Leik lokið: Grindavík - ÍR 100-95 | Grindvíkingar með níu fingur á deildarmeistaratitlinum Siggeir Ævarsson skrifar 19. febrúar 2026 18:32 DeAndre Kane kann illa við að tapa körfuboltaleikjum og ætlaði sko alls ekki að gera það í kvöld. Vísir/Guðmundur Grindvíkingar tóku á móti ÍR-ingum í kvöld í ansi fjörugum og hröðum leik. Heimamenn mættu til leiks án Daniel Mortensen sem snéri sig á ökkla í síðasta leik og var Valur Orri því mættur í byrjunarliðið og þá snéri Ólafur Ólafsson aftur í liðið eftir meiðsli. Gestirnir fóru ágætlega af stað og leiddu í upphafi leiksins en Grindvíkingar voru fljótir að snúa leiknum við og voru tíu stigum yfir eftir fyrsta leikhluta, 30-20. Í öðrum leikhluta var boðið upp á mikið þristaregn frá báðum liðum en alls voru komnir 15 þristar á tölfræðiblaðið í hálfleik. ÍR tók gott áhlaup undir lok hálfleiksins og náði að minnka muninn í tvö stig, 44-42 þar sem Grindvíkingar voru að spila illa á báðum endum vallarins. Þeir rönkuðu þó við sér í kjölfarið og leiddu með ellefu stigum í hálfleik, 61-50. Grindvíkingar voru mun betri framan af þriðja leikhluta en þristar frá Kavas héldu ÍR-ingum á lífi. Heimamenn náðu þó að ýta muninn upp í þrettán stig og þá tók Borche gott leikhlé og ÍR kláraði leikhlutann á góðu áhlaupi. Staðan 82-75 fyrir lokaátökin og leikurinn galopinn. ÍR-ingar hófu leikhlutann með látum og tveir þristar frá Hákoni í röð þýddu að munurinn var allt í einu kominn niður í eitt stig og nóg eftir af körfubolta. Í kjölfarið lauk hvíld Jeremy Pargo og Jordan Semple á bekk Grindavíkur, sennilega töluvert á undan áætlun. Eftir þetta hægðist mjög á stigaskorinu en hvorugu liðinu tókst að skora í rúmar tvær mínútur í kjölfarið. Það hentar Grindvíkingum sennilega betur að hægja aðeins á leiknum og náðu þeir að ýta muninum aftur upp í níu stig þegar rúmar fjórar mínútur voru eftir af leiknum. Reynslan reyndist Grindvíkingum dýrmæt í brakinu þar sem þeir héldu haus og mjötluðu þennan sigur með seiglunni. Lokatölur í Grindavík 100-95. Nánari umfjöllun og viðtöl á Vísi síðar í kvöld. Bónus-deild karla UMF Grindavík ÍR