Upp­gjörið: Valur - Haukar 90-97 | Fimm í röð hjá Haukum

Siggeir Ævarsson skrifar
Amandine Justine Toi var frábær fyrir Hauka í kvöld.
Amandine Justine Toi var frábær fyrir Hauka í kvöld. Vísir/Pawel

Valskonur tóku á móti Íslandsmeisturum Hauka í Bónus-deild kvenna í kvöld en fyrir leikinn voru liðin jöfn að stigum í 4. og 5. sæti í þéttum pakka í efri hluta deildarinnar en Haukar slíta sig frá Val eftir leik kvöldsins sem lauk með 90-97 sigri Hauka.

Dagbjört Dögg sækir á körfunaVísir/Pawel

Eftir nokkuð flata byrjun á tímabilinu hafa Haukar verið að sækja í sig veðrið og voru með fjóra sigra í röð fyrir leikinn og héldu uppteknum hætti í kvöld. Gestirnir náðu fljótt upp smá forskoti og leiddu með ellefu eftir góða lokarispu í fyrsta leikhluta.

Alyssa Cerino hóf annan leikhluta með látum og setti átta stig í röð. Þá rönkuðu Haukar við sér og héldu muninum um það bil í tíu stigum og í hálfleik munaði aftur ellefu stigum, staðan 42-53 og Haukar í bílstjórasætinu fram að þessu.

Alyssa Cerino var stigahæst Valskvenna og hélt þeim inni í leiknum með þristum ofar en einu sinniVísir/Pawel

Valskonur komu mjög einbeittar út í seinni hálfleikinn og skoruðu fyrstu níu stig hálfleiksins án svars. Emil tók leikhlé í stöðunni 51-53. Heimakonur komus svo yfir í stöðunni 55-54 en þá fór Eyjólfur loks að hressast og á sama tíma virtust Valskonur missa einbeitinguna, þá sérstaklega varnarmegin, og fengu á sig nokkrar ódýrar körfur. Staðan 65-73 fyrir lokasprettinn.

Haukar voru með pálmann í höndunum þegar þær ýttu muninn upp í tíu stig í upphafi fjórða leikhluta en Valskonur neituðu að gefast upp og minnkuðu muninn í þrjú stig í kjölfarið. Þær komust þó ekki nær og ég set spurningamerki við nokkrar ákvarðanir í sóknarleik Vals í lokin en skotin voru bara engan vegin að detta á ögurstundu.

Tinna Guðrún á fleygiferð í kvöld. Hún skilaði 16 stigum í hús.Vísir/Pawel

Þær neituðu þó að gefast upp og minnkuðu muninn aftur í þrjú og lokasekúndur leiksins urðu æsispennandi en Haukar héldu haus og lokuðu þessum leik með sanngjörnum 90-97 sigri.

Atvik leiksins

Áhlaup Vals í upphafi síðari hálfleiks má færa til bókar sem atvik leiksins. Þær hófu leikhlutann á 13-1 áhlaupi og komust einu stigi yfir. Þetta gerði það að verkum að seinni hálfleikurinn varð virkilega spennandi og úr varð hin besta skemmtun fyrir áhorfendur. 

Stjörnur og skúrkar

Amandine Justine Toi var frábær í liði Hauka og stigahæst á vellinum með 31 stig. Krystal-Jade Freeman skilaði góðri tvöfaldri tvennu með 16 stig og tíu fráköst.

Þóra Kristín stýrði leik Hauka með styrkri hendi í kvöld. 15 stig frá henni og sex stoðsendingar.Vísir/Pawel

Hjá Val var Alyssa Cerino stigahæst með 24 stig og átti nokkra risastóra þrista þegar neyðin var stærst. Þóranna Kika Hodge-Carr kom næst með 21 stig og níu fráköst en hún var mjög öflug undir lokin þegar Valskonur freistuðu þess að taka lokaáhlaup.

Þóranna Kika var öflug í liði Vals í kvöld.Vísir/Pawel

Dómarar

Sigmundur Már Herbertsson, Bjarki Þór Davíðsson og Federick Alfred U Capellan dæmdu leikinn í kvöld. Ég tók varla eftir að þeir væru á gólfinu í fyrri hálfleik og það er alltaf besta jafnvægið. Eftir því sem leið á leikinn komu nokkrir áhugaverðir dómar og ódýrar villur og var augljóst að stuðningsmenn Vals voru ekki á eitt sáttir með þeirra frammistöðu að þessu sinni.

Dómaratríó kvöldsinsVísir/Pawel

Tap Vals verður þó varla skrifað á dómgæsluna sem var heilt yfir þokkaleg.

Stemming og umgjörð

Það verður að hrósa Völsurum fyrir flotta umgjörð og góða mætingu í kvöld. Pálmar Ragnarsson var mættur með heilan herskara af yngri flokka iðkendum sem héldu uppi fjörinu bæði fyrir leik og á milli leikhluta. Ég held að ég hafi bara ekki séð jafn góða mætingu í stúkuna á Hlíðarenda síðan í úrslitakeppninni síðasta vor.

Viðtöl

Viðtöl væntanleg innan stundar.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira