Að grípa fólk í tíma – forvarnir sem virka á vinnumarkaði Guðrún Rakel Eiríksdóttir skrifar 29. janúar 2026 11:00 Mörg okkar þekkja þá tilfinningu að eiga orðið erfiðara en áður með að ráða við vinnuna. Verkefni sem reyndust nokkuð auðveld eru farin að krefjast meiri orku og fyrirhafnar. Líðan, einbeiting eða líkamleg geta hefur mögulega hrakað smám saman. Oft eru þetta ekki skyndileg veikindi heldur hægfara ferli sem þróast yfir lengri tíma. Spurningin er ekki endilega hvort slíkt geti gerst, heldur hvort brugðist sé við í tíma. Erlendar rannsóknir eru samhljóma um mikilvægi forvarna þegar kemur að heilsu og þátttöku fólks á vinnumarkaði. Snemmtæk íhlutun getur komið í veg fyrir langvarandi veikindi, dregið úr líkum á brotthvarfi af vinnumarkaði og skilað verulegum samfélagslegum og fjárhagslegum ávinningi. Þrátt fyrir þessa þekkingu er algengt að ekki sé brugðist við ástandinu fyrr en einstaklingar eru orðnir óvinnufærir. Margir vinnustaðir bjóða upp á stuðning fyrir starfsfólk sem upplifir vanlíðan eða aukna erfiðleika í starfi, og mikilvægt er að nýta þann stuðning þegar hann er til staðar. Í sumum tilvikum nægir það ekki og þörf er á frekari aðstoð við að halda fólki í starfi og styðja við aukna vinnugetu. Í slíkum aðstæðum teljum við að reynsla og þekking sem skapast hefur innan VIRK Starfsendurhæfingarsjóðs geti nýst með jákvæðum hætti. Forvarnaþjónusta VIRK Í byrjun síðasta árs hóf VIRK að bjóða upp á nýja þjónustuleið í forvarnaskyni fyrir einstaklinga á vinnumarkaði sem finna fyrir auknum erfiðleikum í starfi og minni vinnugetu. Þetta getur verið fólk sem glímir við andlegt eða líkamlegt álag, kulnunareinkenni, stoðkerfisverki, streitu eða annan heilsutengdan vanda sem hefur áhrif á vinnugetu – án þess að vera komið á þann stað að veikindaleyfi sé nauðsynlegt eða hefðbundin starfsendurhæfing eigi við. Ein mikilvægasta nýjungin í þessari þjónustu er aðgengið. Einstaklingar geta sjálfir leitað til VIRK í gegnum heimasíðuna velvirk.is, án þess að þurfa að fara í gegnum heilbrigðiskerfið eða fá tilvísun. Þetta einfaldar ferlið, dregur úr bið og gerir fólki kleift að sækja sér stuðning þegar fyrstu merki um erfiðleika koma fram – ekki mánuðum eða árum síðar. Einstaklingsbundin nálgun Forvarnaþjónustan byggir á heildrænni og einstaklingsbundinni nálgun. Engin tvö mál eru eins og þjónustan er því alltaf sniðin að aðstæðum og þeim vanda sem hver og einn glímir við. Unnið er með stöðu einstaklingsins út frá vinnuaðstæðum, heilsu, líðan og jafnvægi milli vinnu og einkalífs. Valin eru markviss og viðeigandi úrræði sem styðja við einstaklinginn án þess að íþyngja eða raska atvinnuþátttöku. Lögð er áhersla á að úrræðin falli að vinnu og daglegu lífi. Þegar við á er ekki síður mikilvægt að vinna málin í góðri samvinnu við vinnustaðinn enda skiptir vinnuumhverfið miklu máli. Þjónustan er að jafnaði tímabundin og stendur yfir í styttri tíma en almennt gengur og gerist í starfsendurhæfingu. Úrræðin eru jafnframt léttvægari þar sem ekki er um að ræða skilgreindan heilsubrest heldur snemmtækan stuðning sem miðar að því að styrkja bjargráð, draga úr álagi og fyrirbyggja frekara heilsutengt bakslag. Þessi nýja þjónustuleið hjá VIRK hefur nú verið í gangi í um ár og að hluta til sem þróunar- og tilraunaverkefni. Niðurstöðurnar hafa verið afar jákvæðar. Þeir einstaklingar sem farið hafa í gegnum þjónustuna lýsa aukinni vinnugetu, bættri líðan og meiri virkni – bæði í starfi og daglegu lífi. Oft hefur þessi snemmtæki stuðningur skipt sköpum! Forvarnir snúast í grunninn um að grípa fólk áður en það dettur út. Að bjóða stuðning áður en vandinn verður of umfangsmikill. Með þessari þjónustu viljum við leggja okkar af mörkum til þess að fleiri geti haldið áfram að vera virkir á vinnumarkaði við sem bestu aðstæður. Fyrir þá sem vilja kynna sér málið nánar má finna frekari upplýsingar á velvirk.is. Höfundur er sviðsstjóri forvarna hjá VIRK. