Kaus að styðja karlasamtök í stað lögreglu Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 14. janúar 2026 16:50 Inga Sæland, þáverandi félags- og húsnæðismálaráðherra, með styrkþegum. Stjórnarráðið Félags- og húsnæðismálaráðherra ákvað að veita Samtökum um karlaathvarf styrk upp á milljónir króna þrátt fyrir að matsaðilar teldu forsvarsmenn samtakanna ekki hæfa til að sinna verkefninu. Samtökin fengu styrk á kostnað verkefnis lögreglunnar á Suðurlandi.
Í október árið 2025 auglýsti félags- og húsnæðismálaráðuneytið á vef stjórnarráðsins eftir umsóknum um styrki „til verkefna sem miða að því að tryggja þolendum og gerendum ofbeldis um land allt aðgengi að stuðningi og ráðgjöf“. Styrkirnir voru sagðir liður í aðgerðum stjórnvalda árin 2024-2025 til þess að bregðast við afleiðingum Covid-19 faraldursins. Sérstök matsnefnd var skipuð til að fara yfir umsóknirnar. Fjögur samtök fengu úthlutað styrk; Samtök um kvennaathvarf, Bjarkarhlíð, Kvennaráðgjöfin og Samtök um karlaathvarf. Styrkveitingin til Samtaka um karlaathvarf var þvert á við ráðleggingar matsnefndar. „Umsóknin er sú eina sem nær sérstaklega til karla sem verða fyrir ofbeldi í nánum samböndum, sem hefur hingað til ekki fengið mikla athygli þrátt fyrir að vitað sé að karlar jafnt sem konur geti búið við slíkt. Við teljum þessa aðila þó ekki vera þá réttu til þess að framkvæma verkefnið sem m.a. felst í að gerð verði rannsókn,“ segir í umsögn matsnefndarinnar um samtökin. Umsögnina má finna í gögnum frá ráðuneytinu sem Vísir hefur undir höndum. Rúv greindi fyrst frá. Vekja athygli á bágri stöðu karlmanna Á vefsíðu Samtaka um karlaathvarf er tilgangur samtakanna sagður vera „að vekja athygli á því misrétti sem karlmenn búa við á Íslandi og fræða almenning um þá stöðu sem karlkyns þolendur eru í“. Samkvæmt fréttatilkynningu voru samtökin stofnuð í maí árið 2018 og voru forsvarsmenn þeirra þeir Huginn Þór Grétarsson, Gunnar Kristinn Þórðarson, Friðgeir Örn Hugi Ingibjartsson og Kristinn Sæmundsson. Huginn Þór er skráður forsvarsaðili þeirra í umsókninni. Huginn Þór er barnabókahöfundur og menntaður viðskiptafræðingur. Hann varð að umfjöllunarefni fjölmiðla vegna fjölda meiðyrðamála sem hann höfðaði auk þess sem hann var í formennsku fyrir hópnum DaddyToo, eins konar andsvari við MeToo-hreyfingunni. Kristinn Sigurjónsson tók við styrknum fyrir hönd samtakanna en fjallað var talsvert um ummæli sem hann lét falla í Facebook-hópnum Karlmennskuspjallið um konur og var hann vegna þess rekinn úr stöðu sinni sem lektor við Háskólann í Reykjavík. Samtökin um karlaathvarf óskuðu eftir styrk upp á 6,75 milljónir króna en samkvæmt fjárhagsáætlun sem fylgdi umsókninni telja samtökin að fjárþörf verkefna þeirra sé ellefu milljónir króna. Til stendur að framkvæma rannsókn um ofbeldi gegn karlmönnum, deila niðurstöðunum opinberlega og veita karlkyns þolendum stuðning. „Verkefnið gengur út á að afla og miðla upplýsingum um ofbeldi sem karlmenn þola. Það er nauðsynlegt að almenningur og yfirvöld séu upplýst um að karlmenn eru stór hluti þolenda, ella getur slíkt haft neikvæð áhrif á störf viðkomandi aðila,“ segir í umsókninni. Með umsókn þeirra fylgja stuðningsbréf frá samtökunum Foreldrajafnrétti og Kærleikssamtökunum. Einnig segjast bæði samtökin ætla að taka þátt í vinnu við rannsókn Samtaka um karlaathvarf. Valdi karla í stað lögreglu Félags- og húsnæðismálaráðuneytinu bárust alls umsóknir frá sjö aðilum, þar af frá fjórum áðurnefndum samtökum sem hlutu styrk. Þau sem hlutu ekki styrk voru Afstaða, félag fanga sem vildu efla jafningastuðning meðal fanga, Samtök um kvennaathvarf sem sóttu um fræðslustyrk og Lögreglan á Suðurlandi sem vildu halda áfram með verkefnið sitt „Öruggara Suðurland“. Alls voru sextíu milljónir króna í pottinum. Matsnefndin lagði til að Samtökin um kvennaathvarf fengju 26 milljónir til að styðja við rekstur þeirra, Lögreglan á Suðurlandi fengi 7,5 milljónir króna, Kvennaráðgjöfin fengi 4, 5 milljónir króna, Bjarkarhlíð fengi sjö milljónir til að bæta starfsemi á Vesturlandi og Vestfjörðum og að auki fimmtán milljónir fyrir rekstur þeirra. Í umsögn matsnefndarinnar er lagt til að í stað þess að styrkja Samtökin um karlaathvarf myndi ráðuneytið láta fagaðila framkvæma rannsókn á umfangi og eðli ofbeldis sem karlar verða fyrir. Þar væri hægt að leita til hagsmunasamtaka í málaflokknum, þar á meðal Samtakanna. Inga Sæland, þáverandi félags- og húsnæðismálaráðherra, ákvað að Samtökin um kvennaathvarf þrjátíu milljónir og Samtökin um karlaathvarf 3,5 milljónir. Hún fór eftir ráðleggingum matsnefndarinnar hvað varðar styrki til Kvennaráðgjafar og Bjarkahlíðar en ekki varðandi Lögregluna á Suðurlandi sem sat eftir með sárt ennið.
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Kynbundið ofbeldi Félagasamtök Rekstur hins opinbera Mest lesið Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Innlent Segja boltann hjá stjórnvöldum Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu Innlent Fleiri fréttir Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Sjá meira