Uppgjörið: Stjarnan 71-74 Haukar | Íslandsmeistararnir tylla sér á toppinn Andri Már Eggertsson skrifar 10. febrúar 2026 20:00 Valur - Haukar Bónus Deild Kvenna Vetur 2026 vísir/Diego Ríkjandi Íslandsmeistarar Hauka tylltu sér á topp Bónus deildar kvenna í körfubolta í kvöld með sigri gegn Stjörnunni er liðin mættust í spennandi leik í ÞG Verk höllinni í Garðabæ. Lokatölur 71-74 sigur Hauka. Þrátt fyrir að vera töluvert neðar í deildinni fyrir leik kvöldsins mættur Stjörnukonur tilbúnar til leiks í kvöld og leiddu með ellefu stigum, 40-29, þegar að flautað var til hálfleiks. Það býr hins vegar mikið í liði Íslandsmeistaranna og þær slógu frá sér í seinni hálfleik. Lokamínúturnar voru æsispennandi og þriggja stiga karfa Diljár Agnar Lárusdóttur fyrir Stjörnuna þegar rétt um 41 sekúnda eftir lifði leiks sá til þess að Haukar leiddu aðeins með einu stigi, 71-72. Haukakonur náðu hins vegar að hanga á forystu sinni og sigldu að lokum heim þriggja stiga sigri, 71-74 og tylltu sér þar með á topp Bónus deildarinnar, hið minnsta um stundarsakir. Heimakonur í Stjörnunni tóku frumkvæðið og fóru vel af stað. Fyrstu fjórar sóknir liðsins enduðu allar með körfu og eftir því sem leið á leikhlutann byggði Stjarnan upp forskot. Haukar voru þó ekki langt undan og staðan var 23-17 eftir fyrsta fjórðung. Garðbæingar gáfu ekkert eftir og gerðu fyrstu sex stigin í öðrum leikhluta. Emil Barja, þjálfari Hauka, neyddist til að taka leikhlé þegar tvær mínútur voru liðnar af öðrum leikhluta tólf stigum undir 29-17. Sóknarleikur Hauka var í engu sambandi og það tók gestina fimm mínútur að gera fyrstu stigin í öðrum leikhluta. Haukar fundu betri takt eftir því sem leið á annan leikhluta en það sló ekki Stjörnuna út af laginu sem var ellefu stigum yfir í hálfleik 40-29. Haukar komu beittari út í seinni hálfleik. Ólíkt fyrri hálfleik voru þriggja stiga skot Hauka að rata ofan í. Sex af sjö körfum liðsins í þriðja leikhluta voru þriggja stiga körfur og munurinn fór minnst niður í fjögur stig en Stjarnan átti áhlaup undir lokin og staðan var 59-49 þegar haldið var í síðasta fjórðung. Íslandsmeistararnir voru ekki á því að leggjast niður og láta rúlla yfir sig. Haukar gerðu sjö stig í röð í upphafi fjórða leikhluta sem varð til þess að Ólafur Jónas Sigurðsson, þjálfari Stjörnunnar, tók leikhlé. Þegar tæplega ein og hálf mínúta var eftir komust gestirnir yfir í fyrsta skipti í leiknum. Haukar unnu að lokum þriggja stiga sigur 71-74. Atvik leiksins Þriggja stiga karfa Amandine Justine Toi sem kom Haukum yfir í fyrsta skipti í leiknum þegar aðeins ein og hálf mínúta var eftir. Stjörnur og skúrkar Krystal-Jade Freeman, leikmaður Hauka, var öflug í kvöld. Hún gerði 15 stig og tók 9 fráköst og endaði með 20 framlagspunkta. Diljá Ögn Lárusdóttir, leikmaður Stjörnunnar, setti stórt þriggja stiga skot ofan í sem minnkaði muninn í eitt stig þegar lítið var eftir. Diljá endaði með 9 stig og tók 8 fráköst og með hana inn á vellinum vann Stjarnan þær mínútur með sex stigum. Stjarnan gerði aðeins eina körfu síðustu fimm og hálfa mínútuna sem kostaði leikinn. Tankurinn var alveg tómur hjá stelpunum og þeim gekk bölvanlega að koma stigum á töfluna. Dómarar Dómarar kvöldsins voru Jón Þór Eyþórsson, Birgir Örn Hjörvarsson og Dominik Zielinski. Ólafur Jónas Sigurðsson, þjálfari Stjörnunnar, var afar ósáttur með hversu fast Haukar fengu að spila þá sérstaklega í fjórða leikhluta. Líklega hefur Ólafur eitthvað til síns máls þar sem hann leggur það ekki í vana sinn að gagnrýna störf dómara. Stemning og umgjörð Fyrir leik voru Stjörnustelpur í níunda og tíunda flokki sem urðu bikarmeistarar