Rússar gera árásir á orkuinnviði í Úkraínu Hólmfríður Gísladóttir skrifar 3. febrúar 2026 07:00 Íbúar í Kænugarði hlýja sér við opinn eld. Getty/NurPhoto/Maxym Marusenko Rússar gerðu árásir á orkuinnviði og íbúðarhúsnæði í Úkraínu í nótt. Fjórir særðust í árásunum, bæði í Kænugarði og Kharkív. Að sögn vitna mátti heyra háværar sprengingar og þá kviknuðu eldar. Skemmdir urðu á innviðum á fimm svæðum, meðal annars á byggingu þar sem rekinn er leikskóli.
Ihor Terekhov, borgarstjóri Kharkív, segir árásirnar hafa beinst að orkuinnviðum. Markmiðið væri augljóslega að valda sem mestum skaða og freista þess að svipta íbúa möguleikanum á því að halda á sér hita í kuldanum. Ríkismiðillinn Suspilne sagði rafmagn hafa farið af tveimur bæjum í Kharkív, Izium og Balakliia. Frost fór niður í -20 gráður í Kænugarði í nótt. Þríhliða viðræður Rússa, Úkraínu og Bandaríkjanna munu halda áfram á morgun. Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði í gær að mögulega væru góðar fréttir handan við hornið, þar sem gangur væri í viðræðunum. Þá sagði Vólódimír Selenskí Úkraínuforsti að hann teldi raunhæft að semja um varanlegan frið. Financial Times greindi frá því í morgun að samkomulag hefði náðst um aðgerðir af hálfu Evrópu og Bandaríkjanna ef Rússar brytu gegn mögulegu vopnahléi. Utanríkisráðherra Rússlands, Sergei Lavrov, ítrekaði hins vegar í gær að Rússar myndu ekki samþykkja né sætta sig við erlendar hersveitir eða hernaðarinnviði í Úkraínu.
Úkraína Rússland Innrás Rússa í Úkraínu Hernaður Bandaríkin Mest lesið Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Innlent Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Innlent Suðaustan stormur og gul viðvörun Veður Vill nýjan Úkraínuforseta Erlent Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Erlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Fleiri fréttir Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Útskrifuð af sjúkrahúsi og send aftur í fangelsið Vill nýjan Úkraínuforseta Lést eftir árás tígrisdýrs í dýragarði Níu létust eftir skotárás Þrjú börn meðal fimmtán látinna í árás á íbúðarblokkir Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Þúsundum gert að yfirgefa heimili sín vegna Isaias Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Trump samdi við Pútín um dísel Vance biðlar til ungra reiðra manna Ætla að „binda enda“ á stríðsglæpadómstól Skólum lokað eftir árásir og tíu handteknir vegna hótana Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Bein útsending: Hver hlýtur friðarverðlaun Nóbels? Yfir sjötíu þúsund mótmæltu þrátt fyrir umbótatillögur Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Ætla að streyma aftöku í beinni Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Tveir Lettar handteknir á breskri herstöð í nótt Máttu ekki leita hjá fyrrverandi prinsi vegna Epstein-tengsla Breskur hermaður ákærður fyrir njósnir Hættu við að ræða upplýsingafals undir þrýstingi frá Bandaríkjastjórn Segir í tísku að setja alþjóðasamfélagið ofar eigin þjóð Sjá meira