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Vinnumarkaður Mest lesið Hafa íslensku lífeyrissjóðirnir staðið sig nógu vel? Kjartan Björgvinsson Skoðun Pólitísk ábyrgð hlýtur að hafa afleiðingar Erna Bjarnadóttir Skoðun Hin drepleiðinlega Bókun 35 Helgi Hrafn Gunnarsson Skoðun Þegar Alþingi er beygt í duftið Sigurður Sigurðsson Skoðun Ekki leggja þjóðinni orð í munn Anna Margrét Bjarnadóttir Skoðun Barnið sem mælikvarðinn sér ekki Rebekka Rafnsdóttir Skoðun Eigum við að borga það? Gréta Ingþórsdóttir Skoðun Er landsbyggðin hluti af lausninni? Hildur Sólveig Sigurðardóttir Skoðun Goðarnir fóru aldrei – þeir skiptu bara um nafn Ragnar Thorarensen Skoðun Netöryggi snýst líka um að þora að segja frá Margrét V. Helgadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Félagsmiðstöðvar eru haldreipi margra barna Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Eigum við að borga það? Gréta Ingþórsdóttir skrifar Skoðun Hafa íslensku lífeyrissjóðirnir staðið sig nógu vel? Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Pólitísk ábyrgð hlýtur að hafa afleiðingar Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar Alþingi er beygt í duftið Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Sammála – leggjum þjóðinni ekki orð í munn Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Goðarnir fóru aldrei – þeir skiptu bara um nafn Ragnar Thorarensen skrifar Skoðun Hin drepleiðinlega Bókun 35 Helgi Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Spírallinn Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun „Að tilheyra“, tækifæri til að styðja fyrr við unga fólkið okkar Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Barnið sem mælikvarðinn sér ekki Rebekka Rafnsdóttir skrifar Skoðun Er landsbyggðin hluti af lausninni? Hildur Sólveig Sigurðardóttir skrifar Skoðun Netöryggi snýst líka um að þora að segja frá Margrét V. Helgadóttir skrifar Skoðun Fortíðin vann Baldur Johnsen skrifar Skoðun Getur maður verið rasisti án þess að gera sér grein fyrir því? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ekki leggja þjóðinni orð í munn Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Hvernig hefurðu það? Carmen Maja Valencia skrifar Skoðun Minna kerfi, betri þjónusta Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Forstjóri CIA heimsækir Moskvu Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Trump lítið annað en hvíslari í leikritinu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ísland: Þessi sigur jaðrar við kraftaverk Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Af klósettferðum og frelsinu til að njóta almannarýmis Eva Dögg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei – megum við þá ganga frá eftir okkur? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir skrifar Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Sjá meira
Skoðun „Að tilheyra“, tækifæri til að styðja fyrr við unga fólkið okkar Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar
Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar