Kókaínklásúla í kaupmálanum tryggir Keith rúman milljarð Magnús Jochum Pálsson skrifar 1. október 2025 12:29 Kidman og Urban munu á næstu mánuðum þurfa að útkljá hvernig þau hyggjast skipta eignum sínum. Getty Fréttir af skilnaði Hollywood-stjörnunnar Nicole Kidman og kántrísöngvarans Keith Urban skóku heiminn í fyrradag og eru fjölmiðlar farnir að rýna í kaupmála hjónanna. Sérstök kókaínklásúla hefur vakið athygli og gæti tryggt Urban rúmlega 1,3 milljarða króna.
Hin ástralska Kidman og hinn ástralsk-nýsjálenski Urban giftu sig árið 2006 og eru sennilega frægustu hjón Eyjaálfu frá upphafi. Áður hafði Kidman verið gift Tom Cruise í ellefu ár, frá 1990 til 2001. Margir töldu hjónaband Kidman og Urban eitt það tryggasta í Hollywood en á þriðjudag sótti Kidman um skilnað í Tennesse-ríki. Ósættanlegir erfiðleikar hefðu komið upp í hjónabandinu sem hefðu á endanum leitt til skilnaðarins. Þau höfðu búið hvort í sínu lagi síðan í byrjun sumars í aðdraganda skilnaðarins og hafa slúðurblöðin eftir heimildarmönnum að Kidman hafi „barist fyrir því að bjarga hjónabandinu“ í nokkurn tíma. Milljarður fyrir að neyta ekki vímuefna Fjölmiðlar hafa beint sjónum sínum að kaupmála sem hjónin skrifuðu undir fyrir brúðkaup sitt árið 2006. Þar sem um kaupmála fyrir tvo ofurríka einstaklinga er að ræða þá er ýmsar óvenjulegar klásúlur að finna í kaupmálanum, þar með talið svokölluðu kókaínklásúla. Ástralskir fjölmiðlar herma að í klásúlunni segi að Kidman þurfi að borga Urban 908 þúsund ástralska dali, eða tæplega 73 milljónir króna, árlega, svo lengi sem hann heldur sig fjarri áfengi og eiturlyfjum. Urban hefur áður tjáð sig opinberlega um kókaín- og áfengisfíkn sína og sagði hann tíunda áratuginn hafa einkennst af mikilli neyslu. Í viðtali við Opruh Winfrey árið 2010 lýsti hann því hvernig Kidman hefði skipulagt íhlutun nokkrum mánuðum eftir brúðkaup þeirra. Það hefði styrkt tengsl þeirra og hjálpað honum að vinna bug á fíkninni. Ef fyrsta ári hjónabandsins er sleppt virðist Urban hafa haldið sér edrú í átján ár og ætti samkvæmt klásúlunni að fá 1,314 milljarða króna frá Kidman. En hjónin þurfa líka að greiða úr fleiri flækjum. Þau eiga tvö börn saman, hina sautján árs Sunday Rose og hina fjórtán ára Faith Margaret og ellefu fasteignir, metnar á mörg hundruð milljónir króna, vítt og breitt um Bandaríkin og Ástralíu. Samkvæmt People þá verður Kidman lögheimilisforeldri dætranna og munu þær búa hjá henni 306 daga ársins en hina 59 hjá Urban.