á dögunum heiðraðar. Þær mættu inn á völlinn og fengu standandi lófaklapp fyrir frábæran árangur. Emil Barja, þjálfari Hauka, var ánægður með sigur kvöldsins gegn Stjörnunni. „Ég hafði ekki miklar áhyggjur af þessu“ Emil Barja var ánægður með sigurinnVísir/Pawel „Við fórum að setja boltann ofan í. Þetta var ótrúlegur fyrri hálfleikur þar sem við brenndum af sniðskotum og opnum þristum um leið og maður fer að klikka verður allt aðeins erfiðara. Við hreinsuðum hugann í hálfleik og þá kom meiri stemning í liði og þetta helst allt í hendur,“ sagði Emil í viðtali eftir leik. Haukar gerðu ekki körfu á fimm mínútum í öðrum leikhluta sem Emil fannst afar sérstakt í ljósi þess að skotin voru opin. „Ég skildi það ekki. Við fengum fullt af opnum þristum og sniðskotum. Við vorum að ná sóknarfráköstum líka en það var eins og einhver hafði sett lok á körfuna.“ Emil var ánægður með seinni hálfleik liðsins þar sem skotin fóru ofan í og liðið spilaði betur. „Við slökuðum á og tókum góð skot. Við erum gott skotlið og ég hafði ekki miklar áhyggjur af þessu þar sem ég vissi að þetta myndi detta.“ Ólafur Jónas Sigurðsson, þjálfari Stjörnunnar, sagði í viðtali eftir leik að Haukar hafi komist upp með að spila of fasta vörn. Aðspurður út í þau ummæli var Emil ekki sammála því. „Mér fannst það frekar öfugt. Þær voru mun fastari fyrir ef eitthvað var í fyrri hálfleik en mögulega breyttist það í síðari hálfleik. Mér fannst þetta ágætlega dæmdur leikur,“ sagði Emil að lokum.
Bónus-deild kvenna Stjarnan Haukar Mest lesið Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Golf Hljóp lengra en nokkur annar íslenskur karlmaður hefur gert Sport FH-ingurinn sem er fljótastur í Evrópu: „Góð gen eða eitthvað“ Íslenski boltinn Svaf ekki í margar nætur áður en hann tók ákvörðunina um Arsenal Enski boltinn „Persónuleg mál sem ég þurfti að eiga við“ Körfubolti Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Körfubolti Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Fótbolti „Af öllum stöðum þá er KA-heimilið alltaf best“ Sport „Á morgun mun ég reima á mig takkaskóna í síðasta sinn“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Starfsfólki og þjálfurum Knicks finnst það vera svikið Trump sakar LeBron um að sýna Bandaríkjunum vanvirðingu „Kærkominn“ og „lífsnauðsynlegur“ sigur „Ég hef áhyggjur en ég er ekki áhyggjufullur“ Uppgjörið: KR - Ármann 108-74 | Frystir í Frostaskjóli „Persónuleg mál sem ég þurfti að eiga við“ „Vonandi ekki okkar einkennismerki“ Uppgjörið: Grindavík - Stjarnan 98-90 | Fyrsti sigur Grindavíkur en Stjarnan bíður enn Uppgjörið: Njarðvík-Valur 85-93 | Ólík staða eftir öruggan Valssigur Uppgjörið: Höttur - ÍR 108-96 | Heimamenn sterkari í seinni Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Sýður á Hlyni eftir að met hans var bætt Sex handtekin vegna hrikalegs hneykslis í grískum körfubolta „Fjandinn hafi það, þetta versnar varla úr þessu“ Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Er skrefareglan dauð í NBA? Bestu byrjanir táninga í körfunni: Gerði betur en Tryggvi og Jón Arnór Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Uppgjörið: Grindavík-Keflavík 89-75 | Grindavíkurkonur á skriði og eru taplausar á toppnum Reiður LeBron lét stuðningsmenn Knicks heyra það Nablinn grillaði verstu liðin: „Er bærinn Hveragerði líka í fallbaráttu?“ Lagði meistarana í fyrsta leik með nýju liði Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Uppgjörið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Þriðji Stjörnusigurinn í röð þrátt fyrir stórleik þeirrar argentínsku Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Sjá meira