði kvennaliðsins, sagði að þó að brandari Trumps hefði verið óviðeigandi þá hefði hún skilning á viðbrögðunum og að sambandið á milli landsliðanna væri fullt af trausti og stuðningi.
Íshokkí Vetrarólympíuleikar 2026 í Mílanó og Cortina Mest lesið Þrír líklegustu dottnir úr leik Sport Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ Íslenski boltinn „Betra liðið tapaði” Fótbolti „Ég er ríkmontinn af þeim” Fótbolti „Allir tala um hvað ég er gamall“ Íslenski boltinn Fara í efstu deild þrátt fyrir jafntefli í umspili Fótbolti Uppgjör: FH - ÍA 0-1 | ÍA sótti sigur í Kaplakrika Íslenski boltinn Verður einn sá dýrasti í sögu KR Íslenski boltinn „Arfaslakir og undir í öllum þáttum leiksins“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Þrír líklegustu dottnir úr leik „Betra liðið tapaði” „Ég er ríkmontinn af þeim” Gordon mættur til Börsunga „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ „Arfaslakir og undir í öllum þáttum leiksins“ „Allir tala um hvað ég er gamall“ Fara í efstu deild þrátt fyrir jafntefli í umspili Böðvar: Drullu mikilvægur sigur Uppgjör: FH - ÍA 0-1 | ÍA sótti sigur í Kaplakrika Fram - Breiðablik 4-3 | Fara fljúgandi í landsleikjahléið Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Hörkuleikur í Ungverjalandi Kristianstad er sænskur meistari Bjóða tónleikamiða í skiptum við Yamal Valur - Þróttur 0-1|Sigra manni færri á útivelli Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Alcaraz fann til með Sinner Doncic flytur félag til Rómar „Amma mín heitin gæti látið Vitinha spila vel“ Óskar Hrafn á hælana? Mourinho kynntur til leiks eftir kosningar Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Brann kveður Jón Dag Óskar Hrafn framlengir í Vesturbæ Þurfti að yfirgefa liðið fyrir úrslitaleikinn Tottenham bætir í vörnina Fjórir kylfingar fóru holu í höggi fyrstu vikuna í Leirdalnum Andleysi í uppeldisfélaginu komið Böðvari á óvart Árangurinn vinnur gegn kvíðanum Sjá meira