Leik lokið: FH-Haukar 21-25 | Haukar í bikarúrslit eftir sigur á FH

Sesselja Ósk Gunnarsdóttir skrifar
Freyr Aronsson sem átti stórleik í sókn og vörn, skoraði sjö mörk og gaf sex stoðsendingar.
Freyr Aronsson sem átti stórleik í sókn og vörn, skoraði sjö mörk og gaf sex stoðsendingar. Vísir/Vilhelm

Haukar tryggðu sér sæti í bikarúrslitaleiknum á laugardaginn eftir fjögurra marka sigur á FH, 25-21, í undanúrslitum Powerade-bikars karla í handbolta á Ásvöllum í kvöld. 

Haukar mæta annaðhvort ÍR eða KA í úrslitaleiknum en þau mætast seinna í kvöld. Haukaliðið var skrefinu á undan allan leikinn og byrjaði báða hálfleikina frábærlega. Endasprettur FH-inga kom of seint. 

Enginn lék betur í Haukaliðinu en Freyr Aronsson sem átti stórleik í sókn og vörn.

Leikurinn byrjaði af krafti og voru Haukar komnir með þriggja marka forystu á fyrstu mínútum leiksins. Haukar héldu forystunni lengst af fyrri hálfleiks, en þegar um sex mínútur voru eftir náðu FH-ingar að jafna metin. Haukar tóku þá leikhlé sem reyndist mikilvægt því þeim tókst að byggja upp forskot á ný.

Á loka sekúndum fyrri hálfleiks fengu Haukar vítakast, en Daníel Freyr Andrésson, sem þá var kominn með tíu varin skot, bætti við enn einni vörslunni þegar hann varði vítaskotið frá Skarphéðni Ívari Einarssyni. Haukar fóru því með tveggja marka forystu inn í hálfleikinn, 9-11.

Haukar byrjuðu seinni hálfleikinn jafn vel og þann fyrri og voru fljótir að komast í fjögurra marka forystu. Um miðbik hálfleiksins gekk illa sóknarlega um stund hjá Haukum en FH-ingar náðu ekki að nýta sér það.

FH tókst að minnka muninn niður í tvö mörk á lokamínútum leiksins en tókst ekki að snúa leiknum sér í hag. Haukar héldu haus og sigldu sigrinum örugglega heim.

Atvik leiksins

Það sauð upp úr undir lok leiksins og greinilegt að FH-ingar voru ekki sáttir með dómgæslu leiksins. Sigursteinn Arndal, þjálfari FH, lét dómara leiksins heyra það eftir leikinn og uppskar beint rautt spjald í kjölfarið.

Stjörnur og skúrkar

Freyr Aronsson var frábær í liði Hauka í kvöld með sjö mörk og var einn mikilvægasti leikmaður liðsins bæði varnarlega og sóknarlega.

Ólafur Ægir Ólafsson var einnig með sjö mörk fyrir Hauka.

Grétar Ari Guðjónsson var með 13 varin skot og 38% markvörslu.

Ómar Darri Sigurgeirsson var markahæstur í liði FH með sjö mörk. Daníel Freyr Andrésson var frábær í marki FH i fyrri hálfleik og var hann með 11 skot varin. Jón Þórarinn Þorsteinsson kom sterkur inn í mark FH í seinni hálfleik og tókst að verja sex skot og var með 46% markvörslu.

Stemning og umgjörð

Höllin var stútfull af Hafnfirðingum sem létu vel í sér heyra allt frá fyrstu mínútu. Stemningin var frábær og umgjörðin alveg til fyrirmyndar.

Dómarar

Þjóðþekkta dómaratvíeykið Anton Gylfi Pálsson og Jónas Elíasson stóðu vaktina í kvöld. Þeir voru öruggir í sínum aðgerðum og var dómgæslan heilt yfir sanngjörn á báða bóga. Það var þó greinilegt að FH-ingar voru ósáttari með dómgæsluna, sérstaklega þegar leið á leikinn.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira