Upp­gjörið: Grinda­vík - Njarð­vík 109-96 | Grind­víkingar unnu í heim­komunni

Smári Jökull Jónsson skrifar
Khalil Shabazz sækir hér á körfuna.
Khalil Shabazz sækir hér á körfuna. Vísir/Anton

Grindavík vann Njarðvík, 109-96, í fyrsta heimaleik sínum í tæp tvö ár. Grindvíkingar voru mun sterkari aðilinn í seinni hálfleik.

Það var búið að stilla upp fyrir veislu í HS Orku-höllinni í kvöld. Grindvíkingar voru að spila fyrsta alvöru heimaleik sinn í 694 daga og hvorki stuðningsmenn þeirra né Njarðvíkur létu sig vanta á þann stóra viðburð. Húsið var troðfullt og stemmningin eftir því.

Fyrri hálfleikur var jafn og spennandi. Njarðvíkingar náðu frumkvæðinu í fyrsta leikhluta og bæði lið voru að spila vel sóknarlega. Forysta gestanna varð mest níu stig en Grindavíkingar minnkuðu muninn í eitt stig í stöðunni 49-48 þegar Arnór Tristan Helgason tróð í hraðaupphlaupi.

Það var reyndar það síðasta sem hann gerði í leiknum því hann lenti hræðilega eftir troðsluna, fékk þungt höfuðhögg og fólk hreinlega tók andköf í höllinni. Hann var leiddur af velli en kom ekki meira við sögu. Arnór Tristan hafði spilað frábærlega fram að þessu og eftir leik virtist hann í ágætu standi miðað við höggið mikla.

Arnór Tristan Helgason sést hér troða en lenti afar illa í kjölfarið.Vísir/Anton
Arnór Tristan lendir hér í gólfinu eftir troðsluna og líkt og sést hjá ljósmyndaranum undir körfunni þá brá fólki illilega sem fylgdist með.Vísir/Anton

Staðan í hálfleik var 54-51 fyrir heimamenn eftir þriggja stiga körfu Ólafs Ólafssonar undir lok hálfleiksins og hún gaf heldur betur tóninn fyrir seinni hálfleik.

Því í þriðja leikhluta tóku Grindvíkingar öll völd. Í stöðunni 59-58 náðu Grindvíkingar 26-9 kafla og gengu frá leiknum. Þeir náðu þessum týpíska Grindavíkurleik, þriggja stiga skotin duttu og stúkan fylgdi með.

Fjórði leikhlutinn varð í raun aldrei spennandi þrátt fyrir að Njarðvíkingar hafi minnkað muninn undir lokin. Munurinn fór niður í tólf stig en tíminn var of naumur til að það dygði til.

Mario Matosovic sýndi fína spretti í kvöld.Vísir/Anton

Lokatölur 109-96 og Grindavík fagnar því sigri eftir þennan fyrsta leik í HS Orku-höllinni í tæp tvö ár.

Atvik leiksins

Byltan sem Arnór Tristan fékk var svakaleg og það mátti sjá angistarsvip á öllum í húsinu í kjölfarið. Sem betur fer virðist hann í lagi og Grindvíkingar stigu vel upp í fjarveru hans en Arnór Tristan var kominn með 11 stig þegar þarna var komið við sögu.

DeAndre Kane átti fínan leik fyrir Grindavík og sækir hér á Dwayne Lautier.Vísir/Anton

Tvær þriggja stiga körfur frá DeAndre Kane og Ólafi Ólafssyni undir loka þriðja leikhluta voru risastórar. Þær kveiktu í stúkunni og gerðu stúkuna mjög erfiða fyrir gestina.

Stjörnur og skúrkar

Jordan Semple var mjög góður í fyrsta leik sínum fyrir Grindavík. Hann skoraði 28 stig, tók 11 fráköst og gaf 5 stoðsendingar. 39 framlagsstig samtals sem er afar gott. DeAndre Kane og Ólafur skiluðu sínu og Khalil Shabazz var góður með 16 stig og 11 stoðsendingar.

Jordan Semple ver hér skot frá Dominykas Milka.Vísir/Anton

Hjá Njarðvík var Mario Matosovic frábær í fyrri hálfleik en það fjaraði undan leik hans í þeim síðari. Dwayne Lautier var stigahæstur gestanna með 23 stig og nýi Bandaríkjamaðurinn Brandon Averette átti ágæta spretti.

Dómararnir

Heilt yfir komust þeir vel frá leiknum. Það var hiti í húsinu og á tímabili virtist sem hitinn inni á vellinum yrði aðeins of mikill en þríeykið Kristinn Óskarsson, Bjarki Þór Davíðsson og Ingi Björn Jónsson voru með ágæt tök á öllu saman.

