Þolinmæðin á þrotum: „Gerist aldrei neitt“ Aron Guðmundsson skrifar 19. febrúar 2026 09:31 Friðjón B. Gunnarsson er formaður íshokkídeildar SR. Vísir/Sigurjón Yfir þrjátíu ár hafa liðið frá því að svellið, sem finna má í Skautahöllinni í Laugardalnum, var tekið í notkun. Forsvarsmenn Skautafélags Reykjavíkur aðstöðuna fyrir löngu sprungna og vilja að farið verði í úrbætur og aðstaðan bætt. „Það er komið að okkur,“ segir formaður íshokkídeildar félagsins. „
Húsið er algjörlega sprungið,“ segir Friðjón B. Gunnarsson, formaður íshokkídeildar SR. „Við erum með gríðarlega marga iðkendur, bæði í íshokkí sem og listskautum. Við erum með búningsklefa sem eru á háannatíma fullir af iðkendum og foreldrum að klæða sig í og úr. Hér hefur staðið til lengi að byggja við húsið þannig að við fengjum annað svell til æfinga. Það er misjafnt hvað maður heyrir þessu tengt, hvort viðbyggingin eigi að vera í fullri stærð eða aðeins minna. Það er búið að teikna þetta upp, þetta er á forgangslista hjá Reykjavíkurborg en við erum búnir að heyra þetta núna í meira en áratug að það eigi að byggja en það gerist aldrei neitt.“ Forsvarsmenn SR hafi hingað til sýnt mikla þolinmæði í þessu máli en finnst nú komið að þeim tímapunkti að Reykjavíkurborg byggi viðbótarsvell við skautahöllina í Laugardalnum þannig að íþróttin geti vaxið og fái að þrífast almennilega. Ekki ákjósanleg staða Að sögn Friðjóns hefur iðkendum í skautaíþróttum fjölgað stöðugt undanfarin ár og er SR ekki eitt um að búa við aðstöðu sem er sprungin. Það er líka raunin í Egilshöllinni og á Akureyri en einungis þessar þrjár skautahallir er að finna á landinu. Hvernig eru aðstæður hér í Laugardalnum þegar að mest lætur? „Þá er þetta svell krökt af krökkum. Í dag erum við til að mynda með skautaskólann hérna og æfingar hjá undir átta og tíu ára liðum okkar. Allir saman inn á ís, sem er ekki ákjósanleg staða. Við erum með þjálfara fyrir hvern einasta flokk og erum að reyna stjórna þessum fjölda því það er gríðarleg aðsókn í íþróttina. Frá æfingu í SkautahöllinniVísir/Sigurjón SR fer með sín mál á borð Íþróttabandalags Reykjavíkur sem er síðan í samskiptum við borgaryfirvöld. „Það eru gríðarlega mörg mannvirki sem þarf bæði að laga og byggja. við erum þar nafn á blaði. Það sem ég er að reyna vekja athygli á er að okkur finnst vera komið að okkur. Svellið hér er byggt árið 1990, það er byggt yfir það 1998. Síðan þá hefur ekkert gerst fyrir skautaíþróttir í Reykjavík ef við drögum frá Egilshöllina sem var einkaframkvæmd.“ Skorar á borgarfulltrúa Að bestu vitund Friðjóns hafi Skautahöllin í Laugardalnum alltaf verið rekin með hagnaði. „Þá er líka mjög hagkvæmt upp á framtíðina að gera að vera með skautasvell við fjölnota íþróttahús því þá geturðu nýtt varmann frá vélinni sem frystir ísinn til þess að hita húsnæðið. Þetta er mjög hagkvæmt.“ Ertu vongóður um að eitthvað breytist í náinni framtíð? „Nei ég get ekki sagt það. En ég verð að vera bjartsýnn og skora á borgarfulltrúa í Reykjavík að koma hingað í heimsókn, hitta okkur. Ég skal baka köku og get sýnt þeim aðstöðuna okkar. Við erum mjög þakklát fyrir þessa aðstöðu en þurfum meira. Það er komið að okkur.“
Skautaíþróttir Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Íslenski boltinn Tár féllu í Bakgarðshlaupinu Sport Nokkuð viss um að Íslandsmetið verði slegið Sport „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Fótbolti Finnur til með Arnari Handbolti Sindri áfram í sextán liða úrslit Körfubolti Fleiri fréttir Sjáðu mark Sveindísar sem fer á kostum í Bandaríkjunum Sjáðu mörkin: KR tryggði annað sætið og fallbaráttan tók óvænta stefnu „Þetta var allt of mikið“ Dagskráin í dag: Veisla frá morgni fram á nótt FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Kane brást illa við gríni Valsarans Nokkuð viss um að Íslandsmetið verði slegið Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór Manzambi reyndist hetja Aston Villa Tár féllu í Bakgarðshlaupinu FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sindri áfram í sextán liða úrslit „Kyngjum þessum leik og klárum hann sem fyrst“ „Þetta er akkúrat staðan sem við vildum vera í“ Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Ólafur hafði betur í Íslendingaslag Elvar öflugur í spennutrylli Keflavík - KR 2-3 | Gabríel gulltryggði annað sæti Fulham vann loksins og sendi Tottenham á botninn Sjáðu tvennuna hjá sjóðheitum Andra Lucasi „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Ísland missti af verðlaunum með minnsta mögulega mun Haaland nálægt þrennu en fór meiddur af velli Þór - Stjarnan 3-1 | Þórsarar fyrir ofan fallstrikið eftir frábæran sigur Isak sneri aftur og tryggði sigur á níu Brentford-mönnum Fjölnir fær Ívar Ingimars til starfa Uppgjörið: Valur - KA 4-1 | Brekkan brött fyrir KA Sjá meira