Uppgjörið: Stjarnan - Njarðvík 113-103 | Lífið heldur áfram eftir brostinn bikardraum Árni Jóhannsson skrifar 12. febrúar 2026 21:10 Stjarnan mætti KR í bikarúrslitaleik Vís bikarsins í körfubolta. KR-ingar fögnuðu sigri. vísir/Anton Stjarnan tapaði úrslitaleik VÍS-bikarsins um helgina en hélt uppteknum hætti í Bónus-deildinni þegar Njarðvík kom í heimsókn í 17. umferði deildarinn í kvöld. Stjarnan skoraði vel yfir 100 stig og hélt gestunum í seilingarfjarlægð nánast allan leikinn. Lokatölur 113-103s um helgina en ætlar sér stóra hluti í Bónus-deildinni og mætir Njarðvík í kvöld. Það var alveg vitað mál að Stjörnumenn vildu kvitta fyrir tapið í bikarnum um helgina og byrjuðu mun betur í kvöld. Komust fljótt í 5-0 og hittu virkilega vel í gegnum allan leikinn. Njarðvíkingar héldu þó í við heimamenn en misstu þá í tveggja stafa tölu fram úr sér og náðu ekki að brúa það bil. Stjarnan skoraði 35 stig í fyrsta leikhluta gegn 23 stigum gestanna sem duttu niður í gæðum og ákafa of oft á báðum endum vallarins og Stjarnan nýtti sér það. Njarðvíkingar náðu að koma af fítonskrafti út í annan leikhlutann og minnkuðu muninn niður í tvö stig 37-35 og virkuðu eins og þeir ætluðu að koma sér yfir en gæsin var ekki gripin frekar en á öðrum köflum leiksins. Stjarnan náði að svara, halda gestunum frá sér og spyrna sér síðan frá bakkanum undir lok leikhlutans. Njarðvíkingar gleymdu sér of oft í varnarleiknum og gáfu heimamönnum, sem voru heitir, opin skot sem byggðu upp forskot að nýju. Staðan var 66-52 í hálfleik og höfðu heimamenn hitt úr 73% skota sinna. Njarðvíkingar náðu upp betri varnarleik í seinni hálfleik en náðu þá ekki aftur á móti að skora nóg til að hala heimamenn í netin sín. Muninum var haldið í átta til tíu stigum lengst af og Stjörnumenn náðu að loka leikhlutanum í næstum sömu stöðu 88-76. Njarðvík byrjaði betur fjórða leikhluta og setti Veigar Páll t.a.m. niður tvo þrista og allt í einu var munurinn sex stig og hlutirnir stefndu í að vera áhugaverðir. Orri Gunnarsson steig á þá glóð með þrist og Luka Gasic, sem var maður leiksins, skoraði snögg fjögur stig til að koma muninum í 11 stig aftur og þar með var björninn unninn hjá heimamönnum. Njarðvík gerði sitt ítrasta til að ná heimamönnum en skorti kraft og gæði kannski þegar menn helltust úr lestinni. Milka spilaði ekkert í seinni hálfleik og Dwayne Lautier-Ogunleye fékk fimm villur þegar um fjórar mínútur voru eftir. Þá skiptust liðin á körfum og leik lauk 113-103 fyrir Stjörnunni sem þjarmar að Grindavík á toppi deildarinnar en þetta var níundi sigurleikur þeirra í röð. Atvik leiksins Það er ekkert eitt stórt atvik sem hægt er að taka út úr þessum leik. Ég set hér inn hittni heimamanna. Hún var 73% í hálfleik og endaði í 58%. Hetjur og skúrkar Stigahæstur og bestur á vellinum í dag var Luka Gasic. Kappinn skoraði 34 stig og hitti úr 13 af 15 skotum sínum. Njarðvíkingar réðu illa við hann og alltaf þegar Stjarnan þurfti á að halda setti hann niður þrist eða sótti tvö stig. Hjá Njarðvík hefði vantað meira frá atvinnumönnum liðsins. Milka meiðist en aðrir hittu ekki á leikinn sinn. Ef ekki hefði verið fyrir frammistöðu Veigars Páls Alexanderssonar þá hefði þessi leikur endað mikið verr fyrir Njarðvík. Veigar skoraði 32 stig og setti niður 8 af 10 þriggja stiga skotum sínum. Umgjörð og stemmning Góð mæting í ÞG Verk höllina og létu áhorfendur vel í sér heyra. Dómararnir Þetta var ekki góð frammistaða hjá þríeykinu. Það var of mikið dæmt á köflum og ekkert á næstu. Njarðvíkingar fengu 19 víti í fyrri hálfleik en ekki nema níu í seinni. Þannig að línan var skrýtin. Svo var farið of oft í skjáinn að mínu mati. Öðrum leikjum lauk ca. 30 mínútum áður en þessum leik var lokið og tempóið ekkert hérna í kvöld. Bónus-deild karla Stjarnan UMF Njarðvík