Nýtt samkomulag eða nýtt vopnakapphlaup? Samúel Karl Ólason skrifar 10. febrúar 2026 10:53 Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hefur talað um að hefja tilraunasprengingar með kjarnorkuvopn á nýjan leik og jafnvel að fjölga virkum vopnum. AP/Jose Luis Magana Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, og meðlimir ríkisstjórnar hans eru að skoða hvort virkja eigi fleiri kjarnorkuvopn og íhuga mögulega tilraunasprengingu. Þetta hafa embættismenn Trumps gert ljóst á undanförnum dögum, síðan síðasti kjarnorkuvopnasamningurinn milli Bandaríkjanna og Rússlands rann sitt skeið í síðustu viku.
Bæði skref myndu fela í sér umfangsmiklar breytingar á langvarandi viðmiðum Bandaríkjanna varðandi kjarnorkuvopn. Bandaríkjamenn hafa ekki fjölgað virkum kjarnorkuvopnum í nærri því fjörutíu ár. Er þar átt við kjarnorkuvopn sem búið er að koma fyrir á eldflaugum í eldflaugabyrgjum, í kafbátum eða sprengjuflugvélum, svo eitthvað sé nefnt. Vopn sem eru tilbúin til notkunar með tiltölulega skömmum fyrirvara. Trump yrði fyrsti forseti Bandaríkjanna til að fjölga virkum kjarnorkuvopnum síðan Ronald Reagan hélt til í Hvíta húsinu, samkvæmt frétt New York Times. Bandaríkjamenn sprengdu síðast kjarnorkusprengju árið 1992 en Trump sagði í fyrra að hann vildi hefja tilraunasprengingar á nýjan leik, á jöfnum grundvelli gagnvart Rússlandi og Kína. Gömul umræða og ný Samkomulagið sem kallað hefur verið New Start var undirritað árið 2010 og snerist um fækkun langdrægra kjarnorkuvopna og takmarkanir á fjölda vopna og hergagna sem hægt er að nota til að skjóta kjarnorkuvopnum. Má þar nefna langdrægar skotflaugar, kafbáta og sprengjuflugvélar. New Start fól í sér að Bandaríkjamenn og Rússar mættu ekki eiga fleiri virk kjarnorkuvopn en um það bil 1.550. Þetta samkomulag féll úr gildi í síðustu viku en Trump-liðar vildu ekki framlengja það. Bandaríkjamenn hafa haldið því fram að samkomulagið hafi falið í sér óhóflegar einhliða takmarkanir á Bandaríkin og hafa þeir einnig kvartað yfir því að Rússar hafi brotið gegn öðrum samkomulögum sem gerð hafa verið við þá. Þessi umræða átti sér einnig stað á fyrra kjörtímabili Trumps. Sjá einnig: Varar við nýju vígbúnaðarkapphlaupi Þá hafa Bandaríkjamenn lengi kvartað yfir því að bæði Rússar og Kínverjar séu að þróa og framleiða kjarnorkuvopn sem New Start fjallaði ekki um. Þeir segja að nýtt samkomulag þurfi einnig að eiga við um Kínverja, sem séu að fjölga kjarnorkuvopnum sínum verulega þessa dagana, þó þau séu enn mun færri en vopn Bandaríkjanna og Rússlands. Háttsettur bandarískur erindreki sagði í Genf á dögunum að Bandaríkjunum væri nú frjálst að halda áfram nútímavæðingu kjarnorkuvopna en hundruðum milljarða dala hefur verið varið í viðhald og viðbætur á eldflaugabyrgjum, nýja kafbáta og nýjar sprengjuflugvélar sem borið geta kjarnorkuvopn. Hann sagði til greina koma að fjölga virkum vopnum og að þróa nýja tegundir skammdrægari kjarnorkuvopna, eins og Rússar hafi verið að virkja á undanförnum árum. Ummæli sem þessi gætu verið til þess ætluð að fá bæði Rússa og Kínverja að samningaborðinu til að gera nýtt samkomulag um fjölda kjarnorkuvopna og virkjun þeirra. Einnig er mögulegt að ráðamenn í Rússlandi og Kína taki þá ákvörðun að fjölga eigin vopnum.
