Höfða mál vegna fullyrðinga um að forsetafrúin sé karlmaður Hólmfríður Gísladóttir skrifar 24. júlí 2025 06:49 Owens hefur verið furðulega óvægin í garð forsetahjónanna. Getty Emmanuel Macron Frakklandsforseti og eiginkona hans Brigitte hafa höfðað mál á hendur bandaríska þáttastjórnandanum og álitsgjafanum Candace Owens. Owens hefur haldið því fram að Brigitte sé í raun karlmaður og forsetinn á mála hjá CIA.
Owens nýtur gríðarlegra vinsælda meðal stuðningsmanna Donald Trump Bandaríkjaforseta og hefur farið mikinn gegn vinstrimönnum, trans fólki og fleirum. Hún sagðist í fyrra vera reiðubúinn til að veðja öllu upp á að Brigitte væri karlmaður og gaf í kjölfarið út átta þátta hlaðvarpsseríu kallaða „Að verða Brigitte“. Samkvæmt skjölum málsins freistuðu forsetahjónin þess að fá Owens til að draga fullyrðingar sínar til baka en hún brást við með því að gera lítið úr þeim og fjalla enn frekar um málið. Þá segir að Owens hafi meðal annars haldið því fram að Emmanuel og Brigitte væru skyld og samband þeirra þannig sifjaspell, að CIA hefði valið Macron til að verða forseta Frakklands og að forsetahjónin hefðu gerst sek um svik og yfirhylmingu. Þau segja herferð Owens aðför að fjölskyldum þeirra og gerða til þess að fá athygli og öðlast alræmi. Hún hafi ítrekað fengið tækifæri til að draga fullyrðingar sínar til baka en þess í stað gefið í árásir sínar. Málið var höfðað í Delaware og Financial Times hefur eftir heimildarmönnum að forsetahjónin séu reiðubúin til að bera vitni fyrir dómi.
Bandaríkin Frakkland Mest lesið Biður Jón afsökunar Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Innlent Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Erlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Innlent Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Erlent Fleiri fréttir Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Sjá meira