Valdi sér fylkingu í Beckham-deilunum Magnús Jochum Pálsson skrifar 20. janúar 2026 10:26 Tónlistarkonan Lily Allen virðist greinilega frekar á bandi Brooklyn Beckham en foreldra hans, Victoriu og Davids. Getty Tónlistarkonan Lily Allen hefur greinilega valið sér fylkingu í deilum innan Beckham-fjölskyldunnar sem hafa gerjast um nokkurra ára bil og sprungu í loft upp þegar Brooklyn Beckham, frumburður Victoriu og Davids, sagðist ekki vilja sættast við fjölskyldu sína.
Hinn 26 ára Brooklyn opinberaði deilurnar á Instagram-hringrás sinni í gær þar sem hann sagði foreldra sína taka ímynd fjölskyldunnar ofar öllu öðru, þau hefðu stýrt umfjöllun fjölmiðla um málið og reynt að eyðileggja samband hans og eiginkonu hans, Nicolu Peltz. Fyrir yfirlýsingu hans höfðu slúðurfréttir gengið um margra mánaða skeið um deilur innan fjölskyldunnar. „Ég hef þagað í mörg ár og gert allt sem ég get til að halda þessum málum fyrir mig. Því miður hafa foreldrar mínir og teymi þeirra haldið áfram að leita til fjölmiðla, sem gefur mér ekkert annað val en að tala fyrir mínu máli og segja sannleikann um aðeins sumar af þeim lygum sem hafa verið birtar,“ sagði Brooklyn í textanum. „Ég vil ekki sættast við fjölskyldu mína. Mér er ekki stjórnað, ég er að standa með sjálfum mér í fyrsta skipti á ævinni,“ sagði hann á öðrum stað. Brooklyn hefur starfað sem fyrirsæta og ljósmyndari en einnig reynt fyrir sér í matreiðslu og gaf út sjónvarpsþættina Cookin' With Brooklyn þar sem maturinn var þó ekki eldaður af honum sjálfum. Árið 2022 giftist hann bandarísku leikkonunni Nicolu Peltz, sem er dóttir milljarðamæringsins Nelson Peltz og fyrrverandi fyrirsætunnar Heffner Peltz, og hefur samband hans við Victoriu og David verið við alkul síðan. Áður eldað grátt silfur við Victoriu Opinberunin í gær hefur vakið gríðarlega athygli, sérstaklega á Bretlandseyjum, þar sem fréttamiðlar og samfélagsmiðlar hafa logað. Ein þeirra sem hefur tjáð sig um málið er poppsöngkonan Lily Allen sem birti mynd af Brooklyn á Instagram-síðu sinni í gær. Brooklyn í West End Girl-úlpunni. Allen birti mynd af Brooklyn í blárri hvítdoppóttri úlpu, þeirri sömu og hún klæddist sjálf framan á nýjustu plötu sinni, West End Girl, þar sem hún opinberaði sig um eitrað hjónaband sitt við eiginmann sinn, David Harbour, hvernig hún kóaði með honum áður en hún fékk á endanum nóg þegar hann hélt framhjá henni með konu sem þau þekktu. Allen virðist þannig leggja Brooklyn að jöfnu við sjálfa sig og taka hlið hans í deilunum. Þar með er Allen mögulega að kveikja aftur upp í deilum sínum við Victoriu en söngkonan baunaði ítrekað á fyrirsætuna árið 2007 og kallaði hana hlægilegan athyglissjúkling. „Þú ert ekki að kynna neitt, þú þarft ekki á peningunum að halda, þetta snýst bara um athygli,“ sagði Allen um Victoriu og veru hennar í fjölmiðlum. Samband þeirra Lily og Victoriu hafði verið stirt síðan en þær sættust þó árið 2023 og talaði Allen þá fallega um Kryddpíuna. En þessi óbeina stuðningsyfirlýsing Allen við Brooklyn er vís til að endurnýja illdeilurnar.
Bretland Hollywood Deilur hjá Beckham-fjölskyldunni Mest lesið Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Lífið Bonnie Tyler er látin Tónlist Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Lífið Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Lífið Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Lífið The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Lífið Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Lífið Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum Lífið Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Lífið Qualley og Antonoff í sundur Lífið Fleiri fréttir Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Melabúðin fagnar sjötíu árum Sjá meira