Bandaríkin Rússland Kína Donald Trump Vladimír Pútín Kjarnorkuvopn Hernaður Tengdar fréttir Höfnuðu kröfum Bandaríkjamanna Ráðamenn í Íran segjast ekki ætla að hætta auðgun úrans. Þetta kom fram í máli íranskra erindreka í viðræðum þeirra við bandaríska erindreka í Óman í dag en Íranar munu þó hafa sagst opnir fyrir einhvers konar málamiðlun til að koma í veg fyrir mögulegar loftárásir Bandaríkjamanna. 6. febrúar 2026 16:48 Einungis einn herforingi eftir í miðstjórn kínverska hersins Xi Jinping, forseti Kína, hefur staðið fyrir miklum hreinsunum innan hersins. Margir háttsettir herforingjar hafa verið sviptir embættum og sakaðir um ýmis brot. Xi skipaði þá flesta sjálfur í stöður þeirra en síðan þá hafa þeir verið settir til hliðar og rannsakaðir fyrir hin ýmsu brot eins og spillingu. 4. febrúar 2026 11:00 Svíar líta til kjarnorkuvopna Ulf Kristersson, forsætisráðherra Svíþjóðar, segir að ríkisstjórn hans hafi átt í grunnviðræðum við yfirvöld Í Bretlandi og í Frakklandi um mögulegt samstarf á sviði kjarnorkuvopna. Ummælin þykja benda til þess að ráðamenn í Evrópu telji sig geta mögulega ekki reitt sig á vernd Bandaríkjanna. 27. janúar 2026 22:50 Kim ánægður með nýjar stýriflaugar Yfirvöld í Norður-Kóreu sögðu frá því í morgun að gerð hefði verið tilraun með langdræga stýriflaug sem á að geta borið kjarnorkuvopn. Tveimur slíkum var skotið á loft í gær, nokkrum dögum eftir að Kim Jong Un, einræðisherra Norður-Kóreu, skoðaði kjarnorkuknúinn kafbát sem verið er að smíða þar. 29. desember 2025 14:26 Mest lesið Sigmundur Davíð helsti áhrifavaldur á afstöðu Össurar í ESB-málinu Innlent „Fólkið er að öskra: Donald Trump, komdu núna“ Innlent Ragnheiður Erla Bjarnadóttir er látin Innlent Bjóða Frosta að ræða „villuljós“ í Háskóla Íslands Innlent Biðlar til Løkke að mynda með sér miðhægristjórn Erlent Haaland keypti Heimskringlu á 17 milljónir Erlent Glæsibrú á Vestfjörðum boðin út í næsta mánuði Innlent Köldu lofti beint til landsins og djúp lægð nálgast Veður Tæplega þúsund drónar á einum sólarhring Erlent Vill halda áfram sem forsætisráðherra Erlent Fleiri fréttir Vill halda áfram sem forsætisráðherra Íranir segja engar viðræður í gangi þvert á yfirlýsingar Trumps Biðlar til Løkke að mynda með sér miðhægristjórn Tæplega þúsund drónar á einum sólarhring Haaland keypti Heimskringlu á 17 milljónir „Markmiðið er ekki að komast til tunglsins, heldur búa þar“ Útgönguspá: Ríkisstjórninni refsað en Løkke í lykilstöðu Sendir líka fallhlífarhermenn til Mið-Austurlanda Listamaður reyndi að kaupa atkvæði Gengst nú við að gaspra í Rússa Trump „svindlaði“ í kosningum í Flórída Ísraelar hyggjast hernema suðurhluta Líbanon Á rúntinum með andefni Danir ganga að kjörborðinu í afar spennandi kosningum Gervigreindarmyndskeiðum af barnaníði fjölgar gífurlega Meloni beið „bitran“ ósigur í þjóðaratkvæðagreiðslu Viðræður eða ekki viðræður, þarna er efinn Notuðu myndavélar klerkastjórnarinnar til að fella Khamenei Sakar Orbán og félaga um landráð Íranir segja engar viðræður við Trump-liða eiga sér stað Deila á Bandaríkjaforseta fyrir að dansa á gröf rannsakanda Líklegt að Rasmussen verði í oddastöðu eftir kosningar Eigandi OnlyFans látinn Gerir hlé á árásum á Íran Lionel Jospin er látinn Kveikt í sjúkrabílum Gyðinga í London Ungverjar út í kuldann vegna leka til Rússa LaGuardia lokað vegna áreksturs við slökkviliðsbíl Sósíalistinn Grégoire nýr borgarstjóri Parísar Trump og Starmer ræddu Hormuz-sund Sjá meira
Höfnuðu kröfum Bandaríkjamanna Ráðamenn í Íran segjast ekki ætla að hætta auðgun úrans. Þetta kom fram í máli íranskra erindreka í viðræðum þeirra við bandaríska erindreka í Óman í dag en Íranar munu þó hafa sagst opnir fyrir einhvers konar málamiðlun til að koma í veg fyrir mögulegar loftárásir Bandaríkjamanna. 6. febrúar 2026 16:48
Einungis einn herforingi eftir í miðstjórn kínverska hersins Xi Jinping, forseti Kína, hefur staðið fyrir miklum hreinsunum innan hersins. Margir háttsettir herforingjar hafa verið sviptir embættum og sakaðir um ýmis brot. Xi skipaði þá flesta sjálfur í stöður þeirra en síðan þá hafa þeir verið settir til hliðar og rannsakaðir fyrir hin ýmsu brot eins og spillingu. 4. febrúar 2026 11:00
Svíar líta til kjarnorkuvopna Ulf Kristersson, forsætisráðherra Svíþjóðar, segir að ríkisstjórn hans hafi átt í grunnviðræðum við yfirvöld Í Bretlandi og í Frakklandi um mögulegt samstarf á sviði kjarnorkuvopna. Ummælin þykja benda til þess að ráðamenn í Evrópu telji sig geta mögulega ekki reitt sig á vernd Bandaríkjanna. 27. janúar 2026 22:50
Kim ánægður með nýjar stýriflaugar Yfirvöld í Norður-Kóreu sögðu frá því í morgun að gerð hefði verið tilraun með langdræga stýriflaug sem á að geta borið kjarnorkuvopn. Tveimur slíkum var skotið á loft í gær, nokkrum dögum eftir að Kim Jong Un, einræðisherra Norður-Kóreu, skoðaði kjarnorkuknúinn kafbát sem verið er að smíða þar. 29. desember 2025 14:26