Leik lokið: Fram-FH 28-30 | Hafn­firðingar unnu meistarana

Hinrik Wöhler skrifar
Frá leik Fram fyrr á tímabilinu
Frá leik Fram fyrr á tímabilinu Vísir/Anton Brink

FH vann tveggja marka sigur á Íslandsmeisturum Fram í Olís-deild karla í handbolta í kvöld, 30-28, og það á þeirra eigin heimavelli. Sigurinn var mun meira sannfærandi en úrslitin gefa tilefni til.

FH var þremur mörkum yfir í hálfleik, 17-14, og var komið átta mörkum yfir í þeim seinni, 28-20, áður en heimamenn löguðu stöðuna verulega undir lokin.

Þetta var þriðji sigur Hafnfirðinga í röð og þeir fylgja eftir efstu liðum deildarinnar. Fram hefur tapað þremur af síðustu fjórum leikjum sínum.

Frekari umfjöllun og viðtöl koma inn á Vísi seinna í kvöld.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira