Innlent

Grunaður um að fá alls konar búnað frá fyrir­tæki fyrir fíkniefnarækt

Jón Þór Stefánsson skrifar
Kannabisefnin voru ræktuð í Reykjavík samkvæmt ákæru. Myndin er úr safni.
Kannabisefnin voru ræktuð í Reykjavík samkvæmt ákæru. Myndin er úr safni. Getty

Fimmmeningar hafa verið ákærðir í stórfelldu fíkniefnamáli sem varðar ræktun og vörslu kannabisefna.

Það er héraðssaksóknari sem höfðar málið á hendur þessum fimm, en embættið krefst upptöku á fjölda muna sem munu hafa verið notaðir við ræktun efnanna.

Það eru þrjár vatnsdælur, þrjátíu lampar, ellefu loftblásarar, tuttugu viftur, tveir tímarofar, átta loftsíur, fimm ræktunartjöld, fimm vatnstankar, loftpressa, vökvunarkerfi, rakastillir, stýribúnaður fyrir viftu, og svokallað rakatæki.

Auk þess er krafist upptöku á 275 kannabisplöntum, 1,6 kílóum af kannabislaufum og stönglum, og 9,8 kílóum af maríhúana.

Einn sakborninganna er ákærður fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot en hinir fjórir fyrir hlutdeild í því. Sá er ákærður fyrir vörslu efnanna og plantnanna þegar málið kom upp árið 2021. Efnin munu hafa verið á ótilgreindum stað í Reykjavík.

Annar sakborninganna er ákærður fyrir að leggja til búnaðinn sem notaður var við framleiðsluna, en hann er sagður hafa útvegað búnað frá fyrirtæki og leigt hinum sakborningnum hann. Í ákærunni segir að honum hafi ekki getað dulist um í hvaða skyni búnaðurinn yrði notaður.

Þá eru þau fjögur, sem grunuð eru um hlutdeilt, ákærð fyrir að koma að beiðni aðalmannsins í Reykjavík til þess að aðstoða hann við að klippa niður kannabisplönturnar. Fyrir það hafi þau hlotið greiðslu af óþekktu tagi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×