Bíó og sjónvarp Ástin og lífið Ástralía Bandaríkin Hollywood Tengdar fréttir Sér lífið í nýju ljósi eftir móðurmissinn Ástralska stórstjarnan Nicole Kidman segist verða hræddari við dauðann með aldrinum og finnur fyrir aukinni tilvistarkreppu. Hún er þó óhrædd við að vera í góðum tengslum við tilfinningar sínar og finna til. 25. nóvember 2024 14:32 Kidman vill fjögur í viðbót Leikkonan Nicole Kidman sem gift er ástralska kántrísöngvaranum Keith Urban sagði í viðtali á dögunum að ef mögulegt væri gæti hún vel hugsað sér að eignast fjögur börn til viðbótar. 27. nóvember 2014 13:00 Ekki sönn ást með Tom Cruise Nicole Kidman, fyrrverandi eiginkona Toms Cruise, segist aldrei hafa verið almennilega ástfangin af leikaranum. 31. október 2013 21:00 Mest lesið Dr. Gunni flytur í Fljótshlíðina í faðm Helenu Lífið Söfnun til handa fjölskyldu van der Beek fer fram úr björtustu vonum Lífið Menn sem murka lífið úr öndunum á Tjörninni Lífið „Erum bara vinir“ Lífið Pósthólfið fylltist eftir að hún auglýsti eftir kærasta í Edduverðlaunaræðunni Lífið „Rétt „outfit“ getur bjargað deginum“ Lífið Örláti tannálfurinn Zayn aldrei ástfanginn af Gigi Lífið Minnast Van Der Beek: „Hans verður saknað að eilífu“ Lífið James Van Der Beek látinn Lífið Vala Matt selur á Ásvallagötunni Lífið Fleiri fréttir Minnast Van Der Beek: „Hans verður saknað að eilífu“ „Erum bara vinir“ „Rétt „outfit“ getur bjargað deginum“ Örláti tannálfurinn Zayn aldrei ástfanginn af Gigi Pósthólfið fylltist eftir að hún auglýsti eftir kærasta í Edduverðlaunaræðunni Dr. Gunni flytur í Fljótshlíðina í faðm Helenu Söfnun til handa fjölskyldu van der Beek fer fram úr björtustu vonum Menn sem murka lífið úr öndunum á Tjörninni Bud Cort látinn eftir langvinn veikindi Margrét, Elín, Kristín og Sigrún auk Ævars Þórs fá bókmenntaverðlaun James Van Der Beek látinn Unaðsleg stemming á gotneskri forsýningu Hefur staðið eftir marin eftir mörg hundruð handabönd Mynduðu blátt P og minntust Patreks Freys Trommari The Pogues er látinn Alexandra Helga lokar Míu Vala Matt selur á Ásvallagötunni „Ég sé að hann er löngu farinn“ Frestar tónleikum heilsunnar vegna Britney selur réttinn að tónlist sinni fyrir milljarða Mínútuþögn á minningarleik um Patrek Frey Varð milljón krónum ríkari í mátunarklefa á Tenerife Yfirlýst lesbía Búið á tólf stöðum í tólf ára sambandi Fjörugt Food and fun framundan „Þetta er erfiðasta mýta sem næringarfræðin hefur þurft að díla við lengi“ Glímdi við kaupfíkn og fór í gjaldþrot: „Það kemur alltaf að skuldadögum“ Eyddi öllu út beint eftir Ofurskálina Brynja Dan og Jóhann selja slotið eftir breytingar Listapör, dansfjölskylda og rjómi senunnar á Garðinum Sjá meira
Sér lífið í nýju ljósi eftir móðurmissinn Ástralska stórstjarnan Nicole Kidman segist verða hræddari við dauðann með aldrinum og finnur fyrir aukinni tilvistarkreppu. Hún er þó óhrædd við að vera í góðum tengslum við tilfinningar sínar og finna til. 25. nóvember 2024 14:32
Kidman vill fjögur í viðbót Leikkonan Nicole Kidman sem gift er ástralska kántrísöngvaranum Keith Urban sagði í viðtali á dögunum að ef mögulegt væri gæti hún vel hugsað sér að eignast fjögur börn til viðbótar. 27. nóvember 2014 13:00
Ekki sönn ást með Tom Cruise Nicole Kidman, fyrrverandi eiginkona Toms Cruise, segist aldrei hafa verið almennilega ástfangin af leikaranum. 31. október 2013 21:00