Hnífstunga á Austurvelli Eiður Þór Árnason skrifar 19. júlí 2025 15:54 Aðgerðum lögreglu á Austurvelli var lokið á fjórða tímanum í dag. Vísir/Lýður Valberg Einn var handtekinn eftir hnífstunguárás á Austurvelli í dag. Lögreglu barst tilkynning um málið um klukkan 14 og flúði grunaður árásarmaður af vettvangi. Hann var síðar handtekinn í Kringlunni.
Þetta segir Sævar Guðmundsson, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Einn hafi verið stunginn og hann hafi ekki upplýsingar um ástand hins særða. Málið er í rannsókn og vildi Sævar ekki veita frekari upplýsingar um það að svo stöddu. Frá aðgerðum lögreglu í dag. Sérsveit ríkislögreglustjóra tók þátt í aðgerðum lögreglunnar á Austurvelli og í Kringlunni. Að sögn sjónvarvotts virtist fórnarlambið vera karlmaður en ljósmynd sem fréttastofa hefur undir höndum sýnir blóðslettur við bekk nærri styttunni af Jóni Sigurðssyni. Á þriðja tímanum mátti sjá lögreglu- og sjúkrabifreiðar við Austurvöll auk hóps lögreglumanna að störfum. Um tíma var hluti Austurvallar lokaður af með lögregluborðum á meðan vettvangsrannsókn stóð yfir. Rannveig Þórisdóttir, staðgengill upplýsingafulltrúa ríkislögreglustjóra, staðfestir aðkomu sérsveitarinnar að aðgerðinni. Að sögn sjónvarvotts í Kringlunni tóku fjórir lögreglumenn auk öryggisvarða þátt í handtökunni og var hinn grunaði dreginn út úr verslunarmiðstöðinni um klukkan 15. Þá sáust sérsveitarmenn á svæðinu. Fréttin hefur verið uppfærð.
Reykjavík Lögreglumál Mest lesið Biður Jón afsökunar Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Erlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Innlent Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Erlent Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Innlent Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Innlent Fleiri fréttir Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjá meira