Formaður Pírata sækist eftir öðru til fjórða sæti Eiður Þór Árnason skrifar 16. febrúar 2026 15:26 Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns er formaður Pírata. Vísir/vilhelm Ellefu einstaklingar vilja vera á lista Pírata í Reykjavík fyrir komandi borgarstjórnarkosningar. Fram kom í fyrr í dag að Kristinn Jón Ólafsson, fyrsti varaborgarfulltrúi Pírata, sækist eftir því að leiða listann ásamt Alexöndru Briem borgarfulltrúa.
Dóra Björt Guðjónsdóttir leiddi listann í síðustu kosningum en hún hefur nú gengið til liðs við Samfylkinguna. Prófkjör Pírata í Reykjavík hefst 26. febrúar. Olga Margrét Kristínardóttir Cilia lögmaður býður sig fram í annað sæti listans. Einnig sækist Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns, formaður Pírata, eftir 2. til 4. sæti og bæði Oddur Björn Jónsson, stuðningsfulltrúi í íbúðakjarna, og Unnar Þór Sæmundsson, framkvæmdastjóri og laganemi, eftir 2. til 5. sæti. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Pírötum. Sæborg Ninja Urðardóttir fjöllistakvár óskar eftir fjórða sæti á lista flokksins í borginni og Jökull Leuschner Veigarsson, framkvæmdastjóri og atvinnubílstjóri, eftir 3. til 4. sæti. Með þrjú sæti en mælast með minna fylgi Þá óskar Hans Alexander Margrétarson Hansen, deildarstjóri á leikskóla, eftir 4. til. 6. sæti og Guðni Freyr Öfjörð, sem titlaður er urbanisti, 9. til 10. sæti fyrir borgarstjórnarkosningarnar í maí. Tinna Helgadóttir, viðskiptafræðingur og 3. varaborgarfulltrúi Pírata, gefur sömuleiðis kost á sér en sækist ekki eftir tilteknu sæti, ef marka má tilkynningu Pírata. Um tvö þúsund manns eru skráðir félagar í Pírötum í Reykjavík og eru þar með á kjörskrá í komandi prófkjöri. Verður sem fyrr kosið rafrænt og lýkur prófkjörinu 6. mars. Píratar eru í dag með þrjú sæti í borgarstjórn. Samkvæmt könnun Gallup sem framkvæmd var í lok janúar hefur stuðningur við flokkinn minnkað en samkvæmt henni myndu Píratar missa tvö sæti. Þurfi að standa vörð um mannréttindi Olga Margrét Cilia sem gefur kost á sér í 2. sæti listans í Reykjavík hefur setið í framkvæmdastjórn Pírata og sinnt varaþingmennsku fyrir flokkinn. „Við lifum á fasískum tímum og nú meira en áður þurfum við að huga að jaðarsettum hópum og standa vörð um mannréttindi fyrir okkur öll ! Gagnsæi, ábyrg stjórnmál og virkt eftirlit með valdi eru þau gildi sem ég starfa fyrst og fremst eftir,“ segir hún í tilkynningu. Hún vilji sjá frjálslyndan mannréttindaflokk sem berjist fyrir lýðræði í borgarstjórn. „Sjálfsákvörðunarréttur einstaklinga á að vera í forgrunni í allri ákvarðanatöku borgarinnar. Reykjavík er fyrst og fremst þjónustuaðili fyrir borgara, þau sem kjósa okkur til valda. Við þurfum að kjarna lögmætt hlutverk borgarinnar betur og einblína á það sem gerir borgina að góðum stað fyrir öll. Í forgrunni á að vera fjölskylduvæn borg þar sem börn fá leikskólapláss og þar sem við erum ekki háð bílnum í hversdeginum. Ég vil sjá grósku í menningu og listum á forsendum unga fólksins. Ég vil sjá raunhæfan íbúðarmarkað fyrir fólk ekki fyrirtæki og gróða. Ég vil eftirlit með valdi og vernd friðhelgis okkar!“ Fréttin hefur verið uppfærð.
Píratar Borgarstjórn Sveitarstjórnarkosningar 2026 Reykjavík Tengdar fréttir Kristinn Jón tekur slaginn við Alexöndru Kristinn Jón Ólafsson, fyrsti varaborgarfulltrúi Pírata, gefur kost á sér til þess að leiða lista flokksins í komandi kosningum. Til þessa hefur Alexandra Briem ein gefið kost á sér en prófkjör Pírata í Reykjavík fer fram rafrænt dagana 26. febrúar til 6. mars. 16. febrúar 2026 12:24 Tveggja turna tal í Reykjavík Samfylkingin og Sjálfstæðisflokkurinn myndu báðir fá átta fulltrúa inn í borgarstjórn Reykjavíkur samkvæmt nýrri könnun Gallúp. Enn er borgarstjórnarmeirihlutinn fallinn og hafa bæði Framsókn og Flokkur fólksins þurkast út. 3. febrúar 2026 22:19 Mest lesið Kourani farinn úr landi Innlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Erlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Innlent Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla Innlent Tók konu hálstaki sem söng með á söngleik Erlent Fleiri fréttir Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Sjá meira
Kristinn Jón tekur slaginn við Alexöndru Kristinn Jón Ólafsson, fyrsti varaborgarfulltrúi Pírata, gefur kost á sér til þess að leiða lista flokksins í komandi kosningum. Til þessa hefur Alexandra Briem ein gefið kost á sér en prófkjör Pírata í Reykjavík fer fram rafrænt dagana 26. febrúar til 6. mars. 16. febrúar 2026 12:24
Tveggja turna tal í Reykjavík Samfylkingin og Sjálfstæðisflokkurinn myndu báðir fá átta fulltrúa inn í borgarstjórn Reykjavíkur samkvæmt nýrri könnun Gallúp. Enn er borgarstjórnarmeirihlutinn fallinn og hafa bæði Framsókn og Flokkur fólksins þurkast út. 3. febrúar 2026 22:19