KR - Álfta­nes | Brosandi bikar­meistarar fögnuðu sigri eftir mikla spennu

Kári Mímisson skrifar
KR-ingar fögnuðu sigri.
KR-ingar fögnuðu sigri. vísir/Anton

Nýkrýndir bikarmeistarar KR tóku á móti Álftanes í 17. umferð Bónus deildar karla í körfubolta nú í kvöld. Svo fór að lokum að KR vann með sjö stigum eftir afar spennandi leik og héldu því áfram sigurhrinu sinni en liðið hefur nú unnið sjö leiki í röð. Lokatölur 87-80.

Leikurinn fór vel af stað hér í Vesturbænum en jafnræði var á milli liðanna í upphafi leiks. Liðin skiptust á að leiða í fyrri hálfleik en munurinn varð aldrei meiri en fimm stig. Þegar líða fór á fyrri hálfleikinn fór hraði leiksins að aukast en það hefur verið einkennismerki KR á þessari leiktíð. Sterkt lið Álftnesinga með Hauk Helga Pálsson fremstan meðal jafningja átti þó í engum vandræðum að halda í við spræka KR-inga í fyrri hálfleik. Rétt áður en flautað var til leikhlés tókst Þóri Þorbjarnarsyni, fyrirliða KR, að koma sínum mönnum í 44-42 og það voru því heimamenn sem héldu til búningsherbergja með tveggja stiga forystu.

Það sama var uppi á teningnum í seinni hálfleiknum þar sem hvorugu liðanna tókst að taka frumkvæðið í leiknum og áfram var mjótt á munum. Þegar um sex mínútur voru eftir af leiknum komust gestirnir frá Bessastöðum fimm stigum yfir og tóku frumkvæðið í leiknum á þessum mikilvæga tímapunkti. Bikarmeistarar KR voru þó ekkert á því að gefast upp og jöfnuðu á örskotsstund.

Lokamínútan var svo æsispennandi. Þegar 43 sekúndur voru eftir af leiknum fékk Dúi Þór Jónsson tækifæri til að jafna leikinn af vítalínunni í stöðunni 81-79. Því miður fyrir hann tókst honum aðeins að setja seinna vítið niður. KR-ingar héldu í sókn þar sem Toms Elvis Leimanis setti niður þriggja stiga skot og kom KR í tveggja körfu forystu þegar um 30 sekúndur voru á klukkunni. James Justin freistaði þess að halda Álftnesingum inn í leiknum í næstu sókn en ótímabært skot hans var aldrei á leiðinni að körfunni. Lokatölur úr Vesturbænum urðu 87-80 fyrir KR sem hafa nú unnið sjö sigra í röð.

Atvik leiksins

Það er auðvelt í dag. Þessi þristur hjá Toms Elvis var risastór og fór ansi langt með sigur KR hér í kvöld.

Stjörnur og skúrkar

Nýju Lettarnir hjá KR fá hrós dagsins. Toms Elvis og Rinalds Malmanis voru virkilega góðir í kvöld. Rinalds setti niður 19 stig og reif niður 11 fráköst, ekki amalegt í fyrsta heimaleik hans fyrir KR. Toms var með 18 stig í dag og 5 stoðsendingar, þá steig hann heldur betur upp fyrir liðið undir lokin.

Hjá gestunum var James Justin atkvæðamestur en hann skoraði 25 stig, tók niður 7 fráköst og gaf 5 stoðsendingar. Eftir svona leik þá væri virkilega ósanngjarnt að nefna hann sem einhvern skúrk en þetta lokaskot hans var auðvitað mjög örvæntingarfullt.

Dómarinn

Þeir Sigmundur, Sigurbaldur og Bergur dæmdu í gráu og héldu þétt um flautuna. Það voru nokkri með skoðun í stúkunni á þeirra störfum í kvöld en svona heilt yfir var þetta flott hjá þeim og þeir ganga eflaust sáttir frá þessu verkefni.

Stemning og umgjörð

Það er alltaf rosaleg stemning í Vesturbænum og auðvitað var þétt setið í kvöld í fyrsta leik KR eftir að hafa orðið Bikarmeistarar. Þá verður líka að hrósa Álftnesingum sem mættu sömuleiðis vel í stúkuna hér í kvöld og létu sitt ekki eftir liggja.

Hjalti: Barningur í seinni hálfleik og herslumunurinn hjá KR

Hjalti Þór Vilhjálmsson, þjálfari Álftanes, var vonsvikin eftir tap liðsins gegn KR nú í kvöld.

„Ég er aðallega bara svekktur. Þetta var rosalega orkulítill leikur, sérstaklega í fyrri hálfleik. Það var mjög dauft yfir liðunum og þetta var eiginlega bara hálf leiðinlegt. Okkur vantaði smá að grípa þetta þegar færi gafst og taka yfir þennan leik í fyrri hálfleik. Í seinni hálfleik var meiri barningur og kítingur þar sem bæði lið voru meira tilbúin í að stela þessu.“ Segir Hjalti strax að leik loknum.

Leikurinn var jafn og spennandi allan tíman og það munaði í rauninni ekki miklu að þetta félli fyrir Álftnesinga. Hjalti segir að herslumunurinn hafi verið í þriggja stiga körfu Toms Elvis þegar 30 sekúndur voru eftir af leiknum.

„Þeir setja bara skot niður og í kjölfarið þurftum við bara að fara að brjóta þegar þeir voru komnir fjórum stigum yfir og lítið eftir. Litli Lettinn setur þennan flotta þrist fyrir þá og það var svolítið það sem skildi liðin að. Við hefðum alveg eins getað unnið þetta eins og KR-ingarnir.“

Í síðustu umferð var Hjalti óánægður með leik sinna manna gegn Njarðvík og fór mikinn í viðtölum. Spurður að því hvort hann sæi bata merki á liðinu í dag og eftir leikinn gegn Njarðvík segir Hjalti svo vera.

„Þetta var allt annað lið sem spilaði þennan leik heldur en leikinn gegn Njarðvík. Við vorum ömurlegir gegn Njarðvík. Þetta var miklu heilsteyptari frammistaða sem við sýndum hér í kvöld. Við þurfum samt sóknarlega að halda áfram að láta boltann vinna betur og gera þetta miklu meira saman. Það var himin og haf þessi leikur í kvöld og gegn Njarðvík í síðustu umferð.“

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira