Tímabilið sem flestir vilja gleyma Auður Ösp Guðmundsdóttir skrifar 8. febrúar 2026 09:01 Guðni Th. Jóhannesson, þáverandi forseti í skimun fyrir kórónaveirunni hjá Íslenskri erfðagreiningu í Turninum. Vísir/Vilhelm Þegar Covid-faraldurinn gekk yfir Ísland vorið 2020 breyttist samfélagið nánast á einni nóttu. Dagarnir urðu óvenju hljóðir, göturnar tómar og orð eins og „smitrakning“, „sóttarvarnir“ og „tveggja metra regla“ færðust skyndilega inn í daglegt tal. Það var eins og öll þjóðin hefði verið sett í sameiginlegt tilraunaverkefni sem enginn hafði skráð sig í.
Vilhelm Gunnarsson, ljósmyndari Vísis, fór víða með myndavélina á þessum tíma og fangaði augnablikin sem urðu að sameiginlegu minni þjóðarinnar – frá kuldalegum bílprófunum og þöglum upplýsingafundum til tóms miðbæjar og mannlegra samskipta sem fóru fram í gegnum gler og grímur. Daglegir upplýsingafundir urðu fastur liður í lífi landsmanna. Fólk sat límt við skjáina, fylgdumst með tölum, gröfum og litakóðum og lærðu að bera fram nöfn sem áður höfðu lítið verið á vörum almennings. Heimavinna og fjarkennsla urðu normið. Eldhúsborð breyttust í skrifstofur, börn lærðu í náttfötum og fundir hófust oft á setningunni: „Ertu á mute?“ Samfélagið lærði að nota Zoom, Teams og aðra stafræna töfralausnir, jafnvel þó sambönd slitnuðu stundum bæði tæknilega og andlega. Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra, embætti landlæknis og Landspítalinn bjóða til upplýsingafundar fyrir blaðamenn. Fyrsti fundurinn af mörgum.Vísir/Vilhelm Þrátt fyrir óvissuna, kvíðann og þreytuna var líka samstaða. Fólk klappaði fyrir heilbrigðisstarfsfólki, studdi innlend fyrirtæki og fann nýjar leiðir til að vera saman í sundur. Í dag rifjum við þetta upp með blöndu af furðu og hálfgerðri nostalgíu. Covid-tíminn var skrítinn, krefjandi og ógleymanlegur kafli í íslenskri samtímasögu – kafli sem minnti okkur á bæði hversu brothætt samfélagið er og hversu fljótt við getum aðlagast. Skimun fyrir kórónaveirunni hjá Heilsugæslunni á Höfða.Vísir/Vilhelm Félagar í Hjálparsveit skáta í Kópavogi dreifa matvælum fyrir Fjölskylduhjálpina í samkomubanni.Vísir/Vilhelm Sjúkraflutningamenn koma með sjúkling á Landspítalann í Fossvogi.Vísir/Vilhelm Guðlaug Edda Hannesdóttir þríþrautarkona æfði fyrir Ólympíuleikana í Tókýó í bílskúrnum heima í lítilli laug sem hún keypti í Costco eftir að sundlaugum var lokað vegna Covid-19. Leikunum var á endanum frestað til ársins 2021. Vísir/Vilhelm Lögð var áhersla á að vernda viðkvæma hópa, til dæmis aldraða og einstaklinga með undirliggjandi sjúkdóma. Því voru heimsóknir takmarkaðar á hjúkrunar- og dvalarheimilum. Guðmundur Magnússon og Gunnhildur Skaftadóttir heilsast hér í gegnum rúðuna.Vísir/Vilhelm Það gildi það sama um miðbæinn eins og ferðamannastaðina þegar samkomubönn stóðu sem hæst. Veitingastaðir og öldurhús lokuð og fáir á ferli. Þessa mynd tók Vilhelm á föstudagskvöldi í miðborginni.Vísir/Vilhelm Icelandair var eitt þeirra ferðaþjónustufyrirtækja sem átti erfitt ár en um haustið 2020 var greint frá því að félagið hefði fellt niður um 75 prósent allra flugferða það sem af var september. Vísir/Vilhelm Sýnatökur hjá Heilsugæslunni á Höfuðborgarsvæðinu.Vísir/Vilhelm Menntaskólakrakkar læra með grímur í skólum eftir mikla aukningu á Covid smitum og fá afhentar grímur hjá skólanum.Vísir/Vilhelm Ríkisstjórnin boðar hertar aðgerðir gegn kórónuveirunni á blaðamannafundi í Hörpu.Vísir/Vilhelm Alþingisfundur á tímum Covid. Katrín Jakobsdóttir þáverandi forsætisráðherra teygir sig í sprittbrúsann.Vísir/Vilhelm Ríkisstjórn Íslands kynnir tillögur í efnahagsaðgerðum. Katrín Jakobsdóttir ávarpar blaðamenn.Vísir/Vilhelm Undankeppni EM í handbolta Laugardalshöll. Ísland á móti Litháen - og tómir áhorfendapallar.Vísir/Vilhelm Slökkvilið Höfuðborgarsvæðisins græjar sig í Covid galla.Vísir/Vilhelm Bólusetning 80 ára og eldri gegn kórónuveirunni í Laugardalshöll.Vísir/Vilhelm Sýnataka vegna Covid hjá Heilsugæslu Höfuðborgarsvæðisins.Vísir/Vilhelm Bólusetning gegn Covid í Laugardalshöll.Vísir/Vilhelm Bólusetning fór fram í Laugardalshöll og Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir fékk fyrsta skammt af bóluefni AstraZeneca. Klappað var fyrir honum þegar hann gekk í salinn.Vísir/Vilhelm Tíu þúsund bólusettir með Pfizer í Laugardalshöll, þar á meðal Alma Möller landlæknir.Vísir/Vilhelm Upplýsingafundur Almannavarna vegna Covid.Vísir/Vilhelm Covid sýnataka á Suðurlandsbraut hjá Heilsugæslu Höfuðborgarsvæðisins.Vísir/Vilhelm Bólusetningar barna hefjast í Laugardalshöll.Vísir/Vilhelm
Einu sinni var... Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Heilbrigðismál Myndasögur Vilhelms Mest lesið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Lífið Megas er látinn Lífið Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Lífið Guðrún Sóley gengin út Lífið „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Lífið Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Lífið Britney á stóra skjáinn Bíó og sjónvarp Skvísur og töffarar fögnuðu með Elvari Tónlist Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið Lífið Stórbrotinn stíll Zendayu Tíska og hönnun Fleiri fréttir Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island „Klukkan er fimm einhvers staðar“ „Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Snæddi með furstanum af Mónakó Kyssti ekki Maguire heldur tottaði rafrettu Sjá meira