Dómaratríóið ræðir málinVísir/Anton

Stemmning og umgjörð

Í hæsta klassa. Eins og Jóhann Þór þjálfari Grindavíkur sagði eftir leik þá var líkt og um væri að ræða leik í oddaleik í undanúrslitum fremur en fyrsta leik tímabilsins.

Stinningskaldi var í miklu stuði í kvöld enda komnir heim til Grindavíkur.Vísir/Anton

Stúkan var troðfull og umgjörð heimamanna til fyrirmyndar með hoppukastala og grillveislu fyrir leik. Njarðvíkingar voru fjölmennir í stúkunni sömuleiðis og stuðningsmenn beggja liða duglegir að hvetja sín lið.

Veigar Páll Alexandersson reynir að skora en Ólafur Ólafsson er mættur í vörninni.Vísir/Anton

Viðtöl

Rúnar Ingi

„Við vorum komnir níu stig yfir í fyrri hálfleik og þá vorum við bara óskynamir með boltann í höndunum og kærulausir. Við hleypum þeim aftur inn í þetta, jafn leikur í hálfleik og mér leið svo sem ágætlega með þetta og fannst við vera með ágætis tök,“ sagði Rúnar Ingi Erlingsson þjálfari Njarðvíkur eftir leikinn.

Rúnar Ingi Erlingsson er þjálfari Njarðvíkinga.Vísir/Anton

Eins og Rúnar nefnir munaði ekki miklu á liðunum í hálfleik en í þeim síðari skildu leiðir.

„Bæði lið með jafnræði en síðan komum við inn í seinni hálfleikinn í þeirra leik og við ætlum eitthvað að fara að svara því með snöggum skotum og einstaklingsframtaki sóknarlega. Við verðum rosalega hægir, hættum að hreyfa vörnina og erum ekki nægilega þolinmóðir að bíða eftir því að þessi pláss á gófinu opnist.“

Hann segir Njarðvíkinga ekki vinna eins og þeir spiluðu á þessum kafla.

„Við ætlum að ráðast á þá þegar þeir eru í jafnvægi og það er erfitt. Við erum ekki með þannig lið sem mun vinna þannig. Við þurfum að vinna í okkar sóknarleik, ná að búa til betri opnanir og það er mitt hlutverk og ég þarf að gera betur í því.“

Brandon Averette með boltann en Khalil Shabazz reynir að stela honum.Vísir/Anton

Njarðvíkingar komu til baka undir lokin en það var of seint í rassinn gripið.

„Þeir fara að hitta og komast í stuð og þá erum við skrefi á eftir í öllu. Mario (Matosovic) við það að stela boltanum og hann fer einhvern veginn í fótinn á hinum og Óli Óla kastar ofan í næstum því frá miðju. Ég ánægður samt að við sýndum líf, við hentum ekki alveg handklæðinu inn og sýndum karakter að koma aðeins til baka.“

„Þá sjáum við sóknarleikinn sem við viljum sýna, þá erum við að kasta boltanum á milli kanta og búa til galopin skot, þá hittum við nokkuð vel. Mikið af drippli og einstaklingsframtaki og ég þarf að eyða því úr okkar leik. Því fyrr því betra.“

Rúnar Ingi fagnar í leiknum í kvöld.Vísir/Anton

Stemmningin í Grindavík var frábær í kvöld og stúkan fljót að fylgja með þegar körfurnar duttu hjá heimamönnum.

Það er alltaf erfitt að koma á svona útivöll þegar stemmning er svona og Stinningskaldi að syngja og tralla á pöllunum. Hrós til þeirra sem mættu, geggjuð stemmning og gaman að taka þátt í þessum leik. Grindavík er stemmningslið og verður það alltaf.“

„Þeir voru bara að fá alltof opin skot, Óli Óla og Mortensen og þá voru þeir bara komnir í takt. Það eru okkar mistök að gefa þeim taktinn og gefa þeim það að þeir finnist þeir líða vel. Við gerum vel á (Khalil) Shabazz í fyrri hálfleik en svo fór hann að dansa eins og við þekkjum en þá er honum bara farið að líða of vel og það er þægilegt að spila fimmtán stigum yfir.“

Rúnar segir Njarðvík hafa lent í vítahring sem þeir réðu ekki við.

„Ég talaði um sóknina áðan, varnarleikurinn er kannski ekki kominn á þann stað sem við viljum hafa hann. Við erum í bölvuðum basli með (Jordan) Semple undir körfunni og hann er að skora alltof mörg sniðskot. Svo förum við að bregðast við því og þá skiljum við skytturnar eftir opnar. Þá erum við komnnir í vítahring sem við ráðum illa við og þurfum að vinna með þetta og mæta tilbúnir í næsta leik.“

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira