„Lúxusvandamál“ að velja og hafna á listann Rafn Ágúst Ragnarsson og Agnar Már Másson skrifa 31. janúar 2026 20:41 Björg Magnúsdóttir er oddviti Viðreisnar í Reykjavík í kosningunum í vor. Vísir/Lýður Valberg Björg Magnúsdóttir oddviti Viðreisnar í Reykjavík segir næsta mál á dagskrá að stilla upp sigurstranglegum lista. Hún segir öflugt fólk hafa boðið sig fram gegn sér í oddvitaslagnum og að það verði skoðað af alvöru hvort ekki verði hægt að fá eitthvað þeirra til að taka sæti. „
Það verður lúxusvandamál að koma saman öflugum lista,“ segir hún. Fréttastofa náði af henni tali þegar ljóst var að hún yrði oddviti flokksins í sveitarstjórnarkosningunum í vor. Aðspurð sagði hún sér líða sem hún væri komin út fyrir líkama sinn. Björg hlaut alls 1011 atkvæði eða tæplega helming atkvæða. Aðalsteinn Leifsson aðstoðarmaður utanríkisráðherra og formanns flokksins hafnaði í öðru sæti og hlaut 587 atkvæði. Ég get ekki beðið eftir að takast á við verkefnið framundan, fara að vinna fyrir Reykvíkinga. Það er það sem þetta snyst um,“ segir hún. Björg og stuðningsmenn hennar voru fyrr í dag sakaðir um að hafa brotið kosningareglur Viðreisnar með því að hafa samband við flokksmenn sem væru bannmerktir í gagnagrunni flokksins og ekki mætti hafa samband við. „Ég var í símanum i allan dag að koma heyinu í hús. Einhverjir stuðningsmenn mínir hafa farið villt en ég er griðarlega ánægð með að fá svona sterkt umboð.“ Hún segist hafa fundið fyrir miklum krafti frá grasrót flokksins en að stuðningsfólk hennar sé breiðfylking. „Hér á bak við mig er helsti stuðningsmaður minn. Hann er 99 ára og býr við hliðina á mér.“ Björg kveðst ekki útiloka samstarf með neinum flokki í borgarstjórn. Hún viti ekki nóg til þess að geta úttalað sig um slíkt að svo komnu máli. Hún skoði alla möguleika.
Viðreisn Sveitarstjórnarkosningar 2026 Reykjavík Mest lesið Nauðgaði konu í lok ferðar þeirra um Ísland Innlent „Draga mig, mitt nám og minn starfsferil niður í svaðið“ Innlent Þau sóttu um starf sveitarstjóra á Skagaströnd Innlent Gerðar út fyrir tuttugu þúsund krónur á hálftímann Innlent Gerðu árás á stærstu olíuhreinsunarstöð Rússa í Síberíu Erlent NATO-stjóri segir Trump hafa rétt fyrir sér um allt Erlent Yfir 300 börn farist eða særst og varað við stórslysi Erlent Tóku sýni úr munni móðurinnar og rannsaka mögulegt mannát Erlent „Þessi kona er ekkert skyni skroppin“ Innlent Ákærð fyrir að kæfa börn sín sem hún sagði hafa látist af völdum bólusetingar Erlent Fleiri fréttir „Mjög er horft til þess sem Bandaríkjaforseti segir“ Íslendingar munu keppa um Bermúdaskálina Ein þurft að þjónusta 80 kaupendur á þremur sólarhringum Þór lætur Bandero eiga sig og sinnir öðrum málum „Draga mig, mitt nám og minn starfsferil niður í svaðið“ Funda um niðurstöðu héraðsdóms Evru-Ísland óskalandið hvenær kemur þú? Sögufræg Douglas DC 6 á leiðinni til Reykjavíkur Nauðgaði konu í lok ferðar þeirra um Ísland Átök í hvalveiðiumræðunni og fælingarmáttur lögregluaðgerða Þrjú sveitarfélög á þremur kjörtímabilum „Þetta er eins og á tónlistarhátíð“ Kristrún og Þorgerður á NATO-fundinum í Ankara Brúnni lokað eftir að steypubíll hafnaði í Þjórsá Þau sóttu um starf sveitarstjóra á Skagaströnd Handtekinn vegna líkamsárásar Gerðar út fyrir tuttugu þúsund krónur á hálftímann Á hæsta forgangi vegna steypubíls sem lenti í Þjórsá Gul viðvörun á Suðurlandi á morgun „Þessi kona er ekkert skyni skroppin“ „Enginn búið til fleiri þjóðaratkvæðagreiðslur en ég“ Uppljóstrað um kínverskt glæpanet og Kristján Loftsson mætir í beina útsendingu Húsfyllir á stofnfundi hjá Áfram Ísland Fræða almenning í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar Leitar enn hunds sem týndist fyrir 38 árum Átta handteknir vegna fíkniefnaræktunnar Hækka gjald fyrir heilsugæslu og taka upp nýtt fyrir sjúkraþjálfun Ekkert bendi til annars en að um slys hafi verið að ræða Strætó og sláttutraktor lentu saman Enginn handtekinn en áfram áætlað að sömu aðilar hafi verið að verki Sjá meira