Leik lokið: ÍR-KA 32-31 | ÍR í bikarúrslit í fyrsta sinn í tólf ár Þorsteinn Hjálmsson skrifar 26. febrúar 2026 21:54 Róbert Snær Örvarsson og félagar eru komnir í bikarúrslitaleikinn. Vísir/Hulda Margrét ÍR-ingar tryggðu sér sæti í bikarúrslitaleiknum á laugardaginn eftir eins marks sigur á KA-mönnum, 32-31, í undanúrslitum Powerade-bikars karla í handbolta á Ásvöllum í kvöld. ÍR mætir Haukum í úrslitaleiknum. Þetta verður fyrsti úrslitaleikur ÍR-inga í tólf ár eða síðan þeir töpuðu á móti Haukum 2014. Jökull Blöndal Björnsson kom sterkur inn þegar besti leikmaður ÍR meiddist og skoraði tíu mörk en sigurmarkið skoraði Sveinn Brynjar Agnarsson með sínu eina marki í leiknum. Frekari umfjöllun og viðtöl koma inn á Vísi seinna í kvöld. Powerade-bikarinn ÍR KA