Uppgjörið: Haukar - Njarðvík 87-96 | Njarðvíkingar á toppinn Andri Már Eggertsson skrifar 17. febrúar 2026 20:54 Þóra Kristín, fyrirliði Hauka í úrslitaeinvígi Hauka og Njarðvíkur á síðasta tímabili. Njarðvíkingar unnu níu stiga sigur gegn Haukum 87-96 í Ólafssal. Lokamínúturnar voru æsispennandi en Njarðvíkingar voru sterkari á svellinu og höfðu betur. Haukar settu tóninn strax og gerðu fyrstu fimm stigin. Tinna Guðrún Alexandersdóttir og Sigrún Björg Ólafsdóttir fóru af stað með látum og gerðu 15 af fyrstu 19 stigum Hauka. Það gekk allt upp í sóknarleik Hauka sem skilaði 27 stigum á tíu mínútum. Það var allt annað að sjá Njarðvíkur liðið sem mætti í öðrum leikhluta. Gestirnir gerðu fyrstu níu stigin og minnkuðu forskot Hauka niður í tvö stig sem gerði það að verkum að Emil Barja, þjálfari liðsins, tók leikhlé. Haukar náðu vopnum sínum á ný eftir leikhlé Emils. Gestirnir tóku þó annað áhlaup undir lok fyrri hálfleiks þar sem Njarðvík gerði tíu stig í röð og komst yfir í fyrsta sinn í leiknum. Sigrún Björg setti þrist í blálokin og Haukar voru einu stigi yfir í hálfleik 42-41. Það var allt ofan í hjá Njarðvík í þriðja leikhluta. Gestirnir skutu ljósin út sem skilaði 35 stigum á tíu mínútum og þessi leikhluti hjá Njarðvíkingum minnti á Stjörnuleik NBA deildarinnar. Staðan var 67-76 þegar haldið var í síðasta fjórðung. Í stöðunni 75-86 duttu Haukar í gírinn og svöruðu með tíu stigum í röð og munurinn aðeins eitt stig. Njarðvíkingar voru sterkari á svellinu undir lokin og niðurstaðan níu stiga sigur 87-96. Atvik leiksins Helena Rafnsdóttir gekk endanlega frá leiknum með auðveldri körfu þegar 40 sekúndur voru eftir. Haukar tóku strax leikhlé en þarna var sigurinn í höfn. Stjörnur og skúrkar Brittany Dinkins, leikmaður Njarðvíkur, fór á kostum og gerði 36 stig, tók 10 fráköst og gaf 8 stoðsendingar. Hún endaði með 43 framlagspunkta. Danielle Rodriguez, leikmaður Njarðvíkur, var einnig nálægt þrefaldri tvennu. Hún gerði 15 stig, tók 10 fráköst og gaf 8 stoðsendingar. Það var ansi óvænt að sjá Hauka tapa frákastabaráttunni 33-54 og Njarðvíkingar tóku 24 sóknarfráköst. Dómararnir Dómarar kvöldsins voru Kristinn Óskarsson, Eggert Þór Aðalsteinsson og Stefán Kristinsson. Dómararnir dæmdu leikinn afar vel og þetta var nokkuð þægilegur dagur á skrifstofunni hjá tríóinu. Stemning og umgjörð Litlu dansarar Hauka mættu á gólfið eftir fyrsta leikhluta og fóru á kostum. Þessir efnilegu dansarar sýndu þvílík tilþrif og fengu verðskuldað lófaklapp frá öllum í húsinu fyrir frábæra takta. „Hefðum átt að gera eitthvað öðruvísi á Brittany og ég skal taka það á mig,“ Emil Barja, þjálfari Hauka, var svekktur eftir tap gegn NjarðvíkVísir/Hulda Margrét Emil Barja, þjálfari Hauka, var svekktur eftir níu stiga tap gegn Njarðvík á heimavelli. „Mér fannst þær miklu sterkari og grófari alls staðar á vellinum. Það kom skot og þá voru alltaf tveir Njarðvíkingar mættir á móti einni hjá okkur og þær áttu þetta skilið,“ sagði Emil eftir leik. Aðspurður út í hvar Njarðvík náði yfirhöndinni sagði Emil að það hafi verið nokkur áhlaup sem fóru illa með hans lið. „Við komum flatar út úr seinni hálfleik, svo kom annar kafli þar sem þær taka leikhlé og við komum aftur flatar út og þær tóku þrjú sóknarfráköst í röð og mér fannst það línan í dag.“ Brittany Dinkins, leikmaður Njarðvíkur, átti stórleik í kvöld og Emil tók það á sig „Við gerðum ekki nógu vel á Brittany og ég verð líka að taka það á mig þar sem ég greip of seint inn í og við vorum að falla of mikið af henni og gáfum henni of mikið pláss. Við hefðum átt að gera eitthvað öðruvísi á hana og ég skal taka það á mig,“ sagði Emil að lokum. Bónus-deild kvenna Haukar UMF Njarðvík Körfubolti