KR - Álftanes | Brosandi bikarmeistarar fögnuðu sigri eftir mikla spennu Kári Mímisson skrifar 12. febrúar 2026 21:10 KR-ingar fögnuðu sigri. vísir/Anton Nýkrýndir bikarmeistarar KR tóku á móti Álftanesi og fögnuðu 87-80 sigri eftir hörkuspennandi leik í 17. umferð Bónus deildar karla. Liðin skiptust margsinnis á forystunni og ómögulegt var að segja til um hvort þeirra myndi standa uppi sem sigurvegari. Staðan var jöfn þegar tæpar þrjár mínútur voru eftir en KR var komið í bónus og nýtti vítin vel undir lok leiks. Þriggja stiga skot frá Toms Leimanis á mikilvægum tímapunkti hjálpaði líka mikið við að tryggja sigurinn en Álftanes fór illa með sín færi og Justin James átti skelfilegt skot undir blálokin. KR komst upp að hlið Keflavíkur í 5. sæti deildarinnar með þessum sigri en Keflvíkingar eiga leik til góða gegn toppliði Grindavíkur á morgun. Tapið setur Álftanes hins vegar í vonda stöðu. Liðið er í 8. sæti deildarinnar og í hættu á að missa af úrslitakeppninni ef illa fer í næstu umferðum. Nánari umfjöllun og viðtöl eru væntanleg á Vísi von bráðar… Bónus-deild karla KR UMF Álftanes