Viðskipti innlent

Bein út­sending: Listi Fram­úr­skarandi fyrir­tækja birtur

Boði Logason skrifar
Verðlaunin verða afhent í Laugardalshöll í dag.
Verðlaunin verða afhent í Laugardalshöll í dag. CI

Listi Creditinfo yfir Framúrskarandi fyrirtæki 2025 er birtur í dag við hátíðlega athöfn í Laugardalshöll. Þar verða bæði veittar viðurkenningar og boðið upp á skemmtilega dagskrá.

Beina útsendingu má nálgast í spilaranum hér fyrir neðan:

Hrefna Sigfinnsdóttir, framkvæmdastjóri Creditinfo, opnar viðburðinn en einnig verður flutt ávarp frá Daða Má Kristóferssyni, fjármálaráðherra, og Ernu Björg Sverrisdóttur aðalhagfræðingi Arion banka. 

Sérstök hvatningarverðlaun fyrir framúrskarandi sjálfbærni verða einnig veitt.

Ítarlegur sérvefur hefur verið opnaður á Vísi tileinkaður Framúrskarandi fyrirtækjum en þar er hægt að sjá listann í heild sinni auk fróðlegra viðtala við Framúrskarandi fyrirtæki.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×