Systir og amma drengs í meðferð létust í Suður-Afríku Agnar Már Másson skrifar 20. desember 2025 17:18 Fjölskyldumeðlimir drengs sem staddur var í meðferð í Suður-Afríku létsut í slysi í landinu. Íslendingarnir sem létust í umferðarslysi í Suður-Afríku í vikunni voru þar til að heimsækja íslenskan dreng í fíknimeðferð. Systir drengsins og föðuramma létust í slysinu, en faðir hans liggur þungt haldinn á sjúkrahúsi. „
Við erum harmi slegin og engin orð fá lýst þeirri sorg sem fjölskyldan gengur nú í gegnum,“ kemur fram í yfirlýsingu frá fjölskyldunni en greint var frá því í gær að Íslendingar hefðu lent í alvarlegu umferðarslysi í Suður-Afríku á miðvikudag. Í yfirlýsingunni er tekið fram að farþegar í bifreiðinni hafi verið fjölskyldumeðlimir drengs sem staddur væri í meðferð á meðferðarheimilinu Healing Wings. Fjölskyldan hafi ferðast til Suður-Afríku til að eyða jólunum með drengnum og fara með jólagjafir til drengjanna sem þar dvelja. „Hugur okkar er hjá nánustu ættingjum,“ er bætt við í yfirlýsingunni. „Við biðlum til fjölmiðla að veita fjölskyldumeðlimum og öðrum aðstandendum frið á þessum ólýsanlega erfiðu tímum og forðast óþarfa fréttaflutning um málið. Frekari upplýsingar verða ekki veittar að svo stöddu.“ Bústaðakirkja opnaði dyr sínar í gær fyrir aðstandendur og vini hinna látnu og þess slasaða. Athöfnin var vel sótt og fjölmenntu samnemendur stúlkunnar meðal annars til að minnast hennar, sýna samstöðu og samhug. Dæmi eru um að foreldrar sendi börn til Suður-Afríku í meðferð vegna vímuefnavanda þar sem þeir finna ekki réttu úrræðin hér á landi, eins og greint var frá á Vísi í október.
Suður-Afríka Umferðaröryggi Meðferðarheimili Íslendingar erlendis Mest lesið Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Erlent Vill nýjan Úkraínuforseta Erlent Útskrifuð af sjúkrahúsi og send aftur í fangelsið Erlent Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Innlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Lést eftir árás tígrisdýrs í dýragarði Erlent Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Innlent Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Fleiri fréttir Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Sjá meira