Halda styrktarmót til að greiða leið Alexanders til Ally Pally Sindri Sverrisson skrifar 29. janúar 2026 12:02 Alexander Veigar ætlar sér langt og stefnir á HM, þar sem Luke Littler hefur fagnað sigri síðustu tvö ár í röð. Þeir mættust á HM ungmenna í október. Pílukastarinn Alexander Veigar Þorvaldsson hefur sett stefnuna á að komast á sjálft heimsmeistaramótið í Alexandra Palace en leiðin þangað er löng, torfær og kostnaðarsöm.
Til að hjálpa Alexander Veigari í áttina að HM hefur verið boðað til sérstaks styrktarmóts í bæði pílu og golfi á staðnum Nítjándu við Bíldshöfða annað kvöld. Alexander Veigar hefur verið í fremstu röð í pílukastinu á Íslandi síðustu ár og vann nú síðast til að mynda Úrvalsdeildina með sigri á Haraldi Egilssyni í desember, fyrir troðfullum sal á Bullseye. Hann hyggur hins vegar á frekari alþjóðlegan árangur en segir ljóst að ferlið við að komast á HM sé bæði langt og flókið. „Það eru margar leiðir til að komast inn á mótið, sérstaklega eftir að það var stækkað í 128 manns í fyrra. Tvær helstu leiðirnar sem ég er að láta reyna á felast í að reyna að komast inn á PDC túrinn. Það er mótavika sem er haldin í janúar á hverju ári og heitir Q school. Það eru 16 manns sem fengu tour card í ár af 512 í Evrópu. Það að komast inn á túrinn eykur líkurnar töluvert og er ég fyrsti og eini Íslendingurinn sem hefur komist í final stage í Q school,“ sagði Alexander. Pílukastarar á borð við Charlie Manby, sem komst í 16-manna úrslitin á HM um jólin, og Jeffrey de Zwaan tryggðu sig fyrr í þessum mánuði inn á PDC mótaröðina á meðan að til að mynda Fallon Sherrock og Andreas Harrysson þurftu, líkt og Alexander, að sætta sig við að missa af sæti þar. Luke Littler og Gian van Veen voru báðir á HM ungmenna í haust líkt og Alexander Veigar. Þar endaði Van Veen á að vinna mótið en Littler vann svo HM fullorðinna í Ally Pally, annað árið í röð.Getty/Rafah Abduallah „Síðan er það hin leiðin sem er í gegnum sérstök mót eins og PDC Nordic og Baltic. Það er mótaröð innan PDC sambandsins og fá þar efstu tveir hvert árs sæti í Ally Pally. Í heildina eru þetta sirka sex mót á ári [sem Alexander getur komist á HM í gegnum] í alls konar flokkum, eins og til dæmis PDC World Youth Championship. Það er heimsmeistaramót U24 ára. Ég vann mér inn rétt til þess að keppa þar í október síðastliðnum með því að vera annar tveggja efstu í U24-flokki á PDC Nordic og Baltic túrnum,“ sagði Alexander. Alexander mætti einmitt sjálfum heimsmeistaranum, Luke Littler, á HM ungmenna í október og vann tvo leggi gegn honum en tapaði 5-2. Það er hins vegar aðeins sigurvegari HM ungmenna sem kemst beint á HM í Ally Pally og var það Gian van Veen í þetta sinn.
Pílukast Mest lesið Boltinn í vír og Norðmenn segja algjört hneyksli að markið skyldi standa Fótbolti Hökta áfram og mæta Englandi í undanúrslitum Fótbolti Metið kolféll í Laugavegshlaupinu Sport Hissa á útspili Haalands Fótbolti Bellingham sendi sára Norðmenn heim Fótbolti Súrrealískt að spila golf með Trump Fótbolti Tindastóll mætti ekki til leiks Íslenski boltinn Ken Bates látinn Enski boltinn Kinu Rochford sagður myrtur Körfubolti Héldu flugi eftir sigurinn á Íslandi og drottna yfir EM U19 Fótbolti Fleiri fréttir Hökta áfram og mæta Englandi í undanúrslitum Bellingham sendi sára Norðmenn heim Boltinn í vír og Norðmenn segja algjört hneyksli að markið skyldi standa „Ástæðan fyrir því að það er talað um að hún sýni ekki nóg“ Héldu flugi eftir sigurinn á Íslandi og drottna yfir EM U19 Metið kolféll í Laugavegshlaupinu Hissa á útspili Haalands Hélt haus eftir hrun og vann vinkonu sína í úrslitum Wimbledon FH leiðir í bikarnum og ungir ÍR-ingar fögnuðu titli Tap fyrir Þjóðverjum í skrautlegum leik „Frakkar eiga að óttast okkur“ Óðinn óstöðvandi í stórsigri Messi ræður sjálfur hvort hann taki vítin Klopp samþykkir að taka við Þýskalandi Ken Bates látinn Suður-Afríka syrgir landsliðsmann skömmu eftir HM Kinu Rochford sagður myrtur Tindastóll mætti ekki til leiks Súrrealískt að spila golf með Trump Með Haaland á toppi vinsældalistans Annar stórsigur strákanna á EM Strákarnir áfram í milliriðil á EM Maður dagsins á HM: Tveimur árum of seinn á veitingastaðinn Eiga Englendingar kryptónítið hans Haaland uppi í erminni? Segir að það þurfi að skipta oftar um gervigras á Íslandi Nefndi nýja dýrategund eftir markverðinum Sér ekki eftir því að hafa valið Marokkó fram yfir Frakkland Segir að enska liðið verði að „losa um handbremsuna“ gegn Noregi Klopp um flugferðina þegar hann ætlaði að fá Mbappé til Liverpool Svíar setja ríginn til hliðar og segjast halda með Noregi Sjá meira